„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Óskar eftir fundi vegna ummæla ferðamálastjóra

Óskar eftir fundi vegna ummæla ferðamálastjóra
|||||

Reiði gætir meðal við­skipta­vina Farvel vegna ummæla ferða­mála­stjóra, sem hann lét falla í sam­tali við mbl.is. „Fyr­ir­tækið var með leyfi og var með trygg­ingar. Öll máls­með­ferð í þessu máli var í sæm­ræmi við lög sem gilda um Ferða­mála­stofu og jafn­framt þær máls­með­ferð­ar­reglur sem gilda í stjórn­sýsl­unni. Það er ekki annað um það að segja,“ sagði Skarp­héð­inn Berg Stein­ars­son um gagn­rýni við­skipta­vina, sem furða sig á því að Farvel hafi fengið frest í 14 mán­uði til að skila hækk­aðri trygg­ingu áður en starfs­leyfi fyr­ir­tæk­is­ins var fellt niður.

Á þessum tíma, og allt fram á síð­asta dag, voru for­svars­menn Farvel að rukka við­skipta­vini fyrir þjón­ustu sem þeir máttu vita að yrði ekki veitt, að því er fram kemur í sam­skiptum Ferða­mál­stofu og við­skipta­vina.

„Hér talar ferða­mála­stjóri gegn betri vit­und eða hann þekkir ekki lögin,“ segir í tölvu­pósti sem Eiríkur Jónsson, einn kröfu­hafa Farvel, hefur sent Skarp­héðni. „Ferða­mála­stofu var ljóst að frá hausti 2018 til jóla 2019 voru trygg­ingar Ferða­skrif­stof­unnar Farvel ófull­nægj­andi. Um það þarf ekki að deila enda er það stað­fest í tölvu­pósti frá Ferða­mála­stofu til mín.“

Eiríkur vitnar í téðan tölvu­póst, þar sem segir að sam­kvæmt ákvörðun Ferða­mála­stofu hefði Farvel átt að skila hækk­aðri trygg­ingu í lok októ­ber 2018. Eiríkur hefur óskað eftir fundi með ferða­mála­stjóra og seg­ist mögu­lega munu taka lög­mann með sér.

Menn virð­ast ekki á eitt sáttir um það hvernig ber að túlka skyldur Ferða­mála­stofu en stofn­unin hefur sagt að henni sé ekki skylt að fella niður starfs­leyfi þegar fyr­ir­tæki skila ekki inn hækk­aðri trygg­ingu, heldur hafi hún til þess heim­ild. Það liggur hins vegar fyrir að hækk­aðri trygg­ingu er ætla að tryggja við­skipta­vini gegn stöðu eins og nú er komin upp en vegna þess að Farvel hafði ekki upp­fyllt þau skil­yrði sem lög kveða á um munu við­skipta­vinir sem höfðu greitt inn á ferðir ekki end­ur­heimta nema brot af fjár­munum sínum.

Þeir íhuga að sækja mál gegn Ferða­mála­stofu vegna meintrar van­rækslu stofn­un­ar­innar.

Lestu meira: Mál Farvel til lög­reglu

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins