„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Frjáls félagasamtök fá styrki upp á 140 milljónir króna

Frjáls félagasamtök fá styrki upp á 140 milljónir króna
Ásmundur Einar við afhend­ingu styrkj­anna.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra, veitti í dag styrki af safn­liðum fjár­laga til 33 félaga­sam­taka og nam heild­ar­fjár­hæð styrkja alls tæp­lega 140 millj­ónum króna. Styrkjum af safn­liðum fjár­laga hefur verið úthlutað árlega um langt skeið en þeir eru veittir til félaga­sam­taka sem vinna að verk­efnum á sviði félags- og vel­ferð­ar­mála.

Í ár var lögð sér­stök áhersla á verk­efni sem lúta að mál­efnum barna og fjöl­skyldna. Meðal þeirra eru verk­efni á vegum Barna­heilla, Rauða kross­ins á Íslandi, KFUM og KFUK og styrkt­ar­fé­lags lamaðra og fatl­aðra. Einnig voru veittir styrkir til verk­efna sem heyra undir önnur mál­efna­svið félags- og barna­mála­ráð­herra sem lúta m.a. að mál­efnum fatl­aðs fólks, fátækt, geð­heilsu, félags­legri virkni og ofbeldi.

Dreka­slóð, Geðhjálp, Lands­sam­tökin Þroska­hjálp og Vímulaus æska-for­eldra­hús fá hæstu styrk­ina í ár.

Í ávarpi sínu við úthlutun styrkj­anna á Nauthóli í dag tal­aði ráð­herra um það verð­mæta starf sem frjáls félaga­sam­tök sinna á degi hverjum í þágu sam­fé­lags­ins, einkum þau sem vinna að að því að gæta hags­muna þeirra sem standa höllum fæti í sam­fé­lag­inu. Þá sagði ráð­herra mik­il­vægt að til staðar sé sjóður til þess að sækja í, bæði til þess að geta við­haldið góðum verk­efnum en ekki síst til þess að geta þróað ný verk­efni. „Styrkirnir fela í sér mikil tæki­færi fyrir frjáls félaga­sam­tök. Frjáls félaga­sam­tök eru afar mik­il­væg sam­fé­lagi okkar og þróa oft nýjar og góðar hug­myndir eða útfærslur á eldri hug­myndum sem við til­einkum okkur öll í kjöl­farið. Frjáls félaga­sam­tök gegna oft burð­ar­hlut­verki í ýmsum mála­flokkum sem varða heilsu og vel­ferð fjöl­skyldna á Íslandi og nauð­syn­legt er að við­ur­kenna það góða starf sem þar fer fram og veita því braut­ar­gengi“ sagði Ásmundur Einar.

Við úthlut­anir styrkj­anna síð­ustu ár er orðin hefð fyrir því að fá valda styrk­þega til þess að kynna verk­efnin sem þau hljóta styrk fyrir. Að þessu sinni voru kynnt tvö verk­efni sem hafa verið í gangi um ára­bil og reynst vel þeim sem á hafa þurft að halda. Annars vegar er um ræða sum­ar­búðir KFUM og KFUK fyrir börn með sér­þarfir og hins­vegar Systk­ina­smiðj­una, sem býður upp á sér­stök nám­skeið fyrir systk­ini barna með sér­þarfir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stjórnarráðið

Allir reikningar ríkisstofnana og ríkissjóðs orðnir rafrænir
InnlentStjórnarráðið

Allir reikn­ingar rík­is­stofn­ana og rík­is­sjóðs orðnir raf­rænir

Allir reikn­ingar frá rík­is­sjóði og rík­is­stofn­unum eru orðnir raf­rænir og gildir það frá og með 1.maí. Mark­miðið er að lækka við­skipta­kostnað allra aðila, nútíma­væða við­skiptaum­hverfi rík­is­ins með auknu fram­boði staf­rænnar þjón­ustu og fram­fylgja umhverf­is­sjón­ar­miðum eins og kemur fram á vef Stjórn­ar­ráðs­ins. Fjár­sýslan og rík­is­stofn­anir sjá um að senda reikn­ing­ana út til við­skipta­vina. Þeir eru aðgengi­legir í póst­hólf­inu á Ísland.is. Jafn­framt...
Sektir eða fangelsi við broti á reglum um sóttkví
Innlent

Sektir eða fang­elsi við broti á reglum um sótt­kví

Svandís Svav­ars­dóttir, heil­brigð­is­ráð­herra, hefur birt reglur um sótt­kví og ein­angrun vegna COVID-19 kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Rík skylda er á ein­stak­linga um að hlíta fyr­ir­mælum um að fara í sótt­kví og ein­angra sig ef það smit­ast. Lögð er áhersla á að ein­stak­lingar sem koma erlendis frá verði að fara í sótt­kví. Brot gegn regl­unum varða sektum eða allt að þriggja mán­aða fang­elsi sam­kvæmt...
Katrín skipar í kærunefnd jafnréttismála
InnlentStjórnarráðið

Katrín skipar í kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, hefur skipað full­trúa í kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála fyrir tíma­bilið 1. maí 2020 til 30. apríl 2023. Kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála er skipuð sam­kvæmt lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008 til þriggja ára í senn. Nefnd­ar­menn eru þrír sem ráð­herra skipar sam­kvæmt til­nefn­ingu Hæsta­réttar, auk vara­manna sem skip­aðir eru með sama hætti. Áskilið er að...
Arndís Soffía skipuð sýslumaður í Vestmannaeyjum
Innlent

Arndís Soffía skipuð sýslu­maður í Vest­manna­eyjum

Dóms­mála­ráð­herra hefur ákveðið að skipa Arndísi Soffíu Sig­urð­ar­dóttur sýslu­mann í Vest­manna­eyjum frá 1. apríl næst­kom­andi. Hún var metin hæfust umsækj­enda til að gegna starf­inu. Arndís Soffía er lög­fræð­ingur með lög­reglu­menntun og hefur auk þess sótt sér menntun í afbrota­fræði. Hún á að baki starfs­ferli innan lög­reglu og sem full­trúi sýslu­manns og nú síð­ast stað­geng­ill sýslu­manns­ins á Suð­ur­landi. Að und­an­förnu hefur...
Fimm vilja dómarastöðu við Hæstarétt
InnlentStjórnarráðið

Fimm vilja dóm­ara­stöðu við Hæsta­rétt

Þann 28. febr­úar var emb­ætti eins dóm­ara við Hæsta­rétt Íslands aug­lýst af hálfu dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins og rann umsókn­ar­frestur út 16. mars. Skipað verður í emb­ættið hið fyrsta eftir að dóm­nefnd um hæfni umsækj­enda um dóm­ara­emb­ætti hefur lokið störfum. Umsækj­endur um emb­ættið eru: Aðal­steinn E. Jónasson, dóm­ari við Lands­rétt Davíð Þór Björg­vins­son, dóm­ari við Lands­rétt Jóhannes Sig­urðs­son, dóm­ari við Lands­rétt Sigríður J....
Borgarbyggð verði barnvænt sveitarfélag
InnlentStjórnarráðið

Borg­ar­byggð verði barn­vænt sveit­ar­fé­lag

Mikil eft­ir­vænt­ing ríkti í Borg­ar­byggð í gær þegar Ásmundur Einar Daðason félags- og barna­mála­ráð­herra, Berg­steinn Jónsson, fram­kvæmda­stjóri UNICEF á Íslandi, og Magnús Smári Snorra­son for­maður fræðslu­ráðs Borg­ar­byggðar, und­ir­rit­uðu sam­starfs­samn­ing um verk­efnið Barnvæn sveit­ar­fé­lög. En með und­ir­skrift­inni bæt­ist Borg­ar­byggð í ört stækk­andi hóp sveit­ar­fé­laga sem hefja inn­leið­ingu Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna með stuðn­ingi félags­mála­ráðu­neyt­is­ins og UNICEF á Íslandi. Kemur þetta fram í...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins