„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Leggja til að búinn verði til launasjóður fyrir íslenskt afreksíþróttafólk

Leggja til að búinn verði til launasjóður fyrir íslenskt afreksíþróttafólk
Helga Vala Helga­dóttir.

Sjö þing­menn Sam­fylk­ing­ar­innar hafa lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um launa­sjóð íslensks afrek­s­í­þrótta­fólks.

Með til­lög­unni er lagt til að mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra verði falið í sam­ráði við fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra að und­ir­búa og leggja fram frum­varp til laga um launa­sjóð íslensks afrek­s­í­þrótta­fólks.

Flutn­ings­menn til­lög­unnar eru Helga Vala Helga­dóttir, Albertína Frið­björg Elí­as­dóttir, Ágúst Ólafur Ágústs­son, Guðjón S. Brjáns­son, Guð­mundur Andri Thorsson, Logi Ein­ars­son, Oddný G. Harð­ar­dóttir.

Til­gangur launa­sjóðs­ins yrði að skapa afrek­s­í­þrótta­fólki í land­inu fjár­hags­legan grund­völl til iðk­unar á íþrótt sinni.

Í til­lög­unni segir að horfa mætti til launa­sjóðs stór­meist­ara í skák og launa­sjóða lista­manna, þar sem starfs­laun eru greidd umsækj­endum að ákveðnum skil­yrðum upp­fylltum.

„Með því að greiða afrek­s­í­þrótta­fólki starfs­laun aukast rétt­indi og öryggi þess. Mik­il­vægt er að við und­ir­bún­ing og við útfærslu starfs­launa­sjóðs afrek­s­í­þrótta­fólks verði unnið náið með Íþrótta- og Ólymp­íu­sam­bandi Íslands og sveit­ar­fé­lög­unum,“ segir í til­lög­unni.

Áratug á eftir jafnöldrum sínum

Umræða um rétt­indi og aðbúnað íþrótta­manna hefur verið hávær í sam­fé­lag­inu að und­an­förnu. Hópur íþrótta­manna afhenti í des­em­ber Lilju Alfreðs­dóttur mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra áskorun um að vinna í launa- og rétt­inda­málum íslensks afrek­s­í­þrótta­fólks.

Mannlíf ræddi fyrr í mán­uð­inum við þrjá íslenska afrek­s­í­þrótta­menn í ein­stak­lings­greinum, sem hafa þurft að fóta sig í sam­fé­lag­inu í nýju hlut­verki eftir far­sælan íþrótta­feril. Þeir eiga það allir sam­eig­in­legt að hafa rekið sig á hindr­anir sem eru beinar afleið­ingar íþrótta­fer­ils þeirra, sér­stak­lega hvað varðar rétt­indi sem launa­fólki þykja sjálf­sögð. Þar má nefna rétt til fæð­ing­ar­or­lofs, líf­eyr­is­rétt­indi og rétt­indi sem fylgja stétta­fé­lags­að­ild.

Íþrótta­menn­irnir sem Mannlíf ræddi við eru Hrafn­hildur Lúth­ers­dóttir, afreks­kona í sundi og tvö­faldur Ólymp­íu­fari Þormóður Árni Jónsson júd­ó­kappi og Ragna Ing­ólfs­dóttir bad­mint­on­kona.

Þau lýstu öll þeirri upp­lifun að vera ára­tug á eftir jafn­öldrum sínum, hvað áunnin rétt­indi og starfs­frama varðar, nú þegar fer­ill­inn er á enda.

Sjá einnig: Ragna um fjár­hags­á­hyggj­urnar eftir að ferl­inum lauk: „Þetta var sárt, eftir allt sem maður lagði á sig“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins