„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Birta vaxtaákvörðun viku fyrr – Flýta birtingu vegna útbreiðslu COVID-19

Í fyrra­málið, mið­viku­dag­inn 11. mars, verður ákvörðun pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­banka Íslands birt á vef bank­ans. Klukkan 10:00 hefst þá vefút­send­ing þar sem Ásgeir Jónsson, seðla­banka­stjóri og for­maður pen­inga­stefnu­nefndar, og Rannveig Sig­urð­ar­dóttir, aðstoð­ar­seðla­banka­stjóri og nefnd­ar­maður í pen­inga­stefnu­nefnd, gera grein fyrir ákvörðun nefnd­ar­innar.

Til stóð að birta vaxta­á­kvörðun mars­mán­aðar þann 18. mars en vaxta­á­kvörðun hefur verið flýtt vegna útbreiðslu COVID-19.

Mannlíf greindi frá því um helg­ina að Seðla­bank­inn og rík­is­stjórnin væru á loka­metr­unum að und­ir­búa stóran aðgerð­ar­pakka til að breg­ast við þeim áhrifum sem COVID-19 kann að hafa á efna­hags­málin og að Seðla­bank­inn myndi ekki bíða til næsta vaxta­á­kvörð­un­ar­dags með að kynna ákvarð­anir sínar.

Sjá einnig: Stór aðgerða­pakki stjórn­valda vegna COVID-19 á loka­metr­unum

Á meðal þess sem verið er að und­ir­búa er lækkun vaxta, en Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri lét í vik­unni í veðri vaka að bank­inn myndi bregð­ast við aðstæð­unum. „Það liggur fyrir að ef það verður mik­ill sam­dráttur í lands­fram­leiðslu þá mun það kalla á það að við reynum að örva hag­kerfið með pen­inga­stefn­unni, svo sem með því að lækka vexti en líka eftir öðrum leiðum,“ sagði Ásgeir á opnum fundi á Hilton hót­eli í vik­unni. Fordæmi eru þegar komin fram fyrir lækkun vaxta vegna kór­óna­veirunnar. Þannig lækk­aði seðla­banki Banda­ríkj­anna óvænt vexti á þriðju­dag, vegna óvissunnar sem uppi er eins og fram kom í umfjöllun Mannlífs um helg­ina.

Ásgeir Jónsson mun gera grein fyrir ákvörðun nefnd­ar­innar á fundi klukkan 11.00 á morgun. Mynd / Hákon Davíð

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs er vaxta­lækkun í far­vatn­inu en einnig er verið að skoða hvort minnka eigi bindi­skyldu og létta á eig­in­fjár­kröfu á hendur bönk­unum, til að gera þeim kleift að lána til fyr­ir­tækja og tryggja lausafé. Bindi­skylda er eitt af stjórn­tækjum Seðla­banka til að hafa stjórn á magni lausa­fjár í umferð. Bankinn setur þær kvaðir á lána­stofn­anir að þær hafi ákveðið hlut­fall af inn­lánum á reikn­ingi hjá Seðla­bank­anum. Það er til þess fallið að draga úr getu banka til útlána.

Allar áætlanir endurskoðaðar

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og Sigurður Ingi Jóhanns­son sam­göngu– og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, kynntu fyrr í dag áætl­anir rík­is­stjórn­ar­innar til að bregð­ast við þeim áhrifum sem COVID-19 mun hafa á efna­hags­málin.

Katrín byrj­aði á að minna á að rík­is­stjórnin sjái nú fram á að þurfa að end­ur­skoða allar sínar áætl­anir vegna útbreiðslu veirunnar.

Bjarni tók undir og sagði að for­sendur fjár­mála­stefnu og áætl­ana sem hafa verið gerðar séu nú brostnar. Þess vegna þurfti að koma með nýja áætlun. Hann segir að ný áætlun verði kynnt á næstu mán­uðum, lík­leg­ast um miðjan maí.

Bjarni segir nauð­syn­legt að bregð­ast við fyr­ir­séðri nið­ur­sveiflu og aðstoða þau fyr­ir­tæki sem munu lenda tíma­bundið í vanda, m.a. með því að opna á það að fyr­ir­tæki fái frest til að standa skil á sköttum og gjöldum.

Sjá einnig: „Óvissan er mikil“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnaghagsmál

Stýrivextir áfram 9,25 prósent – Lakari horfur í ferðaþjónustu ein af ástæðunum
Innlentefnaghagsmál

Stýri­vextir áfram 9,25 pró­sent – Lakari horfur í ferða­þjón­ustu ein af ástæð­unum

Stýri­vöxtum Seðla­banka Íslands verður haldið óbreyttum í 9,25 pró­sentum. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu Pen­inga­stefnu­nefndar bank­ans. Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri til­kynnti í morgun að Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hafi ákveðið að halda stýri­vöxtum áfram í 9,25 pró­sentum. Fram kemur í yfir­lýs­ingu nefnd­ar­innar að verð­bólga hafi auk­ist eilítið frá síð­asta fundi hennar eftir að hafa minnkað fram eftir ári. „Und­ir­liggj­andi verð­bólga er enn...
Rebekka Guðleifsdóttir: „Hvenær gera Íslendingar alvöru uppreisn gegn þessu andskotans rugli?“
Innlentefnaghagsmál

Rebekka Guð­leifs­dóttir: „Hvenær gera Íslend­ingar alvöru upp­reisn gegn þessu and­skot­ans rugli?“

Ljós­mynd­ar­inn Rebekka Guð­leifs­dóttir skrif­aði gríð­ar­lega vin­sæla færslu á Facebook í gær en henni hefur verið deilt yfir 1100 sinnum. Í færsl­unni gagn­rýnir hún Ásgeir Jónsson Seðla­banka­stjóra „og allt hitt ríka og fína sið­blinda fólkið“ sem kemur sér í valda­stöður á Íslandi. Færslan er löng og harð­orð og end­ur­speglar sístækk­andi óánægju í sam­fé­lag­inu vegna efna­hags­á­stands­ins á Íslandi en Seðla­banka­stjóri ákveð enn...
Skapandi leigjendur komi með tillögur að leiguverði
Innlentefnaghagsmál

Skapandi leigj­endur komi með til­lögur að leigu­verði

Þann 10. júní gefst áhuga­sömum kostur á að skoða hús­næði sem Reykja­vík­ur­borg leigir út fyrir skap­andi verk­efni. Húsnæðið er í Gufunesi, Bryggju­hverfi og í Skerja­firði og sam­tals er um rúm­lega 9.000 fer­metra að ræða. Á vef­síðu Reykja­vík­ur­borgar segir að við val á leigj­endum verði sér­stök áhersla lögð á skap­andi greinar og það að byggja upp og efla nýjar atvinnu­greinar og...
Þjóðin situr uppi með Icelandair
Innlent

Þjóðin situr uppi með Icelandair

Útlit er fyrir að íslenska þjóðin sitji uppi með Icelandair-flug­fé­lagið og það komi alfarið í hennar hlut að bjarga því frá falli. Nú þegar á almenn­ingur stóran hluta í flug­fé­lag­inu í gegnum eign­ar­hluti líf­eyr­is­sjóð­anna. Allt stefnir í að fólkið í land­inu eign­ist enn meira í gegnum skuld­breyt­ingu lána stóru rík­is­bank­anna sem nú þegar hafa lánað flug­fé­lag­inu í kringum 20 millj­arða...
Þrír sinna eftirliti með lánveitingum og skila skýrslu til Bjarna
Innlent

Þrír sinna eft­ir­liti með lán­veit­ingum og skila skýrslu til Bjarna

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hefur skipað þriggja manna nefnd til að hafa eft­ir­lit með fram­kvæmd veit­ingar við­bót­ar­lána lána­stofn­ana með rík­is­á­byrgð. Í nefnd­inni eru þau Einar Páll Tamimi, for­maður, Kristrún Heim­is­dóttir og Ásta Dís Óla­dóttir. Eft­ir­lits­nefnd­inni er ætlað að hafa almennt eft­ir­lit með fram­kvæmd lán­veit­ing­anna til fyr­ir­tækja sem orðið hafa fyrir veru­legu tekju­tapi vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru. Þetta kemur fram á...
Innlent

Mun taka langan tíma að vinna okkur úr þess­ari kreppu

„Kostn­að­ur­inn verður veru­legur. Það mun taka langan tíma að vinna okkur úr þess­ari kreppu.“ Þetta sagði Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra Íslands, á upp­lýs­inga­fundi núna fyrir hádegi þegar næstu aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar vegna efna­hags­á­hrifa kór­ónu­veirunnar voru kynntar. Rík­is­stjórnin hefur sam­þykkt þrjár til­lögur um stuðn­ing við launa­fólk og fyr­ir­tæki. Markmið þeirra er að draga úr þeim skaða sem umfangs­miklar upp­sagnir og fjölda­gjald­þrot valda þannig...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins