„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Natalie Portman svarar gagnrýninni – Segir hliðverði á öllum vígstöðvum

Natalie Portman svarar gagnrýninni – Segir hliðverði á öllum vígstöðvum
Mynd / EPA|Nöfn kvenn­anna sem voru ísaumuð í herða­slá Portman voru Lorene Scafaria (leik­stjóri Hustlers)

Yfir­lýs­ing banda­rísku leikkon­unnar Natalie Portman á Ósk­arsverð­laun­unum á sunnu­dag­inn hefur vakið mikla athygli en Portman klædd­ist herða­slá frá Dior með útsaum­uðum nöfnum fimm kven­kyns leik­stjóra sem henni finnst aka­demía Ósk­ars­ins hafa litið fram hjá.

Fimm karlar voru til­nefndir í flokki leik­stjóra á Óskarnum en engin kona. Með yfir­lýs­ingu sinni vildi Portman vekja fólk til umhugs­unar um hvernig er gjarnan litið fram hjá konum í kvik­mynda­brans­anum. Portman hlaut mikið hrós fyrir gjörn­ing­inn en einnig gagn­rýni.

Nöfn kvenn­anna sem voru ísaumuð í herða­slá Portman voru Lorene Scafaria (leik­stjóri Hustlers), Lulu Wang (leik­stjóri The Farewell), Greta Gerwig (leik­stjóri Little Women), Marielle Heller (leik­stjóri A Beauti­ful Day in the Neighborhood) og Melina Matsoukas (leik­stjóri Queen & Slim). Mynd / EPA

Leik­konan Rose McGowan er ein þeirra sem hefur gagn­rýnt Portman. Hún benti á að Portman sjálf hafi aðeins unnið með tveim­ur kven­kyns leik­stjór­um á ferli sín­um, að Portman sjálfri með­taldri.

McGowan birti færslu á Facebook og vakti athygli á mál­inu. Hún sagði Portman sjálfa vera vanda­málið og sagði gjörn­ing hennar vera „falskan stuðn­ing“. Hún vill sjá Portman og aðrar konur í hennar stöðu sýna stuðn­ing í verki. Margir hafa tekið undir með McGowan.


„Ótrúlega erfitt“ fyrir konur að kom­ast að

Nú hefur Portman svarað gagn­rýn­inni í yfir­lýs­ingu sem BBC birtir. Í yfir­lýs­ing­unni segir Portman gagn­rýn­ina eiga rétt á sér en bendir á ýmis verk­efni sem hún hefur tekið þátt í þar sem konur hafa verið við stjórn­völ­inn.

„Á mínum langa ferli hef ég sjaldan fengið tæki­færi til að vinna með kven­kyns leik­stjórum,“ segir Portman í yfir­lýs­ing­unni áður en hún telur svo upp nokkur dæmi.

Hún segir þá að það sé „ótrú­lega erfitt“ fyrir konur að kom­ast að í kvik­mynda­verum, að fá fjár­magn og kom­ast yfir aðrar hindr­anir sem verða á vegi kvenna í brans­anum.

Portman segir einnig erfitt fyrir kven­kyns leik­stjóra að koma kvik­mynd­unum sínum að á kvik­mynda­há­tíðum, að fá dreif­ingu og umfjöllun vegna hlið­varða (e. gatekeepers) sem eru á öllum víg­stöðvum.

„Ég hef reynt og ég mun halda áfram að reyna. Þó að ég hafi ekki náð árangri þá er ég bjart­sýn á að nýir tímar séu fram undan.“

Natalie Portman vakti athygli á því að fimm karl­ar voru til­nefnd­ir í flokki leik­stjóra á Ósk­arsverð­laun­unum en engin kona. Mynd / EPA
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

femínismi

Feminíski aðgerðarhópurinn Öfgar er hættur: „Við erum stoltar af okkar framlagi“
Innlent

Fem­iníski aðgerð­ar­hóp­ur­inn Öfgar er hættur: „Við erum stoltar af okkar fram­lagi“

Fem­iníski aðgerð­ar­hóp­ur­inn Öfgar er hættur. Stjórn­endur Öfga sendu frá sér til­kynn­ingu á Instagram þar sem sagt er frá því að hóp­ur­inn sé hættur. Hópurinn hefur inni­haldið ýmsar konur en sem dæmi má nefna um þær sem hafa komið fram undir nafni Öfga má nefna Þórhildi Gyðu Arn­ars­dóttur, Helgu Bene­dikts­dóttur, Ninnu Körlu Katrín­ar­dóttur, Huldu Hrund Guðrúnar Sig­munds­dóttur, Tönju Mjöll Ísfjörð Magn­ús­dóttur...
Femínismi – um hvað ræðir?
Skoðun

Salome Friðgeirsdóttir

Femín­ismi – um hvað ræðir?

„Femínisti er mann­eskja sem veit að jafn­rétti kynj­anna hefur ekki verið náð og vill gera eitt­hvað í því.“ Þessa skil­grein­ingu er að finna á heima­síðu Femínista­fé­lags­ins. Mikið hefur verið rætt um femín­isma síð­ustu ára­tugi, en hvað stendur þessi póli­tíska og hug­mynda­fræði­lega stefna fyrir? Einhvers staðar voru umræður á þessa leið: „þeir eru leið­in­legir og gera lítið úr konum með öfga...
„Ef þú kallar sjálfan þig ekki femínista og þú ert ekki femínisti, hvað ertu þá?“
Innlent

„Ef þú kallar sjálfan þig ekki femínista og þú ert ekki femínisti, hvað ertu þá?“

„Hvernig held­urðu í heil­indi þín sem femínisti, þegar það er auð­veld­ara að skil­greina sig opin­ber­lega sem femínista heldur en að gera það ekki?“ var spurn­ing sem níger­íski rit­höf­und­ur­inn og bar­áttu­konan Chimamanda Ngozi Adichie fékk, í opnum umræðum eftir fyr­ir­lestur sinn í Háskóla­bíói á föstu­dag­inn. „Virki­lega? Finnst þér í alvöru auð­veld­ara að skil­greina þig sem femínista heldur en að gera það...
Feminískar stúdínur knýja fram ókeypis tíðavörur fyrir stúlkur
Innlentfemínismi

Fem­inískar stúd­ínur knýja fram ókeypis tíða­vörur fyrir stúlkur

Þrjár tíundu bekkjar stúd­ínur sem saman stofn­uðu Femínista­fé­lag Grunn­skól­ans í Hvera­gerði og hrundu af stað styrkja­leit fyrir dömu­bindum og tíða­vörum síð­ast­liðið haust hafa sann­fært bæj­ar­stjórn um nauð­syn þess að bjóða ókeypis tíða­vörur í skól­anum og félags­mið­stöð­inni frá og með næsta hausti. Rannveig Arna Sig­ur­jóns­dóttir, sem lauk tíunda bekk nú í vor segir í við­tali við Frétta­blaðið að stelpur eigi ekki...
„Lúserar landsins“ reyna að stöðva samfarakennslu Sólborgar
Innlentfemínismi

„Lúserar lands­ins“ reyna að stöðva sam­fara­kennslu Sól­borgar

„Einhver segja útópía. Þetta er hins vegar 100% mögu­leg staða. Snýst bara um for­gangs­röðun fjár­magns og að drulla þessu af stað. Getið þið plís verið fólkið sem tekur þetta risa­stóra skref til að vernda næstu kyn­slóðir?“ tísti Sólborg Guð­brands­dóttir tón­list­ar­kona, fyr­ir­les­ari, bar­áttu­kona gegn kyn­ferð­is­legu ofbeldi og stofn­andi Instagram-síð­unnar Fávitar fyrir fáeinum dögum en tíst Sól­borgar rataði í fjöl­miðla og vakti...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“