„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Ég sagði af hverju í fokkinu haldið þið það?“

„Ég sagði af hverju í fokkinu haldið þið það?“

„Ég sé stundum að heili fólks er að springa þegar ég tala íslensku því það passar ekki inn í formið. Ég veit að þetta er ekki endi­lega illa meint en ég verð stundum pirruð.“

Þetta segir Fida Abu Libdeh í opin­skáu helg­ar­við­tali við Björk Eiðs­dóttur sem birt­ist í helg­ar­blaði Frétta­blaðs­ins í dag, en Fida flutt­ist til Íslands frá Palest­ínu þá sextán ára að aldri og lauk námi við Háskóla Íslands í orku- og umhverf­is­tækni­fræði.

Loka­verk­efnið vann hún ásamt Burkna Pálssyni, skóla­fé­laga sínum og skoð­uðu þau áhrif kís­ils á manns­lík­am­ans og hreins­un­ar­að­ferðir á kísli. Í kjöl­farið stofn­uðu skóla­fé­lag­arnir Geo Silica árið 2012, sem í dag fram­leiðir nátt­úru­leg íslensk fæðu­bót­ar­efni og hefur sett á markað fimm vörur.

Þarf að hefja flest samtöl á því hvaðan hún er hvort hún tali íslensku

Fyr­ir­tækið er í dag metið á 700 millj­ónir króna en Fida segir að því ofar sem hún klífi met­orða­stig­ann í þjóð­fé­lag­inu verði fyrir fram ákveðnar hug­myndir og for­dómar sem hún mætir því meiri. „Ég er í stjórn sam­taka sprota­fyr­ir­tækja og UN Women og bauð mig fram á dög­unum sem for­mann Félags kvenna í atvinnu­líf­inu.“

Þá fékk ég að heyra hversu flott það væri að fá ein­hvern af erlendum upp­runa. Ég var ekki að bjóða mig fram því ég er af erlendum upp­runa. Ég er athafna­kona.

„Who is the owner of the company?“

Fida segir frá eft­ir­minni­legu kvenna­kvöldi þar sem þau voru komin til að kynna vör­urnar og eig­in­leika þeirra þegar þrjár konur hafi gefið sig á tal við hana, hrósað vör­unum og innt Fidu eftir því hver ætti fyr­ir­tækið. „Ég segi að ég eigi það – þetta sé spin off frá loka­verk­efni mínu í háskóla. Hún seg­ist vita það að þaðan hafi hug­myndin komið en ítrekar spurn­ingu sína um hver eigi fyr­ir­tækið.

Ég segi aftur að það sé ég, ég sé eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins. Þá segir hún: „Who´s the owner of the company?“

Fida segir atvikið hafa verið auð­mýkj­andi og að henni hafi síst verið gleði í huga þegar konan bar upp spurn­ing­una um raun­veru­legt eign­ar­hald fyr­ir­tæk­is­ins á kvenna­kvöldi Geo-Silica. „Þvílíka nið­ur­læg­ingin fyrir mig, get­urðu ímyndað þér hvernig þér myndi líða?“

Aðspurð segir Fida þó að lít­ill munur sé á palest­ínskum og íslenskum konum, en palest­ínskar konur eru þekktar bar­áttu­konur hafa tekið mik­inn þátt í frels­is­bar­áttu Palest­ínu. Helsti mun­ur­inn sé sá að íslenskir karl­menn standi með kon­unum sínum. „Þar liggur mun­ur­inn,“ segir Fida jafn­framt.

Það er kannski skrýtið að segja það en stríðið í Palest­ínu hefur hjálpað konum þar mikið þar sem það hefur ýtt þeim framar. Þær eru í for­svari fyrir bar­áttu Palest­ínu og hefur sú stað­reynd breytt menn­ing­unni mikið.

Helg­ar­við­talið við Fidu Abu Libdeh má lesa HÉR

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

femínismi

Feminíski aðgerðarhópurinn Öfgar er hættur: „Við erum stoltar af okkar framlagi“
Innlent

Fem­iníski aðgerð­ar­hóp­ur­inn Öfgar er hættur: „Við erum stoltar af okkar fram­lagi“

Fem­iníski aðgerð­ar­hóp­ur­inn Öfgar er hættur. Stjórn­endur Öfga sendu frá sér til­kynn­ingu á Instagram þar sem sagt er frá því að hóp­ur­inn sé hættur. Hópurinn hefur inni­haldið ýmsar konur en sem dæmi má nefna um þær sem hafa komið fram undir nafni Öfga má nefna Þórhildi Gyðu Arn­ars­dóttur, Helgu Bene­dikts­dóttur, Ninnu Körlu Katrín­ar­dóttur, Huldu Hrund Guðrúnar Sig­munds­dóttur, Tönju Mjöll Ísfjörð Magn­ús­dóttur...
Femínismi – um hvað ræðir?
Skoðun

Salome Friðgeirsdóttir

Femín­ismi – um hvað ræðir?

„Femínisti er mann­eskja sem veit að jafn­rétti kynj­anna hefur ekki verið náð og vill gera eitt­hvað í því.“ Þessa skil­grein­ingu er að finna á heima­síðu Femínista­fé­lags­ins. Mikið hefur verið rætt um femín­isma síð­ustu ára­tugi, en hvað stendur þessi póli­tíska og hug­mynda­fræði­lega stefna fyrir? Einhvers staðar voru umræður á þessa leið: „þeir eru leið­in­legir og gera lítið úr konum með öfga...
„Ef þú kallar sjálfan þig ekki femínista og þú ert ekki femínisti, hvað ertu þá?“
Innlent

„Ef þú kallar sjálfan þig ekki femínista og þú ert ekki femínisti, hvað ertu þá?“

„Hvernig held­urðu í heil­indi þín sem femínisti, þegar það er auð­veld­ara að skil­greina sig opin­ber­lega sem femínista heldur en að gera það ekki?“ var spurn­ing sem níger­íski rit­höf­und­ur­inn og bar­áttu­konan Chimamanda Ngozi Adichie fékk, í opnum umræðum eftir fyr­ir­lestur sinn í Háskóla­bíói á föstu­dag­inn. „Virki­lega? Finnst þér í alvöru auð­veld­ara að skil­greina þig sem femínista heldur en að gera það...
Feminískar stúdínur knýja fram ókeypis tíðavörur fyrir stúlkur
Innlentfemínismi

Fem­inískar stúd­ínur knýja fram ókeypis tíða­vörur fyrir stúlkur

Þrjár tíundu bekkjar stúd­ínur sem saman stofn­uðu Femínista­fé­lag Grunn­skól­ans í Hvera­gerði og hrundu af stað styrkja­leit fyrir dömu­bindum og tíða­vörum síð­ast­liðið haust hafa sann­fært bæj­ar­stjórn um nauð­syn þess að bjóða ókeypis tíða­vörur í skól­anum og félags­mið­stöð­inni frá og með næsta hausti. Rannveig Arna Sig­ur­jóns­dóttir, sem lauk tíunda bekk nú í vor segir í við­tali við Frétta­blaðið að stelpur eigi ekki...
„Lúserar landsins“ reyna að stöðva samfarakennslu Sólborgar
Innlentfemínismi

„Lúserar lands­ins“ reyna að stöðva sam­fara­kennslu Sól­borgar

„Einhver segja útópía. Þetta er hins vegar 100% mögu­leg staða. Snýst bara um for­gangs­röðun fjár­magns og að drulla þessu af stað. Getið þið plís verið fólkið sem tekur þetta risa­stóra skref til að vernda næstu kyn­slóðir?“ tísti Sólborg Guð­brands­dóttir tón­list­ar­kona, fyr­ir­les­ari, bar­áttu­kona gegn kyn­ferð­is­legu ofbeldi og stofn­andi Instagram-síð­unnar Fávitar fyrir fáeinum dögum en tíst Sól­borgar rataði í fjöl­miðla og vakti...
Ásdís birtir skilaboð sín við Rikka G og sakar hann um rasisma: „Fyrsta lagi lýgur hann“
Innlentfemínismi

Ásdís birtir skila­boð sín við Rikka G og sakar hann um ras­isma: „Fyrsta lagi lýgur hann“

Það vakti tals­verða athygli í vik­unni þegar dag­skrá­stjóra FM957 Ríkharð Óskar Guðnason, oft­ast þekktur sem Rikki G, kvart­aði lýsti því yfir að lagið WAP með Cardi B og Megan Thee Stallion væri við­bjóðs­legt. Málið vakti athygli á DV en Rikki G lét orð sín falla í Brennsl­unni á FM957. „Cardi B er ekki á leið­inni hingað í spilun með þetta...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins