„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Aðeins hluti fjármuna Ofanflóðasjóðs nýttur til uppbyggingar ofanflóðavarna: „Það heita einfaldlega svik“

Aðeins hluti fjármuna Ofanflóðasjóðs nýttur til uppbyggingar ofanflóðavarna: „Það heita einfaldlega svik“
|

Fátt er jafn ofar­lega í hugum fólks og umræð­unni þessa vik­una eins og snjó­flóðin sem féllu á Flateyri og Suð­ur­eyri á þriðju­dags­kvöldið.

Í leið­ara Mannlíf í dag spyr Friðrika Ben­ón­ýs­dóttir um hvað hafi orðið um fjár­muni Ofan­flóða­sjóðs.

„Það skýtur því óneit­an­lega skökku við þegar fram kemur í umfjöllun um ham­far­irnar að aðeins lítið brot af þeim pen­ingum sem hús­eig­endur greiða í formi skatts sem nýta á til ofan­flóða­varna skuli skila sér í upp­bygg­ingu slíkra varna. Og enn óhuggu­legri verður sú stað­reynd þegar í ljós kemur að Halldór Hall­dórs­son, sem á sæti í ofan­flóða­nefnd, hefur árum saman reynt að fá stjórn­mála­menn til að gera brag­ar­bót í þessum efnum en talað fyrir daufum eyrum alþing­is­manna.“

Segir Friðrika óásætt­an­legt að skatt­ur­inn sem hús­eig­endur hafi greitt í góðri trú um að þeir séu að tryggja sig fjár­hags­lega sé not­aður í eitt­hvað annað. „Það heita ein­fald­lega svik.“ Bætir hún við að svo virð­ist sm eng­inn stjórn­mála­maður virð­ist geta gefið skýr­ingu á fjár­mun­ina, því og bendir á að aðeins einn þriðji af þeim fjár­munum sem skila sér í Ofan­flóða­sjóð á ári hverju er nýttur til upp­bygg­ingar ofan­flóða­varna. Kemur það fram í við­tali við Halldór í Frétta­blað­inu.

„Það er ansi merk­ing­ar­laust að senda góðar kveðjur og gefa yfir­lýs­ingar í þá átt að við séum öll Vest­firð­ingar á degi eins og þessum þegar við blasir sú stað­reynd að þrátt fyrir laga­setn­ingu og skatt sem tryggja á upp­bygg­ingu varna draga þing­menn lapp­irnar og virð­ast, að sögn Halldórs, hafa sára­lít­inn áhuga á að fram­fylgja stefn­unni sem mörkuð var eftir ham­far­irnar 1995.“

Kippt aftur til ársins 1995

Atburðir vik­unnar rifja upp atburði árs­ins 1995 þegar snjó­flóð féllu á Flateyri og Súðavík og kost­uðu mörg manns­líf, auk eigna­tjóns.

„Snjó­flóðin höfðu djúp áhrif á alla þjóð­ina og á and­ar­taki var okkur kippt aftur til árs­ins 1995 og hinna hræði­legu daga þegar snjó­flóðin á Flateyri og Súðavík kost­uðu fjölda manns­lífa,“ segir Friðrika og bætir vð að eng­inn geti hugsað þá hugsun til enda hvernig farið hefði ef varn­ar­garð­arnir væru ekki til staðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

pistlar

Á hvern skrifast þetta?
Skoðun

Aðsend grein

Á hvern skrif­ast þetta?

Davíð Már Sig­urðs­son skrifar Skólamál hafa verið á dag­skrá, eða svona hér um bil. Þau fá yfir­leitt sviðs­ljós í kringum kjara­bar­áttu kenn­ara. Eitt af helstu bit­bein­unum er hvað þetta er ofboðs­lega dýrt. Hlutir sem hafa borið á góma í því sam­hengi tengj­ast grunn­skól­unum. Bent hefur verið á lækkun kennslu­skyldu, yfir­gengi­legum und­ir­bún­ings­tíma, fjölda kenn­ara á hvern nem­anda og allur sá djass…....
Yfirlýsing frá starfsfólki Breiðholtsskóla vegna fréttaflutnings af ofbeldi ungmenna
Skoðun

Aðsend grein

Yfir­lýs­ing frá starfs­fólki Breið­holts­skóla vegna frétta­flutn­ings af ofbeldi ung­menna

Skólinn okkar, Breið­holts­skóli, er góður skóli með vina­legan brag og skóla­menn­ingu. Í skól­anum er öflug frí­mín­útna­gæsla. Verði gæslu­fólk sjálft vitni að stríðni eða annarri óæski­legri hegðun, eða barn lætur vita af henni, eru öll slík mál tekin föstum tökum eins og annar ágrein­ingur barna í frí­mín­útum. Við vinnum úr öllum málum sem geta á ein­hvern hátt flokk­ast sem áreitni eða...
Hvað segir sjálfsstæðisstefnan um lýðræði og frelsi?
Skoðun

Aðsend grein

Hvað segir sjálfs­stæð­is­stefnan um lýð­ræði og frelsi?

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er lýð­ræð­is­flokkur sem er fylgj­andi vald­dreif­ingu í þjóð­fé­lag­inu. Hann setur traust sitt og trú á hverja mann­eskju í þeirri vissu, að fái frum­kvæði, fram­kvæmda­þróttur og kapp hvers og eins notið sín, miði sam­fé­lag­inu öllu skjót­ast áfram. Stefna flokks­ins mið­ast við það, að fólk fái notið ávaxta verka sinna og sjái til­gang í því að leggja sig fram, sér og...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins