„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Vill að ástandsskýrslur fylgi öllum íbúðum á sölu

Björn Leví Gunn­ars­son er einn þeirra fimm þing­manna sem lagt hefur til á Alþingi að skylda verði að láta ástands­skýrslu um íbúð­ar­hús­næði fylgja við sölu­ferli. Í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu er einnig kveðið á um raf­ræna við­halds­dag­bók húss­ins. Þing­mað­ur­inn segir þetta geta spornað við hvata til svartrar vinnu.

Ástands­skýrslur skulu fylgja sölu­yf­ir­litum alls íbúð­ar­hús­næðis, verði til­laga fimm þing­manna á Alþingi að frum­varpi og síðar lögum. Tillagan kveður á um að þeir sem útbúa þessar skýrslur verði ábyrgir fyrir göllum sem rýra verð­mæti eign­anna og þeir verði tryggðir með sjálfs­á­byrgð­ar­trygg­ingu. Til­gang­ur­inn er að tryggja skað­leysi kaup­enda og selj­enda fast­eigna þegar mis­tök þeirra leiða til bóta­skyldu.

Jafn­framt er lagt til að hús­næð­is­eig­endur haldi við­halds­dag­bók, sem fylgi eign­inni þegar hún er seld, ekki ósvipað smur­bókum bif­reiða. Þetta gæti að sögn flutn­ings­manns frum­varps­ins, einnig orðið til þess að draga úr svartri atvinnu­starf­semi.

„Þessi til­laga var næstum því sam­þykkt á þar­síð­asta þingi. Ef umsagn­irnar verða óbreyttar ætti að vera hægt að fá þetta mál í gegn núna,“ segir Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, sem er fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unnar, sem hefur í þrí­gang áður verið lögð fram á þing­inu.

Komast hjá óþarfa deilumálum

Í grein­ar­gerð með til­lög­unni kemur fram að við­skipti með íbúð­ar­hús­næði séu afar vanda­söm og þar sé jafnan um að ræða stærstu við­skipti sem ein­stak­lingar og fjöl­skyldur taki þátt í á ævi sinni. Mikill hluti fjár­muna fólks sé alla jafna undir. „Afar mik­il­vægt er að reglur um slík við­skipti auki fyr­ir­sjá­an­leika og öryggi neyt­enda og dragi úr tjóni og óþörfum deilu- og dóms­málum. Þá er mik­il­vægt að koma í veg fyrir að fólk þurfi að þola íveru í heilsu­spill­andi hús­næði en nokkur vit­und­ar­vakn­ing hefur orðið um þær hættur sem af því stafa. Hingað til hafa ekki verið gerðar telj­andi úrbætur á þessu sviði,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Í til­lög­unni er ráð­herra iðn­aðar-, ferða­mála- og nýsköp­unar falið að und­ir­búa nokkrar breyt­ingar á lögum til að bæta stöðu neyt­enda í fast­eigna­við­skiptum. Lögð er áhersla á að ástand hús­næðis verði kunn­ugt öllum sem að við­skipt­unum koma; kaup­endum, selj­endum og milli­liðum. Með því megi draga veru­lega úr líkum á því að leyndir gallar komi upp „með til­heyr­andi kostn­aði fyrir kaup­endur, selj­endur og sam­fé­lagið“, eins og segir í grein­ar­gerð­inni. Settar verði skýrar reglur um ábyrgð vegna galla sem ekki koma fram í ástands­skýrslum.

Margir taki út sömu eignina

Björn Leví bendir á að í dag tíðk­ist að vænt­an­legir kaup­endur láti ein­hvern taka út eign­ina áður en hún er keypt. Oft ger­ist það í kjöl­farið þess að til­boðs­að­il­inn hætti við kaupin. Þegar nýr hugs­an­legur kaup­andi leggi fram til­boð láti hann gera aðra ástands­skýrslu. Þá sé fyrri skýrsla honum ekki aðgengi­leg. Þannig séu stundum gerðar margar ástands­skýrslur fyrir sömu eign­ina í einu og sama sölu­ferl­inu. Í grein­ar­gerð­inni segir að í þeim til­vikum þar sem eign sé eft­ir­sótt geti mynd­ast hvati til að láta kyrrt liggja að gera slíkar skýrslur. „Sem dæmi má nefna að þegar mikil eft­ir­spurn er eftir hús­næði getur fyr­ir­vari um ástands­skoðun fast­eignar verið talið kauptil­boði til frá­dráttar.“ Æskilegt sé að ástands­skýrsla sé meðal sölu­gagna.

Fátt að vanbúnaði

Björn Leví er nokkuð bjart­sýnn á fram­gang máls­ins á yfir­stand­andi þingi. Hann segir að sú regla hafi tíðkast þegar líði að þing­lokum að hver flokkur á þing­inu fái að koma í gegn einu til tveimur málum, óháð mik­il­vægi þeirra. „Þegar allt kemur til alls snýst þetta um fjölda mála. Það þurfa allir flokkar að fá jafn­mörg mál,“ útskýrir hann. Björn bendir á að málið sé nú komið í nefnd og hann telur líkur á að þetta geti gengið í gegn á yfir­stand­andi þingi, njóti málið for­gangs. „Það virt­ust allir vera til­búnir að afgreiða þetta úr nefnd á þar­síð­asta þingi, en á end­anum komust mjög fá þing­manna­mál í gegn.“

Mynd / Unsplash

Hann segir að nú sé búið að lofa þing­mönnum áherslu­breyt­ingum á starfi efna­hags- og við­skipta­nefndar. Meiri áhersla verði lögð á svokölluð þing­manna­mál. Ef ekki ber­ist nýjar umsagnir við umrætt mál ætti nefndin að geta afgreitt það með nefnd­ar­á­liti, án þess að kalla til gesti. „Þetta er gríð­ar­lega mik­il­vægt mál og gott næsta skref í kjöl­far þess að teknar voru upp raf­rænar þing­lýs­ingar. Ef fólk væri að vinna í þessu máli út frá efn­is­legum for­sendum þess, þá ætti þetta að geta farið í gegn í vor,“ segir hann. Björn tekur þó fram að póli­tíkin sé óút­reikn­an­leg.

Smurbók heimilisins

Það felst að mati Björns ákveðið öryggi í því að vita hvar ábyrgðin liggur, ef gallar koma upp. Það sé einn stærsti kostur þess ef til­lagan nær fram að ganga. Einnig sé með henni komið í veg fyrir tví­verknað, með því að láta þær ástands­skýrslur sem gerðar eru fylgja hús­inu. Hann sér fyrir sér að það verði selj­and­ans að greiða fyrir ástands­skoð­un­ina, sem er þá gerð af við­ur­kenndum aðila, eins og áður hefur komið fram. „Hún fylgir þá bara með í útboðs­gögnum. Ef ein­hver vill gera auka ástands­skoðun, þá er honum frjálst að gera það,“ útskýrir þing­mað­ur­inn.

Hann segir að einnig sé mik­il­vægt að halda dag­bækur um þau verk sem unnin eru í hús­inu og að upp­lýs­ingar um þau fylgi þegar eignin er seld. „Þetta er ekk­ert mikið öðru­vísi en smur­bók í bílum. Nema fjár­fest­ing í hús­næði er miklu stærri en í bílum.“

Björn segir að raf­rænar við­halds­bækur fyrir heimlin geti dregið úr hvata til að stunda svarta atvinnu­starf­semi.

Björn nefnir líka þann kost að raf­rænar við­halds­bækur fyrir heimlin dragi úr hvata til að stunda svarta atvinnu­starf­semi. „Þegar þú kaupir við­halds­þjón­ustu af pípara eða múr­ara þá viltu fá það skráð í ástands­skýrslu heim­il­is­ins. Það eru verð­mæti í þeirri vinnu seinna meir. Og ef þú ætlar að skrá þetta í smur­bók­ina þá getur það ekki verið svart. Það verða að fylgja reikn­ingar og kvitt­anir. Þetta er þess vegna líka aðgerð gegn svartri atvinnu­starf­semi.“

Stórt skref stigið í neytendavernd

Kallað hefur verið eftir umsögnum frá ríf­lega 20 aðilum um til­lög­una. Í umsögn Mats­manna­fé­lags Íslands kemur fram að það styðji ein­dregið mark­mið til­lög­unnar um að ástands­skýrslur fylgi sölu­yf­ir­litum íbúð­ar­hús­næðis. Félagið telur hins vegar ekki rétt að und­an­skilja nýjar fast­eignir, eins og til­lagan mælir fyrir um. „Því miður sýnir reynslan einnig, að nýjar fast­eignir hér á landi hafa alls ekki alltaf reynst galla­lausar.“

„Í lög­unum er þó hvergi gerð krafa um þekk­ingu lög­gildra fast­eigna­sala á bygg­inga­tækni og eru þeir því mis­jafn­lega hæfir til þess að standa við þessa ábyrgð sína.“

Félagið bendir á að í lögum um fast­eigna­sölu frá 2015 sé fast­eigna­sal­anum gert skylt að skrá ástand og eig­in­leika fast­eigna sem séu í sölu­með­ferð. Hann beri lögum sam­kvæmt ábyrgð á því að þessar upp­lýs­ingar séu réttar. „Í lög­unum er þó hvergi gerð krafa um þekk­ingu lög­gildra fast­eigna­sala á bygg­inga­tækni og eru þeir því mis­jafn­lega hæfir til þess að standa við þessa ábyrgð sína.“ Kröfur á hendur fast­eigna­sala séu því afar óraun­hæfar. „En með til­komu sér­hæfðra fag­að­ila sem ætlað er að skoða og meta ástand fast­eigna eins og þings­á­lykt­unin hvetur til, verður stigið stórt skref í neyt­enda­vernd á fast­eigna­mark­aði.“

Mats­manna­fé­lagið telur brýnt að ástands­skoð­unin sé fram­kvæmd af óháðum fag­að­ilum sem hafi víð­tæka þekk­ingu á mann­virkja­gerð. Grund­vall­ar­at­riði sé að fram­kvæmdin fylgi sam­ræmdum mats­að­ferðum og að inni­hald þeirra sé sam­ræmt. Slíkt kerfi hafi verið notað í Noregi í um 20 ára skeið. Félagið bendir á að ástands­skýrslur hafi verið ríkur þáttur í fast­eigna­við­skiptum hinum Norð­ur­lönd­unum um ára­tuga skeið.

Fasteignasalar styðja málið

Félag fast­eigna­sala er á meðal þeirra sem skil­aði umsögn um til­lög­una á fyrri stigum. Í umsögn­inni kemur fram sú skoðun félags­ins að mik­il­vægt sé að koma ástands­skýrslum í gagnið, en að þó þurfi að setja um það umgjörð sem styður við gæði skýrsln­anna.

Fram kemur að ástands­skýrslur hafi lengi þekkst á Norð­ur­lönd­unum en þar hafi þær reyndar sætt nokk­urri gagn­rýni. Fast­eigna­salar og ýmis sam­tök neyt­enda vinni að úrbótum þannig að aðeins þeir sem hafi lög­gild­ingu til starfans geri ástands­skýrslur og að trygg­ingar séu að baki skýrsl­unum.

Fram kemur í umsögn­inni að slíkt séu grunn­for­sendur þess að svona fyr­ir­komu­lag eigi rétt á sér hér á landi. „Mik­il­vægt er að reyna að nálg­ast málin eins ein­falt og kostur er. Í frum­varpi til laga um fast­eigna­kaup á árinu 2002 var mælt fyrir um ástands­skýrslur en þau ákvæði tekin út í með­förum þings­ins vegna óheyri­legs kostn­aðar sem talið var að slíkar skýrslur myndu kosta vegna þeirra krafna er þær áttu að upp­fylla,“ segir í umsögn­inni.

Tillagan í heild

Alþingi ályktar að fela ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra að láta und­ir­búa laga­frum­varp sem feli í sér end­ur­skoðun á lögum um sölu fast­eigna og skipa, nr. 70/2015, lögum um fast­eigna­kaup, nr. 40/2002, og þing­lýs­inga­lögum, nr. 39/1978, með eft­ir­far­andi mark­mið að leið­ar­ljósi:
     a.      að stuðla að því að ástands­skýrslur fylgi sölu­yf­ir­litum not­aðra fast­eigna sem ætl­aðar eru til íbúðar,
     b.      að aðilar sem útbúa ástands­skýrslur vegna sölu fast­eigna verði ábyrgir fyrir göllum sem rýra verð­mæti þeirra svo nokkru varði og ekki voru til­greindir í skýrslum þeirra og skuli hafa starfs­á­byrgð­ar­trygg­ingu sem tryggi skað­leysi kaup­enda og selj­enda fast­eigna þegar mis­tök þeirra leiða til bóta­skyldu,
     c.      að stuðla að því, án þess þó að gera það að beinni laga­skyldu, að eig­endur fast­eigna sem ætl­aðar eru til íbúðar haldi við­halds­dag­bók sem sé færð raf­rænt undir fasta­núm­eri eignar,
     d.      að hægt verði að ganga frá ein­földum lög­gern­ingum á borð við umboð vegna sölu fast­eignar, und­ir­ritun leigu­samn­ings og kaup­samn­ings um fast­eign raf­rænt með notkun þjón­ustu á borð við island.is.

Texti / Baldur Guð­munds­son
Myndir / Hákon Davíð Björns­son og úr safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fasteignamarkaður

Haukur Viðar hundskammaður: „Eitt óheiðarlegasta markaðs-stunt sem ég hef séð lengi“
Innlentfasteignamarkaður

Haukur Viðar hund­skammaður: „Eitt óheið­ar­leg­asta mark­aðs-stunt sem ég hef séð lengi“

Viðar Garð­ars­son við­skipta­fræð­ingur er afar ósáttur við hag­fræð­ing­inn Hauk Viðar Alfreðs­son líkt á sjá má í nýrri færslu á Facebook. Viðar skrif­aði færslu inni á opna hóp­inum Mark­aðsnördar á Facebook en við hana hlekkjar hann frétt af Hauki Viðari en hann kemur að nýjum hug­bún­aðir sem hjálpar fast­eigna­kaup­endum og selj­endum að afgreiða sig án hjálpar fast­eigna­sala. Finnst Viðari sið­ferð­is­þrösk­uldur hag­fræð­ings­ins...
Lúxus í Valshlíðinni – skapa borgarbrag í nýju hverfi
Menning

Lúxus í Vals­hlíð­inni – skapa borg­ar­brag í nýju hverfi

Enn fleiri glæsi­hýsi við Hlíð­ar­enda eru nú komin á sölu en það nýjasta er Valshlíð 10-16. Megin hug­myndin og mark­miðið með upp­bygg­ing­unni var að skapa eins­konar borg­ar­brag í hverf­inu og hefur það tek­ist vel til. Hverfið hefur þegar vakið athygli en arki­tektar Vals­hlíðar 10-16 eru ALARK arki­tektar ehf. Byggðin er fjöl­breytt og reit­irnir saman settir úr mis­háum og mis­breiðum húsa­ein­ingum....
Einstakt heimili í Vesturbænum – veggirnir þaktir listaverkum
Menning

Einstakt heim­ili í Vest­ur­bænum – veggirnir þaktir lista­verkum

Vest­ur­bær­inn hefur lengi vel verið eitt eft­ir­sóttasta hverfið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Við Fornhaga 19 í stendur fjór­býl­is­hús en er það á horni Fornhaga og Hjarð­ar­haga. Fast­eigna­salan Lind hefur á skrá hjá sér eina hæð í hús­inu sem er mikið end­ur­nýjuð, stór­glæsi­leg og hafa núver­andi eig­endur þakið vegg­ina af stór­kost­legri list. List á veggjum Íbúðin er fimm her­bergja og skráð 149,1 fer­metrar...
Hátísku hæð í Laugardalnum – stílhrein og tímalaus hönnun
Menning

Hátísku hæð í Laug­ar­dalnum – stíl­hrein og tíma­laus hönnun

Sjar­mer­andi 162 fer­metra hæð stendur við Sólheima 26 á eft­ir­sóttum stað í Laug­ar­dal. Fast­eigna­salan Lind er með eign­ina á skrá hjá sér. Eldhús og borð­stofa Íbúðin er mikið end­ur­nýjuð en eld­húsið var tekið í gegn árið 2021 auk gól­f­efna. Harð­par­ket er á allri íbúð­inni að frá­tal­inni for­stofu en þar eru terrazzo flísar. Tvennar svalir eru á eign­inni, ann­ars vegar úr...
Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkar enn – 5 milljóna króna hækkun á tveimur mánuðum
Innlentfasteignamarkaður

Fast­eigna­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkar enn – 5 millj­óna króna hækkun á tveimur mán­uðum

Kaupverð fast­eigna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækk­aði að með­al­tali um fimm millj­ónir króna á ein­ungis tveimur mán­uðum. RÚV greinir frá þessu. Fast­eigna­verð heldur því áfram að hækka hratt, þrátt fyrir vís­bend­ingar um að mark­að­ur­inn væri að fara að róast. Samkvæmt nýbirtum tölum frá Þjóðskrá Íslands hækk­aði fast­eigna­verð um 1,7 pró­sent milli des­em­ber og jan­úar. Hækkunin var örlítið meiri milli nóv­em­ber og des­em­ber....
Rúmlega 300 fermetra einbýli – marmara eldhús og matjurtagarður
Menning

Rúmlega 300 fer­metra ein­býli – marm­ara eld­hús og mat­jurta­garður

Í rólegu og barn­vænu hverfi í Reykja­vík stendur rúm­lega 300 fer­metra, 8 her­bergja ein­býli. Húsið er sér­stak­lega bjart og gólf­síðir guggar eru í stof­unni sem er afar rúm­góð. Á milli borð­stofu og stofu er arinn sem fer ekki fram hjá neinum. Húsið stendur við Skriðu­stekk 8 í Breið­holti og hefur Lind fast­eigna­sala eign­ina á skrá. Það eru lík­lega fá eld­hús...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins