„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Snjóflóðin fyrir vestan: „Hjörtu okkar slá eins og í einum manni“

Snjóflóðin fyrir vestan: „Hjörtu okkar slá eins og í einum manni“
|

Hugur allra Íslend­inga er með íbúum á Flateyri og Suð­ur­eyri eftir að þrjú snjó­flóð féllu þar undir mið­nætti í gær­kvöld. Ljóst er að gríð­ar­legt eigna­tjón varð í höfn­inni á Flateyri. Einni stúlku var bjargað úr flóð­inu.

Í færslu sem Guð­mundur Gunn­ars­son bæj­ar­stjóri Ísa­fjarð­ar­bæjar og for­maður al­manna­varnar­nefndar skrif­aði á Facebook kemur hann í orð til­finn­ingum okkar flestra.

„Hjörtu okkar slá eins og í einum manni þessa stund­ina. Þau slá með Flat­eyr­ingum og öllum þeim sem stóðu í ströngu í nótt. Bæði á Flateyri og Suð­ur­eyri,“ segir Guð­mundur.

Vill Guð­mundur koma á fram­færi þakk­læti til allra þeirra sem komu að aðgerðum í nótt vegna snjó­flóð­anna.

„Ég vil koma á fram­færi ólýs­an­legu þakk­læti til allra þeirra sem komu að aðgerðum í nótt og sáu til þess að ekki fór verr. Á Flateyri búa hetjur og þar eigum við björg­un­ar­sveit sem engin lýs­ing­ar­orð ná yfir. Þeirra afrek fæst seint full­þakkað.“

Mynd sem Guð­mundur birti með færslu sinni. Hún sýnir hvar snjó­flóðin tvö féllu.

Guð­mundur hefur fylgst með aðgerðum í alla nótt og segir fólkið fyrir vestan í öruggum höndum, en atburðir kvölds­ins og næt­ur­innar vekja upp sterkar til­finn­ingar.

„Veður er enn vont og skil­yrði erfið. Ég hef þó, í alla nótt, fengið að fylgj­ast með okkar frá­bæra fólk sem stendur vakt­ina og sér til þess að fyllsta öryggis sé gætt. Við erum í góðum höndum.

Þessir atburðir vekja upp sterkar til­finn­ingar. Það er skilj­an­legt. Nú reynir á sam­taka­mátt­inn og sam­heldn­ina sem gerir okkur Vest­firð­inga að því sem við erum. Sendum hlýja strauma. Það skiptir máli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins