„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Stefán fær starf – Mannanafnanefnd með múður

Stefán fær starf – Mannanafnanefnd með múður

Góð vika – Stefán Eiríksson

Stefán Eiríks­son svífur vafa­laust um á bleiku skýi enda nýr útvarps­stjóri. Eftir eitt leyni­leg­asta ráðn­ing­ar­ferli sem sögur fara af („not!“) kunn­gjörði stjórn Rík­is­út­varps­ins valið í vik­unni og dró ekki dul á að það hefði verið erfitt en frum­kvöðla­starf Stefáns á sviði upp­lýs­inga­gjafar lög­reglu um sjálfa sig á sam­fé­lags­miðlum hefði verið eitt af því sem réði því að hann fékk stöð­una. Skiptar skoð­anir eru á ráðn­ing­unni og sagði Páll Bald­vins­son rit­höf­undur Stefán hafa eitt sér til ágætis. Hann hefði aldrei nálægt fjöl­miðlum komið nema sem við­mæl­andi, aldrei unnið á frétta­miðli, aldrei komið nálægt dag­skrár­gerð, hvorki fyrir hljóð­varp né sjón­varp, aldrei skipu­lagt dag­skrá eða stýrt henni. „Hann er því alveg óreyndur til þessa starfs, en gangi honum vel því verk­efnið er stórt og flókið.“ Reyndar er ekki alfarið rétt að Stefán hafi ekki starfað við fjöl­miðla, því hann vann m.a. sem sum­ar­afleys­inga­maður á Mogganum þegar hann var í lög­fræði­námi og sú dýr­mæta reynsla á vafa­laust eftir að koma að góðum notum í nýja djobb­inu.

Slæm vika – Mannanafnanefnd

Meðlimir manna­nafna­nefndar hafa ekki átt sjö dag­ana sæla eftir að upp komst að nefndin hafn­aði beiðni for­eldra um að fá að nefna barn sitt Lúsifer. Fannst sumum heldur betur skjóta skökku við að þessu fal­lega nafni, með sínar Bibl­íu­legu skír­skot­anir, væri hafnað á sama tíma og nefndin sam­þykkti River, Ull og Haföldu eins og ekk­ert sé. Í kjöl­farið hefur nefndin verið sökuð um geð­þótta­á­kvörðun og margir sem hrein­lega furða sig á því, eins og svo oft áður, hvers vegna þurfi yfir höfuð að halda úti svona púka­legu batt­eríi. Fólk eigi að fá að ráða sínum nöfnum sjálft og barn­anna sinna, ekki eitt­hvert ryk­fallið apparat sem starfi eftir máls­fars­reglum sem hafi lítið breyst frá mið­öldum. Ein­hverjir hafa þó stigið fram og gripið til varna fyrir nefnd­ina með ekki ósvip­uðum rökum og í laga­texta Mem­físmafí­unnar sem söng um árið: „Það verður að vera stjórn á manna­nöfnum — ann­ars myndu allir bara heita Hitler.“ Og hvert værum við komin þá, spyr þetta góða fólk. Já, það er spurn­ing.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins