„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Manndráp oftast framin af vini eða ættingja

„Mann­dráps­mál eru að öllu jöfnu ástríðu­tengd. Þetta eru þau mál sem snerta okkur dýpst,“ segir Helgi Gunn­laugs­son, afbrota­fræð­ingur og pró­fessor í félags­fræði við Háskóla Íslands. Fregnir bár­ust í vik­unni af mann­dráps­máli á Spáni þar sem Íslend­ingar eiga í hlut. Guð­mundur Freyr Magn­ús­son, sem hefur á bak­inu langan afbrota­feril á Íslandi, er í haldi vegna and­láts Sverris Arnar Olsen um síð­ustu helgi. Sverrir var sam­býl­is­maður móður Guð­mundar og því stjúp­faðir hans.

Manndráp oftast framin af vini eða ættingja
Mynd / Skjáskot RÚV

Mannlíf rifjar í dag upp átta mann­dráps­mál sem upp hafa komið allra síð­ustu ár, eða frá árinu 2016. Til við­bótar er fjallað um eitt mál þar sem ger­and­inn var dæmdur fyrir stór­fellda lík­ams­árás sem leiddi til dauða þol­and­ans.

Gerandi oft vinur eða fjölskyldumeðlimur

Helgi bendir á að í flestum til­vik­unum, eins og jafnan í mann­dráps­málum, hafi ger­andi og þol­andi átt í nánu vina- eða fjöl­skyldu­sam­bandi. Oft sé um fjöl­skyldu­harm­leik að ræða.

„Fjöl­skyldu­tengsl eiga við í um helm­ing mann­dráps­mála erlendis,“ útskýrir Helgi og bætir við að hlut­fallið sé áþekkt á Íslandi; ger­andi og þol­andi séu tengdir fjöl­skyldu­böndum í um helm­ingi til­vika.

Málið sem kom upp á Spáni um síð­ustu helgi er annað mann­dráps­málið í röð þar sem Íslend­ingur er grun­aður um að verða öðrum Íslend­ingi að bana á erlendri grundu. Gunnar Jóhann Gunn­ars­son situr í varð­haldi í Noregi, grun­aður um að hafa drepið hálf­bróður sinn seint í apríl í fyrra. Búist er við að málið fari fyrir dóm í Noregi í febr­úar.

Nor­egs­málið er ekki eina nýlega dæmið um að maður verði bróður sínum að bana en þess má geta að Gunnar hefur játað að hafa valdið dauða bróður síns. Hann hefur þó full­yrt að um óhapp hafi verið að ræða.

Skemmst er að minn­ast máls­ins sem upp kom á Gýgj­ar­hóli í Árnes­sýslu vorið 2018. Þá myrti Valur Lýðsson Ragnar bróður hans eftir að þeir höfðu setið að drykkju á heim­ili Ragnars. Fyrir það var hann dæmdur til 14 ára fang­els­is­vistar í Lands­rétti í fyrra.

Annað mál, þar sem nánir fjöl­skyldu­með­limir áttu í hlut, kom upp á Akranesi vorið 2016, en talið er að eig­in­maður hafi þar drepið eig­in­konu sína áður en hann svipti sig lífi.

Lesa Mannlíf

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins