„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Brynhildur ráðin leikhússtjóri Borgarleikhússins

Brynhildur ráðin leikhússtjóri Borgarleikhússins
Bryn­hildur Guð­jóns­dóttir. Mynd / Heiðdís Guðbjörg

Bryn­hildur Guð­jóns­dóttir hefur verið ráðin leik­hús­stjóri Borg­ar­leik­húss­ins. Bryn­hildur er í hópi fremstu leik­hús­lista­manna á Íslandi um þessar mundir. Hún hefur yfir tutt­ugu ára reynslu sem leik­ari, höf­undur, list­rænn ráðu­nautur og leik­stjóri. Hún hefur starfað við Borg­ar­leik­húsið síð­ast­liðin átta ár en hún er leik­stjóri sýn­ing­anna Rík­harður III, sem var valin leik­sýn­ing árins 2019, og Vanja frændi, sem enn er í sýn­ingu. Bryn­hildur hefur verið til­nefnd til fjölda verð­launa og hlotið marg­vís­lega við­ur­kenn­ingu fyrir fram­lag sitt til lista. Hún hefur sjö sinnum tekið á móti Grímunni – Íslensku leik­list­ar­verð­laun­unum, ýmist fyrir leik í aðal- og auka­hlut­verkum, leik­stjórn eða fyrir leik­ritun. Þá var hún sæmd ridd­ara­krossi hinnar íslensku fálka­orðu fyrir störf í þágu íslenskrar leik­listar.

Bryn­hildur lauk BA námi í leik­list frá Guild­hall School of Music and Drama í Englandi en áður hafði hún lokið BA gráðu í frönsku frá Háskóla Íslands. Einnig nam hún leik­ritun við Yale School of Drama í Banda­ríkj­unum.

Stjórn Leik­fé­lags Reykja­víkur fagnar ráðn­ingu Bryn­hildar og býður hana vel­komna til for­ystu í Borg­ar­leik­hús­inu. Hún hefur störf á næst­unni.

„Það hefur verið stór­kost­legt að vinna með Bryn­hildi í Borg­ar­leik­hús­inu und­an­farin ár.  Nýlegar sýn­ingar í leik­stjórn hennar, s.s. Rík­harður þriðji og Vanja frændi, hafa borið list­rænum hæfi­leikum hennar glöggt vitni.  Þar hafa for­ystu­hæfi­leikar hennar og fram­sýni einnig komið skýrt í ljós. Stjórn Leik­fé­lags Reykja­víkur hlakkar til sam­starfs­ins og að sjá Bryn­hildi í nýju hlut­verki næstu árin,“ segir  Eggert Benedikt Guð­munds­son, for­maður stjórnar Leik­fé­lags Reykja­víkur.

„Á þessum vatna­skilum í mínu lífi þakka ég af auð­mýkt það traust sem stjórn Leik­fé­lags Reykja­víkur nú sýnir mér. Það er með gleði sem ég tek við kefl­inu af Kristínu Eysteins­dóttur, sem hin síð­ustu ár hefur stýrt Borg­ar­leik­hús­inu af kjarki, hlustun og sínu ein­staka list­ræna inn­sæi. Það eru stórar breyt­ingar í íslensku leik­hús­lífi um þessar mundir og ég lít á það sem gríð­ar­mikið og gott tæki­færi fyrir leik­húsið til að spyrna sér af krafti inn í nýja og grósku­mikla tíma, þar sem gæði og gjöf­ult sam­tal verða leið­ar­ljósið. Það er mín von að Borg­ar­leik­húsið verði áfram sjálf­sagður við­komu­staður allra lands­manna, kröftug lista­stofnun sem nærir, miðlar og gleður. Að þessu sögðu hlakka ég til að setja upp skip­stjóra­húf­una og, ásamt hinum öfl­uga, sam­stillta og flinka hópi starfs­manna leik­húss­ins, setja á fullt stím inn í nýja fram­tíð,“ segir Bryn­hildur Guð­jóns­dóttir, leik­hús­stjóri Borg­ar­leik­húss­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins