„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ungt fólk öflugustu málsvararnir fyrir umferðaröryggi

Ungt fólk öflugustu málsvararnir fyrir umferðaröryggi
Fjögur íslensk ung­menni taka þátt í ráð­stefnu YOURS. Frá vinstri: Kolbrún Guðný Þor­steins­dóttir

Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, ávarp­aði síð­degis í gær ráð­stefnu YOURS, sam­taka ung­menna sem berj­ast fyrir umferð­ar­ör­yggi, sem haldin er í Stokk­hólmi. Ráðherra tók einnig þátt í vinnu­stofu þar sem ung­menni og fólk í áhrifa­stöðum ræddu um leiðir til að efla umferð­ar­ör­yggi. Vinnu­stofan sem Sigurður Ingi tók þátt er und­an­fari og hluti 3. heims­þings um umferð­ar­ör­yggi sem haldið er í Stokk­hólmi næstu daga.

Kemur þetta fram í til­kynn­ingu á vef Stjórn­ar­ráðs­ins.

Fjögur íslensk ung­menni sitja ráð­stefn­una en yfir­skrift hennar útleggst á íslensku „Hingað og ekki lengra“ (e. Enough is enough). Yfir­skriftin vísar til þeirrar kröfu ung­menna um allan heim að stjórn­völd og sam­fé­lag taki höndum saman um að fækka alvar­legum slysum og dauða­slysum í umferð­inni.

Á ráð­stefn­unni hafa um 200 ung­menni frá 75 löndum hvaðanæva úr heim­inum sagt frá reynslu sinni og bar­áttu­málum. Staðan væri mjög ólík eftir heims­hlutum en á heims­vísu lát­ast 500 börn á dag í umferð­ar­slysum. Þátt­tak­endur voru sam­mála um mik­il­vægi þess að ung­menni væru þátt­tak­endur í stefnu­mótun og ákvarð­ana­töku í umferð­ar­ör­ygg­is­málum og  að ungt fólk yrði að vera þar í for­ystu.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, á vinnu­stofu ráð­stefn­unnar þar sem ung­menni og stjórn­mála­fólk ræddi umferð­ar­ör­yggi.

Ungt fólk öflugustu málsvararnir

Sigurður Ingi hrós­aði ungu fólki og þátt­tak­endum ráð­stefn­unnar fyrir að taka frum­kvæði í bar­átt­unni fyrir bættu umferð­ar­ör­yggi. Breyta þurfi hug­ar­fari og umferð­ar­menn­ingu um heim allan og þar muni ungt fólk verða öfl­ug­ustu málsvar­arnir. Ráðherra sagði stefnu íslenskra stjórn­valda mjög skýra. Öryggi væri leið­ar­ljós í sam­göngu­á­ætlun lands­ins og liggi til grund­vallar í allri stefnu­mótun, aðgerða­á­ætlun og fram­kvæmdum til að tryggja öryggi allra veg­far­enda í umferð­inni.

Ráðherra sagði frá góðri reynslu stjórn­valda að auka sam­ráð og sam­starf við ungt fólk við stefnu­mótun. Full­trúar ung­menna hafi verið á sam­göngu­þingi unga fólks­ins og nú væri í fyrsta sinn unnið með börnum og ung­mennum við mótun nýrrar sam­göngu­á­ætl­unar. Einnig hafi ráð­stefna sem haldin var í haust um börn og sam­göngur með þátt­töku ung­menna haft mikla þýð­ingu, sem ráðu­neytið stóð að í sam­vinnu við Sam­göngu­stofu, Vega­gerð­ina og Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga.

Frá ráð­stefnu YOURS, sam­taka ung­menna sem berj­ast fyrir umferð­ar­ör­yggi í Stokk­hólmi.

Fjögur íslensk ungmenni á ráðstefnunni

Lands­björg hefur átt í nánu sam­starfi við YOURS og á þeirra vegum fóru tveir full­trúar ungu kyn­slóð­ar­innar; Atli Þór Jónsson (15 ára) og Fannar Freyr Atlason (15 ára) sem báðir eru virkir í ung­liða­starfi Lands­bjargar og félagar í ung­linga­deild­inni Árnýju í Reykja­vík. Með þeim er einn starfs­maður Lands­bjargar. Sam­göngu­stofa sendi sömu­leiðis tvö ung­menni á ráð­stefn­una, Emblu Líf Halls­dóttur (19 ára), björg­un­ar­sveit­ar­konu sem einnig situr í ung­menna­ráði Mos­fells­bæjar og Karín Ólu Eiríks­dóttur (19 ára), sem situr í ung­menna­ráði Grinda­víkur en hún stóð að umferð­ar­ör­ygg­is­ráð­stefn­unni STOPP í Grinda­vík í fyrra. Með þeim fór starfs­maður úr fræðslu­deild Sam­göngu­stofu sem sér um fræðslu og for­varnir umferð­ar­ör­ygg­is­mál.

Um YOURS

YOURS eru frjáls félaga­sam­tök sem starfa á heims­vísu og sinna umferð­ar­ör­yggi. YOURS var stofnað árið 2009 í fram­haldi af fyrstu ráð­stefn­unni fyrir ungt fólk um umferð­ar­ör­yggis (e. First World Youth Assembly for Road Safety) sem haldin var árið 2007 undir merkjum Alþjóða Heil­brigð­is­stofn­un­ar­innar og fleiri aðila. YOURS er rödd ungs fólks og félagi í United Nations Road Safety Collaboration (UNRSC). Markmið YOURS er að finna leiðir til að virkja ungt fólk til verka í umferð­ar­ör­ygg­is­málum. YOURS kemur með vinnu­smiðjur í hvert land fyrir sig og skilur eftir hug­mynda­banka og verk­færakistu sem unga fólkið vinnur með áfram sem miðar að því að gera sam­fé­lagið örugg­ara fyrir þau sjálf og alla aðra sem að mál­inu koma. Í fram­hald­inu fylgir YOURS vinn­unni eftir og styður við það unga fólk sem hefur tekið við kefl­inu í sínu landi.

Vefur ráð­stefn­unnar

Vefur YOURS – Youth for Road Safety

Heims­þing um umferð­ar­ör­yggi í Stokk­hólmi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

umferð

Einn handtekinn eftir innbrot í Þorlákshöfn – Ók próflaus undir áhrifum áfengis
Landið

Einn hand­tek­inn eftir inn­brot í Þor­láks­höfn – Ók próf­laus undir áhrifum áfengis

Síð­ast­lið­inn mánu­dag var brot­ist inn í íbúð og geymslur í Þor­láks­höfn en einn var hand­tek­inn vegna máls­ins, sem nú er til rann­sóknar hjá lög­regl­unni á Suð­ur­landi. Samkvæmt Sunn­lensku stöðv­aði lög­reglan á Suð­ur­landi tíu öku­menn í upp­haf vik­unnar vegna hraðakst­urs en sá sem ók hrað­ast var á 120 km/klst hraða. Þá var einn próf­laus öku­maður stöðv­aður en hann reynd­ist undir áhrifum...
„Allt of margir sem hafa ekki kveikt á perunni“
Innlentumferð

„Allt of margir sem hafa ekki kveikt á per­unni“

Í færslu frá lög­regl­unni er biðlað til öku­manna að kynna sér ljósa­búnað öku­tæk­is­ins áður en haldið er út í umferð­ina. Skylt er að hafa ljósa­búnað bif­reiðar á við akstur en mikið er um að bif­reiðar séu ljós­lausar í umferð­inni. Still­ing­ar­at­riði sem ein­falt er að leysa. Sjálf­stýr­ing ljós­bún­aðs er breyti­legur milli bif­reiða og í sumum til­fellum virkar nem­inn ein­vörð­ungu fyrir fram­ljósin...
Umferðaróhapp á Hellisheiði – vegir loka víða vegna veðurs
Innlentumferð

Umferð­ar­ó­happ á Hell­is­heiði – vegir loka víða vegna veð­urs

Umferð­ar­ó­happ varð á Hell­is­heiði í morgun en sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Vega­gerð­inni er heiðin enn lokuð. Greindi Vega­gerðin frá lok­un­inni á Twitter en umferð­ar­ó­happið sem var minni­háttar en varð til þess að umferða­teppa mynd­að­ist og er nú unnið að því að greiða úr flækj­unni. Oddur Árnason, yfir­lög­reglu­þjónn hjá lög­regl­unni á Suð­ur­landi sagði í sam­tali við Frétta­blaðið að minni­háttar meiðsli hafi orðið...
Skammdegisslysin í borginni – Keyrt á hjólandi og gangandi
Innlentumferð

Skamm­deg­isslysin í borg­inni – Keyrt á hjólandi og gang­andi

Banaslysin sem orðið hafa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í ár urðu öll snemma morg­uns. Í jan­úar hlaut 65 ára gam­all maður alvar­lega höf­uð­á­verka eftir fall á reið­hjóli í Breið­holti, hann lést á sjúkra­húsi degi síðar. Rann­sókn­ar­nefnd sam­gönguslysa telur að and­látið megi rekja til þess að mað­ur­inn var ekki með hjálm. Þann 17. febr­úar lést karl­maður á átt­ræð­is­aldri eftir að hafa orðið fyrir...
Dagur vill lækka hámarkshraðann í borginni
Innlentumferð

Dagur vill lækka hámarks­hrað­ann í borg­inni

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri íhugar að lækka hámarks­hrað­ann í borg­inni að vetr­ar­lagi. Það yrði gert til að draga úr svifryks­mengun og sliti gatna. Lækkun hámarks­hraða myndi þá mið­ast við leyfi­legt nagla­dekkja­tíma­bil. Dagur veltir þessu fyrir sér í kjöl­far rann­sóknar á áhrifum hraða á mengun vegna umferðar. Í viku­legu frétta­bréfi sínu segir borg­ar­stjór­inn: „Í stuttu máli þá gæti lækkun hraða innan...
Vöruflutningabíll fauk útaf á Reykjanesbrautinni
Innlentumferð

Vöru­flutn­inga­bíll fauk útaf á Reykja­nes­braut­inni

Fyrir skammri stundu fauk vöru­flutn­inga­bið­reið útaf á Reykja­nes­braut­inni. Svo herma heim­ildir Mannlífs. Ekki hafa feng­ist frek­ari upp­lýs­ingar frá lög­reglu um máls­at­vik. Gíf­ur­legar vind­hviður eru á suð­vest­ur­horni lands­ins og feng­ust þær upp­lýs­ingar frá umferð­ar­deild lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu að fjöl­margar vöru­flutn­ing­ar­bið­reiðar bíði í röðum við Vest­ur­lands­veg í þeirri von að vind lægi svo hægt verði að halda flutn­ingum áfram. Fréttin verður upp­færð...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins