„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Spilaði fyrir 20 milljónir á tveimur árum

Spilaði fyrir 20 milljónir á tveimur árum
Mynd / epa|Mynd / epa|

„Við getum ekki unað við það lengur að það sé verið að níð­ast á spilafíklum í fjár­öfl­un­ar­skyni,“ segir Alma Haf­steins­dóttir, ráð­gjafi og fyrr­ver­andi spilafík­ill. Hún birti í vik­unni slá­andi banka­yf­ir­lit manns sem var djúpt sokk­inn í spilafíkn og gagn­rýnir eig­endur spila­kassa harð­lega.

„Banka­yf­ir­lit sýna úttektir fyrir tæp­lega 20 millj­ónir á tveimur árum,“ segir Alma Haf­steins­dóttir, fíkni- og fjöl­skyldu­mark­þjálfi með sér­hæf­ingu í spilafíkn. Hún birti á Facebook brot úr banka­yf­ir­liti spilafíkils, sem tók út rúm­lega eina milljón króna á tveimur dögum.

Alma rekur stofu þar sem hún tekur á móti spilafíklum og fjöl­skyldum þeirra. Hún hefur sjálf glímt við spilafíkn en hefur und­an­farin ár verið ötul bar­áttu­kona gegn spila­kössum og þeim vanda sem þeim fylgir. Í haust voru stofnuð Samtök áhuga­fólks um spilafíkn. Alma segir að ein­stak­ling­ur­inn sem á reikn­ings­yf­ir­litið sem hér er birt, eigi þrjú börn. Sá er að hennar sögn vel mennt­aður, með háskóla­gráðu og var í góðri vinnu. „Þú myndir ekki undir neinum kring­um­stæðum átta þig á því að við­kom­andi glímdi við spilafíkn.“

Alma, sem er að sækja sér rétt­indi sem alþjóð­legur ráð­gjafi fyrir spilafíkla, segir að ein­stak­ling­ur­inn sé á betri stað í dag. Spilafíknin hafi haft gíf­ur­leg áhrif á líf hans. Hann standi uppi eigna­laus en fjöl­skyldan sé smám saman að koma til baka, eins og hún orðar það. „Þarna úti er fullt af svona sögum. Það eru fíkn sögur um skilnað, eigna­missi, þrot og sjálfs­víg. Þessi saga er bara ein af þeim,“ útskýrir hún.

Alma Haf­steins­dóttir.

Spila­kassar á Íslandi eru reknir af Íslands­spilum og Happ­drætti Háskóla Íslands. Rauði kross­inn er stærsti eig­andi Íslands­spila með 64 pró­senta eign­ar­hlut. Slysa­varn­ar­fé­lagið Lands­björg á 26,5 pró­sent og SÁÁ 9,5 pró­sent. Fram kemur á heima­síðu Íslands­spila að til­gang­ur­inn með rekstr­inum sé fjár­öflun til að koma í veg fyrir útgjöld sem ann­ars þyrftu að koma úr rík­is­sjóði.

Posakerfið misnotað

Eins og sjá má á með­fylgj­andi yfir­liti voru flestar úttekt­irnar á veit­inga­staðnum Catalinu. Alma segir að posa­kerfið sé mis­notað með þessum hætti og brýnt sé að setja hömlur á þessa úttekt­ar­leið. Gallinn sé að stað­irnir sem hýsi spila­kass­anna fái hlut­deild af þeirri upp­hæð sem fari í þá. Árið 2018 hafi Happ­drætti Háskóla Íslands og Íslands­spil greitt umboðs­að­ilum 845 millj­ónir króna í umboðs­laun. Hún bendir á að engar reglur séu til um hámark úttekta í gegnum posa, öfugt við hrað­banka. Eigendur spila­kass­anna tali um að það sé rekstr­ar­að­il­anna að setja sér reglur um hámarks­út­tektir en sjálf vill hún meina að ábyrgðin sé hjá eig­endum spila­kass­anna. Þeir séu leyf­is­haf­arnir.

„Það er ekk­ert eft­ir­lit með neinu sem snýr að þessum spila­kössum. Það þarf eng­inn að segja mér að fólkið á þessum stöðum sjái ekki hvað er í gangi – og að það haldi að þarna sé heil­brigt fólk að leggja frjáls fram­lög til styrktar Háskóla Íslands, Rauða kross­ins, Lands­bjargar og SÁÁ,“ segir Alma. Hún segir það algenga mön­tru að spilafíklar séu ómenntað fólk án vinnu. „Þetta eru oft mjög tekju­háir ein­stak­lingar, sem jafn­vel vinna í tveimur til þremur auka­störfum til að fjár­magna spilin,“ útskýrir hún. „Öll inn­koman fer í spila­kass­anna.“

Þeir veikustu noti spilakassa

Rann­sóknir benda til að á bil­inu sjö til tólf þús­und manns glími við alvar­lega spilafíkn. Alma segir að af þeim stundi um tveir þriðju hlutar spila­kassa. Það séu veik­ustu ein­stak­ling­arnir. Hún bendir á að spilafíkn sé við­ur­kenndur sjúk­dómur en þrátt fyrir það séu engin úrræði í boði, nema helg­ar­fyr­ir­lestrar hjá SÁÁ. „Þetta er hrylli­legur sjúk­dómur. Prófaðu að fara á þessa staði, það vill eng­inn tala við þig. Það skamm­ast sín allir fyrir að vera þarna. Þarna eru allir að spila fyrir grunn­fram­færsl­una sína.“

Hún gagn­rýnir harð­lega að neyð spilafíkla skuli af eig­endum Íslands­spila og Háskóla Íslands vera notuð með þessum hætti. „Við getum ekki unað við það lengur að það sé verið að níð­ast á spilafíklum í fjár­öfl­un­ar­skyni.“

Í hæsta áhættuflokki fyrir peningaþvætti

Rík­is­lög­reglu­stjóri segir mikla áhættu á að spila­kassar séu not­aðir til að þvætta fé.

Veruleg hætta er á því að spila­kassar geti verið not­aðir til að þvætta fé, að því er fram kemur í áhættu­mati Embættis rík­is­lög­reglu­stjóra vegna pen­inga­þvættis og fjár­mögn­unar hryðju­verka, sem gefið var út í fyrra. Þar segir meðal ann­ars að skortur á kröfu um gott orð­spor þeirra staða sem hýsa spila­kassa sé alvar­legur veiki­leiki vegna aðgengi þeirra til kaupa á vinn­ingsmiðum. Spila­kass­arnir eru í hæsta áhættu­flokki þegar kemur að pen­inga­þvætti.

Í áhættu­mat­inu segir að hægt sé að spila fyrir 100 þús­und krónur í senn, að hámarki, í spila­köss­unum, sem taki ein­ungis reiðufé. „En slíkt er hægt að end­ur­taka eins oft og vilji stendur til. Hægt er að prenta út vinn­ings­miða án þess að spilað hafi verið eða fáir leikir hafi verið spil­aðir.“

Fram kemur að hvorki Íslands­spil né Happ­drætti Háskóla Íslands geri sér­staka kröfu um orð­spor rekstr­ar­að­ila. Dæmi séu um að samn­ingum við rekstr­ar­að­ila hafi verið rift vegna van­skila eða brota á reglum, til dæmis að ung­menni hafi fengið að spila í köss­unum. Gagnrýnt er að engar reglur séu til staðar um útgreiðslu vinn­inga en algeng­ast sé að vinn­ingar séu greiddir út í reiðufé. Engin áreið­an­leika­könnun fari fram á vinn­ings­hafa þegar spila­staður greiðir út vinn­ing. Aðeins þurfi að gefa upp inn­lendan banka­reikn­ing og kenni­tölu þegar vinn­ingur sé greiddur út raf­rænt. „Ekki er neitt hámark varð­andi þá vinn­inga sem spila­stöðum er heim­ilt að greiða út en sé um mjög háa vinn­inga að ræða og spila­staður ekki með það mikla fjár­muni þarf vinn­ings­hafi að leysa út vinn­ing­inn hjá rekstr­ar­að­ila sem greiðir um 80-90% vinn­inga raf­rænt.“

Alls voru árið 2019, 493 „happ­drætt­is­vélar“ í notkun á 28 stöðum. Þá séu spila­staðir „söfn­un­ar­kassa“ Íslands­spila 76 tals­ins og kass­arnir þeirra séu 379. Samtals eru því 872 spila­kassar í notkun. Heild­ar­veltan var árið 2017 um 11,74 millj­arðar króna og greiddir vinn­ingar 8,1 millj­arður.

Í nið­ur­lagi áhættu­mats­ins, þegar kemur að spila­kössum, segir að veru­leg hætta sé á því að spila­kassar geti verið not­aðir til að þvætta fé. Pen­inga­þvætti í gegnum spila­kassa þarfn­ist ekki sér­fræði­þekk­ingar, sér­staks und­ir­bún­ings eða til­kostn­aðar. „Til­kynn­ingum til skrif­stofu fjár­mála­grein­inga lög­reglu hefur fjölgað síð­ast­liðin tvö ár og er grunur um að þessi leið hafi ítrekað verið notuð við þvætti. Samkvæmt fram­an­greindu er hætta í tengslum við spila­kassa mikil.“

Háskól­inn segir að starf­semi HHÍ byggi á lögum og reglu­gerðum settum á grund­velli þeirra.

HHÍ skapi ekki eymd í samfélaginu

Nýstofnuð Samtök áhuga­fólks um fjár­hættu­spila­vand­ann (SÁF) sendi fyr­ir­spurn til Háskóla Íslands í des­em­ber, þar sem spurt var um þá starf­semi Happ­drættis Háskóla Íslands sem snýr að spila­kössum. Hér fyrir neðan eru birtar tvær af þeim spurn­ingum SÁF og kaflar úr svörum háskól­ans.

SÁF: Telja stjórn­endur Háskóla Íslands það sam­fé­lags­lega ábyrgt að fjár­magna starf­semi sína með rekstri spila­kassa sem stuðla að spilafíkn og skapa eymd í sam­fé­lag­inu?

HÍ: Þrátt fyrir að sú vá sem spilafíkn felur í sér sé óum­deild og að þátt­taka í pen­inga­leikjum í happ­drætt­is­vélum geti leitt til ánetj­unar þá verður af hálfu Háskóla Íslands ekki tekið undir þær full­yrð­ingar að starf­semi happ­drætt­is­véla HHÍ skapi eymd í sam­fé­lag­inu. [Starf­semi stofn­un­ar­innar bygg­ist] á lögum og reglu­gerðum settum á grund­velli þeirra. Það er því á for­ræði Alþingis og stjórn­valda að ákveða hvort mæta skuli hús­næð­is­þörf háskól­ans með afrakstri af starf­semi HHÍ eða með öðru fé. Þegar litið er til frum­kvæðis HHÍ á sviði ábyrgrar spil­unar og aðgerða til að stemma stigu við spilafíkn […] verður að telja að gætt sé að þeirri sam­fé­lags­legu ábyrgð sem hvílir á stofn­unum þegar kemur að því að starf­rækja umrædda lög­bundna starf­semi.

SÁF: Í við­tal­inu [í Morg­un­blað­inu 27. nóv­em­ber sl.] upp­lýsir for­stjóri HHÍ að félagið óski eftir leyfi til að hefja fjár­hættu­spila­starf­semi á Inter­net­inu. Teljið þið sem stjórn­endur Háskóla Íslands þessi ummæli rétt­læt­an­leg […] sér­stak­lega í ljósi þess skaða sem slík starf­semi HHÍ veldur í sam­fé­lag­inu nú þegar?

HÍ: Tekið er undir þá afstöðu sem for­stjóri HHÍ hefur lýst […] að með því að veita leyf­is­höfum rekst­urs happ­drætt­is­véla og söfn­un­ar­kassa heim­ild til að starf­rækja á Netinu sömu pen­inga­leiki og þeir hafa leyfi til að bjóða upp á í happ­drætt­is­vélum sínum mætti veita lands­mönnum lög­mætan val­kost við þá ólög­mætu net­spilun sem við­gengst hér á landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fíknisjúkdómar

Þekkir fíknisjúkdóminn af eigin raun: „Öll fjölskyldan er í því að passa að drengurinn deyi ekki“
Innlent

Þekkir fíkni­sjúk­dóm­inn af eigin raun: „Öll fjöl­skyldan er í því að passa að dreng­ur­inn deyi ekki“

Sigmar Guð­munds­son Alþing­is­maður segir íslensk stjórn­völd van­meta stór­lega fíkni­sjúk­dóma í íslensku sam­fé­lagi, sem hafi fjár­hags­leg og heilsu­fars­leg áhrif inn í alla kima sam­fé­lags­ins. Sigmar, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, seg­ist þekkja fíkni­sjúk­dóma af eigin raun og þeim fylgi skömm. Hann hafi hins vegar kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að það sé skylda sín að tala um þennan mála­flokk,...
Telur Perry hafa fallið skömmu fyrir andlátið: „Nei, ég er Mattman!“
Menning

Telur Perry hafa fallið skömmu fyrir and­látið: „Nei, ég er Mattman!“

Fyrr­ver­andi kærasta Matthew Perry seg­ist gruna að Friends-stjarnan hafi fíkni­efna­bakslag fyrir dauða sinn. Matthew Perry, lést á dög­unum eins og allir vita, en hann drukkn­aði í heita potti sínum á heim­ili sínu í Los Angeles. Hinn 54 ára leik­ari opn­aði sig í fyrra um fíkni­efna­vanda sinni en hann hafði í fjöldi ára glímt við fíkn í lækna­skyld lyf og áfengi....
Diljá um fíknisjúkdóma: „455 færri innlagnir en ella urðu á árinu 2020“
Innlentfíknisjúkdómar

Diljá um fíkni­sjúk­dóma: „455 færri inn­lagnir en ella urðu á árinu 2020“

„Það hefur orðið mik­il­væg við­horfs­breyt­ing í sam­fé­lag­inu í þá átt að fíkni­sjúk­dómar eigi að vera með­höndl­aðir sem slíkir innan heil­brigð­is­kerf­is­ins.“ Þetta skrifar Diljá Mist Ein­ars­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í pistil á Vísi í morgun. Segir Diljá það ánægju­legt að meiri­hluti fjár­laga­nefndar hafi komið til móts við athuga­semdir SÁÁ en hljóðar til­laga um við­bót­ar­fram­lag upp á 120 millj­ónir króna. Í umsögn sem...
Innlentfíknisjúkdómar

Tolli vill lög­leiða fíkni­efni – næstu kyn­slóðir for­dæma fram­komu okkar við fólk með fíkni­sjúk­dóma

Hinn lands­þekkti list­mál­ari, Tolli Morthens, hefur sterkar skoð­anir um þá vinnu sem lögð hef­ur verið í til að breyta ferl­um í fang­els­um og við­horf­um fólks hér á landi til fanga. Hann var for­maður starfs­hóps sem kom með til­lög­ur að úr­bót­um; hafa marg­ar þeirra orðið að veru­leika. Tolli er and­stæð­ingur þeirrar refsi­menn­ing­ar sem við Íslend­ingar búum við; tel­ur bata­menn­ingu vera einu...
Hörð viðbrögð við niðurstöðu atkvæðagreiðslu um afglæpavæðingu: „Illt í hjartanu í dag“
Innlent

Hörð við­brögð við nið­ur­stöðu atkvæða­greiðslu um afglæpa­væð­ingu: „Illt í hjart­anu í dag“

Frumvarp þing­manna Pírata um afglæpa­væð­ingu vímu­efna­neyslu var fellt á Alþingi í nótt þegar 28 þing­menn greiddu atkvæði á móti frum­varp­inu, 18 þing­menn greiddu atkvæði með. Með frum­varp­inu var lagt til varsla á neyslu­skömmtum fíkni­efna yrði ekki lengur refsi­verð. Nið­ur­staða atkvæða­greiðsl­unnar hefur vakið mikli við­brögð og hefur mikil umræða um málið skap­ast á sam­fé­lags­miðlum í dag, not­endur Twitter hafa til að...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins