„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Gunnar Jóhann ákærður fyrir manndráp af ásetningi

Gunnar Jóhann ákærður fyrir manndráp af ásetningi
Bræð­urnir Gunnar Jóhann og Gísli Þór voru áður góðir vinir og unnu meðal ann­ars saman við sjó­mennsku.

Í dag gaf hér­aðs­sak­sókn­ar­inn í Troms og Finnmörk í Noregi út ákæru á hendur Gunnari Jóhanni Gunn­ars­syni, þar sem honum er gefið að sök mann­dráp af ásetn­ingi (for­sett­lig drap).

Gunnari Jóhanni er gefið að sök að hafa farið inn á heim­ili Gísla Þórs Þór­ar­ins­sonar, hálf­bróður hans, klukkan fimm að morgni 27. apríl 2019 í Mehamn í Finnmörk í Noregi, með hagla­byssu af hlaup­vídd 12 ga., þar sem þeir hálf­bræður tók­ust á um með vopnið með eim afleið­ingum að tvö skot hlupu af því og hafn­aði annað þeirra í vinstra læri Gísla Þórs með þeim afleið­ingum að honum blæddi út á skömmum tíma.

Mbl.is greinir frá.

Ákæran er í sex liðum og er Gunnar Þór í fjórum þeirra (lið 3 til 6) ákærður fyrir hús­brot á heim­ili hálf­bróður síns, brot á nálg­un­ar­banni gagn­vart honum, að hafa tekið bif­reið hans ófrjálsro hendi eftir atvikið og ekið henni undir áhrifum áfengis og amfetamíns.

Í öðrum lið ákærunnar er Gunnari Jóhanni gefið að sök að hafa haft í hót­unum við Gísla Þór dag­ana fyrir and­lát hans, og eins við Elenu Undeland barns­móður og fyrrum eig­in­konu Gunnars Jóhanns. En til­efni átaka þeirra hálf­bræðra var að Elena og Gísli Þór urðu par, eftir skilnað Elenu og Gunnars Jóhanns.

Í við­tali við Mbl. segir Bjørn Gulstad verj­andi Gunnars Jóhanns að: „Þunga­miðjan í þessum rétt­ar­höldum verða mörkin á milli mann­dráps af ásetn­ingi og mann­dráps af gáleysi.“

Rétt­ar­höldin munu hefj­ast mánu­dag­inn 23. mars við Hér­aðs­dóm Vadsø, en Gunnar Jóhann hefur lýst sig sekan um mann­dráp af gáleysi.

Heiða Þórð­ar­dóttir hálf­systir Gunnars Jóhanns og Gísla Þórs var í for­síðu­við­tali Mannlífs 17. ágúst í fyrra og sagði hún að atburð­ur­inn hefði tvístrað fjöl­skyld­unni. Viðtalið við hana má lesa í heild sinni hér: „Ég get ekki hatað bróður minn“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mehamn

Fréttaskýring: Það sem við vitum á þessari stundu um harmleikinn í Noregi
Innlentmehamn

Frétta­skýr­ing: Það sem við vitum á þess­ari stundu um harm­leik­inn í Noregi

Gunnar Jóhann Gunn­ar­son, sem tal­inn er hafa orðið Gísla Þór Þór­ar­ins­syni að bana í Mehamn í Noregi, var yfir­heyrður mið­viku­dag­inn 1. maí. Í yfir­heyrsl­unni neit­aði hann sök. Lögmaður Gunnars, Vidar Zahl Arntzen, segir í sam­tali við RÚV að skjól­stæð­ingur sinn telji að um slys sé að ræða. Hann hafi aldrei ætlað sér að skaða bróður sinn.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins