„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Mjög oft er það þannig að fólk er mjög reitt og á erfitt með að tala saman“

„Mjög oft er það þannig að fólk er mjög reitt og á erfitt með að tala saman“

Fjöl­skyldan er lif­andi fyr­ir­bæri. Hún vex þegar nýir ein­stak­lingar koma til sög­unnar og dregst saman þegar ást­vinir hverfa á braut. Í raun er rétt­ast að tala um fjöl­skyldur, frekar en fjöl­skyldu, þar sem sam­setn­ing þeirra er fjöl­breytt­ari en nokkru sinni fyrr. Allar eiga þær það þó sam­eig­in­legt að ganga í gegnum erf­iða tíma og krefj­andi áskor­anir.

Vigdís Ásgeirs­dóttir sál­fræð­ingur segir sam­skipta­vanda eina helstu ástæðu þess að fólk leitar sér aðstoðar. Það eigi við um para­sam­bandið en líka um sam­skipti pars­ins við aðra ein­stak­linga, sem oft sé rót vand­ans.

„Þetta eru sam­skiptin og dreif­ing á ábyrgð. Það er það sem fólk talar mjög oft um,“ segir hún. „Fólk er ekki sam­mála eða sam­stiga þegar kemur að dag­legum verk­efnum og svo er annað sem flækir málin; fyrr­ver­andi makar, barns­mæður og barns­feður, sér­stak­lega ef sam­böndin hafa endað illa. En jafn­vel þegar sam­bönd enda vel koma gjarnan upp alls konar vanda­mál þegar nýir aðilar mæta á svæðið.“

Vigdís segir erf­ið­leik­ana í sam­skiptum fyrr­ver­andi para oft mega rekja til reiði vegna óupp­gerðra mála. „Fólk á ekki í nógu góðum sam­skiptum. Mjög oft er það þannig að fólk er mjög reitt og á erfitt með að tala saman og jafn­vel að öll sam­skipti fari í gegnum þriðja aðila eða bara tölvu­póst. Þetta er ósætti sem fólk hefur ekki unnið úr og alls konar til­finn­ingar sem blossa upp þegar nýr aðili er kom­inn til sög­unnar. Og oft er fólk ekki sam­mála um upp­eldið eða hvernig ábyrgðin dreif­ist.“

Fólk þarf aðstoð þegar svona er komið, nýtt sjón­ar­horn og verk­færi til að takast á við vand­ann. „Það er eng­inn skömm að því að fá aðstoð,“ segir Vigdís. „Það er meira en að segja það að fá öll svið lífs­ins til að ganga upp. Stundum þarf fólk bara hjálp.“

Eins og aðrir sér­fræð­ingar segir Vigdís álagið á nútíma­fjöl­skyld­unni allt of mikið. „Það eru allar þessar kröfur; það er vinnan og svo þarf maður að hreyfa sig og sinna áhuga­málum og tóm­stundum og vera góð vin­kona eða vinur og sinna for­eldrum eða tengda­for­eldrum … Þetta eru ekki bara kröfur frá vinnu­mark­aðnum.“

Hún segir börnin ekki síður undir pressu. „Það eru mjög miklar kröfur gerðar til barn­anna. Það eru skól­inn og tóm­stund­irnar, sem eru kannski tvær, þrjár eða fjórar, og þá er eftir að læra heima. Við vitum hvernig þetta er. Það þarf að sníða lífið þannig að það sé tími fyrir sam­veru,“ segir Vigdís. „Samvera er mjög mik­il­væg og góð for­vörn.“

Hún segir þennan álags­þátt í raun hafa komið sér á óvart. „Það glíma mjög margir við mikið álag og svo lendir fólk í áföllum og fólk fer á hnef­anum í gegnum þau … Á end­anum fyllist mælir­inn.“

Hún segir mik­il­vægt að sam­fé­lagið taki sig saman um að haga málum þannig að fólk fái aðstoð fyrr frekar en seinna. „Við sem sam­fé­lag þurfum að taka okkur saman um að það sé bara gott að fara fyrr og fá aðstoð því það getur mögu­lega komið í veg fyrir verri vanda seinna. En það verður að vera aðgengi fyrir alla að þjón­ustu, allir verða að eiga kost á því. Og þetta á ekki að vera síð­asta úrræðið.“

Edda Hannesdóttir – sálfræðingur

„Til mín leitar m.a. fólk í hjóna/para­ráð­gjöf. Mjög mikið fólk sem er milli fer­tugs og fimm­tugs. Það er yfir­leitt búið að vera mikið álag; nám, vinna, barn­eignir, upp­eldi og að eign­ast eða leigja hús­næði.

Flest allir aðilar vinna fullan vinnu­dag og jafn­vel meira, sem veldur miklu álagi. Fólk gleymir eða gefur sér ekki tíma til hlúa að sam­band­inu, hvort öðru og áttar sig á þegar aðeins fer að róast að nándin er farin og kom­inn sam­skipta­víta­hringur. Þá spyr fólk: Vil ég hafa þetta svona það sem eftir er? Þegar að pör hætta að næra hvort annað þá hafa þau fjar­lægst, finn­ast þau ekki eiga lengur sam­leið og upp­lifa ást­leysi. Því er gagn­legt að fara í yfir sögu sam­bands­ins og athuga tengsla­þarfir, sam­skipti og fleira.

Nið­ur­staða MA-rann­sóknar minnar á helstu ástæðum skiln­aðar og sam­búð­ar­slita sýndi að um

64% nefndu „áttum ekki lengur sam­leið”, 51% nefndu „ást­leysi”, „sam­skipta­erf­ið­leika” nefndu tæp 43%, „ágrein­ingur um for­gangs­röðun heim­ilis, fjöl­skyldu og frí­stunda” tæp 40% og „áfengis- og fímu­efna­vanda­mál“ 35,5%.

Það hefur einnig færst í vöxt að ung pör leiti sér aðstoðar vegna sam­skipta­vanda. Mikið álag fylgir upp­eldi og ummönnun barna þegar báðir aðilar vinna mikið til að ná endum saman. Ágrein­ingur um tíma er oft mik­ill því það er ekki er mik­ill tími aflögu. Það er því gott að fólk leiti sér fag­legrar ráð­gjafar og geri sér grein fyrir stöðun sinni í sam­band­inu og skoði hvað sé til ráða.

Annar hópur sem leitar sér gjarnar aðstoðar eru pör sem eru í seinna sam­bandi og því fylgja börn úr fyrri sam­böndum s.s. stjúp­börn. Það gefur auga leið að erfitt getur verið að sam­eina tvær fjöl­skyldur, ef þannig má að orði kom­ast.

Þá er einnig tals­vert um að fólk komi til mín þar sem ákvörðun um skilnað liggur fyrir og eru að leita sér ráð­gjafar til þess að skiln­að­ur­inn verði sem sárs­auka­minnstur fyrir börnin.

Álag, tíma­leysi, sam­skipta­vandi og saga (reynsla í æsku og upp­vexti) ann­ars eða beggja aðila er oft að trufla sam­bandið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins