„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Rafbílarnir“ í fyrsta sinn í meirihluta seldra bíla

„Rafbílarnir“ í fyrsta sinn í meirihluta seldra bíla
Helga Katrín Stef­áns­dóttir við drag­ster­inn Batman. Ingólfur Arn­ars­son er eig­andi þessa trylli­tækis. Vélin er 11

Spreng­ing hefur orðið í sölu raf­bíla. Í jan­úar voru nýskráðir fólks­bílar sem að öllu leyti eða hluta til voru knúnir raf­magni í fyrsta sinn fleiri en hefð­bundnir bensín- og dísil­bílar sam­an­lagt. For­stjóri Brim­borgar á von á enn meiri sölu raf­bíla á þessu ári. Fjöl­margir val­kostir eru að koma á markað.

Páll Þor­steins­son hjá Toyota segir að fram­leið­and­inn standi öðrum framar þegar kemur að með­al­tals losun koltví­sýr­ings.

Í jan­úar urðu þau tíma­mót í nýskrán­ingum fólks­bíla á Íslandi, að bílar knúnir raf­magni voru í fyrsta skipti fleiri en bílar sem aðeins eru knúnir bens­íni og dísilolíu. Fyrir fimm árum, í jan­úar, var hlut­fall hefð­bund­ina bensín- og dísil­bíla sam­an­lagt 94%. Útlit er fyrir að spreng­ing verði í sölu raf­bíla á þessu ári, sam­hliða stór­auknu fram­boði.

Egill Jóhanns­son, for­stjóri Brim­borgar, bendir á að þegar hybrid-bíl­arnir séu und­an­skildir og bara horft til sölu á þeim raf­bílum sem hægt er að hlaða (raf­bílar og tengilt­vinn­bílar) hafi hlut­fall seldra fólks­bíla í jan­úar verið 37,4%. Það hlut­fall hafi aldrei verið hærra. Hann á von á enn meiri breyt­ingum eftir því sem líður á árið. „Ég yrði ekki hissa ef í lok árs væri hlut­fallið í kringum 50%“.

Sala á raf­bílum hefur tekið kipp á síð­ustu mán­uðum, þó bíla­sala hafi almennt dreg­ist saman. Í jan­úar voru 133 bens­ín­bílar nýskráðir. Dísil­bíl­arnir voru líka 133 en hreinir raf­bílar voru 131. Hreinir raf­bílar voru 18% nýskráðra bíla í nýliðnum mán­uði. Hlut­fallið í jan­úar í fyrra var 11% en í hitt­ið­fyrra aðeins 2%. Aukn­ingin er því afar hröð. Páll Þor­steins­son, upp­lýs­inga­full­trúi Toyota á Íslandi, bendir í sam­tali við Mannlíf á að hlut­föll í jan­úar gefi ekki alveg rétta heild­ar­mynd fyrir árið. Bíla­leigur, sem flytja inn mik­inn fjölda nýrra bíla ár hvert, flytji ekki inn bíla í jan­úar – heldur á vorin.

Hér sést hvernig hlut­deild raf­bíla (dökk­grænt), tengilt­vinn- og tvinn­bíla (ljós­grænt) hefur auk­ist síð­ustu ár. Hér er miðað við nýskráða fólks­bíla síð­ustu sex jan­ú­ar­mán­uði. Eins og sést voru hefð­bundnir bensín- og dísil­bílar í minni­hluta í fyrsta sinn í jan­úar síð­ast­liðnum.

Stóraukið framboð

Nú í upp­hafi árs hafa kaup­endur nýrra bíla geta valið úr 23 teg­undum hreinna raf­bíla frá 15 fram­leið­endum. Und­ir­gerð­irnar eru 64. Þessir bílar kosta á bil­inu 3-13,4 millj­ónir króna. Egill segir að það hafi verið vitað lengi að árið 2020 yrði árið sem sala raf­bíla færi á flug. Hann bendir á að Brimborg hafi getað boðið fimm gerðir raf­bíla árið 2019. Í lok þessa árs verður hægt að velja á milli 19 teg­unda raf­drif­inna bíla. Það sem hafi til þessa staðið auk­inni sölu raf­bíla fyrir þrifum hafi verið hátt inn­kaups­verð, sem hafi nú verið mildað með íviln­unum og auknu drægi bíl­anna, lítið úrval af raf­bílum og fá ein­tök í boði frá fram­leið­endum. Þá hafi skort inn­viði um allt land, en þar má nefna hleðslu­stöðvar.

Þess má geta að í nóv­em­ber úthlut­aði Orku­sjóður styrkjum til upp­setn­ingar 43 nýrra hrað­hleðslu­stöðva um land allt. Þegar þær hafa verið settar upp eru stöðv­arnar 146 tals­ins, en á sumum þeirra er hægt að hlaða fleiri en einn bíl í senn. Þessar nýju eru 150 kíló­vött en eldri stöðvar eru flestar 50 eða 22 kíló­vött. Á vef Félags íslenskra bif­reiða­eig­enda má sjá gagn­virkt kort af stöðv­unum og hvaða teg­undir stöðva eru á hverjum stað.

Hertari reglur um losun

Spurður hvað sé að breyt­ast núna, í ljósi stór­auk­innar sölu raf­bíla, svarar Egill því til að ESB hafi um ára­mótin inn­leitt reglur sem kveða á um að með­al­l­osun seldra bíla innan EES, frá hverjum bíla­fram­leið­anda, megi ekki vera meiri en 95 grömm af koltví­sýr­ingi á hvern ekinn kíló­metra – að við­lögðum „gríð­ar­legum sektum.“ Þetta hafi í för með sér að hefð­bundnir bílar þurfi öfl­ugri meng­un­ar­varnir og tækni til að minnka losun. Nú sé kom­inn fjár­hags­legur hvati til að þróa og fram­leiða raf­bíla, hreina og tengit­vinn­bíla. Þó þeir séu dýrir í fram­leiðslu sé það betri kostur fyrir fram­leið­endur en að fá sektir. „Við þetta verður spreng­ing í úrvali bíla sem koma á þessu ári og kom­andi árum,“ segir Egill.

Toyota hefur selt flesta bíla árlega á Íslandi í ára­tugi. Páll bendir á að Toyota sem fram­leið­andi sé vel í stakk búinn til að mæta þeim kröfum sem gerðar séu. Koltví­sýr­ingslosun bíla frá Toyota sé lægri en frá öðrum fram­leið­endum. Árið 2018 los­uðu bílar frá Toyota að jafn­aði 99,9 grömm af koltví­sýr­ingi á hvern ekinn kíló­metra, sam­kvæmt úttekt Jato Dynamics. Peugeot og Citroen komu þar á eftir með tæp 108 grömm. Til sam­an­burðar má nefna að Mazda los­aði 135,2 grömm að með­al­tali en Mercedes-Benz tæp 140. Fram­leið­endur eiga því, miðað við 2018, mis­langt í land að standa undir þeim við­miðum sem EES hefur sett.

Hann bendir líka á að inn­viðir fyrir raf­bíla séu að styrkj­ast, með aðkomu stjórn­valda. Þá sé inn­kaups­verð að lækka og dragi bíl­anna að batna. „Þannig að kaup­enda­hóp­ur­inn er að stækka.“ Aðspurður segir hann að nú séu í boði miklu fleiri bílar sem henti þörfum íslenskra kaup­enda. „Kaup­end­urnir voru alltaf til staðar. Það vant­aði hins vegar bíla sem upp­fylltu þarf­irnar.“ Nú sé það að breyt­ast hratt.

Rafhlöðurnar mældar við vetraraðstæður

Þær 64 und­ir­gerðir af raf­bílum, sem eru í boði á Íslandi í upp­hafi árs, draga að með­al­tali 359 kíló­metra, sam­kvæmt því sem fram­leið­endur þeirra gefa upp. Tesla Model S kemst lengst, eða 610 kíló­metra.

Í umræðu um raf­bíla hefur drægi verið áber­andi, eins og Egill kemur inn á. Ný könnun sem norskir bíla­blaða­menn fram­kvæmdu við vetr­ar­að­stæður í jan­úar leiddi í ljós að umrædd Tesla Model S komst 470 kíló­metra á hleðsl­unni, eða 77% af upp­gefnu drægi. Almennt reynd­ust raf­bíl­arnir kom­ast á bil­inu 71% (Jaguar I-Pace) til 90% (Volkswagen e-Up! og Hyundai Kona) af upp­gefnu drægi við hita­stig á bil­inu +3 til -6 gráður.
Einn vin­sæl­asti raf­bíll síð­ustu ára, Nissan Leaf, er af fram­leið­anda í dag gef­inn upp fyrir að kom­ast 270 eða 385 kíló­metra, eftir því hvort 40 eða 62 kílóvatta raf­hlaða er valin. Í norska vetr­ar­próf­inu reynd­ist 40 kílóvatta bíll­inn kom­ast 209 kíló­metra en sá með stærri raf­hlöð­inni 299 kíló­metra á einni hleðslu.

Nægt framboð af hreinni orku

„Árið byrjar mjög vel þegar kemur að sölu þess­ara öku­tækja, og Mitsu­bishi Outlander er áfram mest seldi tengilt­vinn­bíll­inn,“ segir Friðbert Frið­berts­son, for­stjóri Heklu. Hann bendir á að Hekla sé með 38% mark­aðs­hlut­deild í flokki vist­vænna bíla. Hekla selur einnig Audi e-tron, sem var mest seldi raf­bíll­inn í jan­úar.

Friðbert segir að fram undan sé spenn­andi ár þegar kemur að raf­magns­bílum. Kaup­endur séu mjög áhuga­samir og margir góðir val­kostir í boði. Hann segir að skyndi­leg aukin sala raf­magns­drif­inna bíla megi að nokkru leyti skýra með stór­auknu fram­boði á bílum. Hann tekur líka fram að íviln­anir stjórn­valda í þágu raf­magns­bíla, rekstr­ar­hag­kvæmni bíl­anna sjálfra og umhverf­is­legur ávinn­ingur þess að nota hreina inn­lenda orku til að knýja bíl­inn, séu allt ástæður sem vinna í þá átt að ýta undir sölu raf­bíla.

„Ísland er sér­stak­lega vel fallið til að raf­væða sam­göngur þar sem dag­legur með­alakstur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er innan við 40 kíló­metrar og nægt fram­boð er af inn­lendri end­ur­nýt­an­legri orku,“ segir hann.

Rafbíll eða ekki rafbíll?

Ýmis hug­tök hafa verið notuð til að segja til um hvernig bílar nota raf­magn sem orku­gjafa. Stundum er talað um nýorku­bíla en oftar um raf­bíla, teg­ilt­vinn­bíla eða tvinn­bíla. Þá eru einnig í umferð skamm­staf­anir á erlendum heitum. Hér má sjá skil­grein­ingar auk skýr­inga­myndar sem útskýrir mun­inn.

BEV – Raf­magns­bíll (e. Battery Electric Vehicle)

PHEV – Tengilt­vinn­bíll (e. Plug-in Hybrid Electrice Vehicle)

HEV – Tvinn­bíll (e. Hybrid Electric Vehicle)

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins