„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Stúlku bjargað úr snjóflóðinu: „Hún var skelkuð og líka köld“

Tvö stór snjó­flóð féllu með skömmu milli­bili á Flateyri á tólfta tím­anum í gær­kvöldi og eitt í Súg­anda­firði til móts við Suð­ur­eyri. Stúlka grófst undir öðru flóð­inu á Flateyri og var grafin upp af björg­un­ar­sveit­ar­mönnum.

Stúlku bjargað úr snjóflóðinu: „Hún var skelkuð og líka köld“
Mynd / Róbert Beck

„Hún var skelkuð og líka köld,“ segir Davíð Már Bjarna­son, upp­lýs­inga­full­trúi Lands­bjargar, í sam­tali við Frétta­blaðið um stúlk­una sem var bjargað úr öðru flóð­inu á Flateyri í nótt eftir að hafa verið föst undir því í rúman hálf­tíma. Flóðið féll á hús fjöl­skyld­unnar. Móðir stúlkunnar ásamt tveimur ungum börnum komust út úr hús­inu af sjálfs­dáðum með því að klifra út um glugga en her­bergi stúlkunnar fyllt­ist af snjó. RÚV greinir frá því að með snjó­flóða­stöng hafi fundið rúm stúlkunnar og komið björg­un­ar­sveitum á sporið um hvar hún gæti verið. Björg­un­ar­sveit­ar­menn hafi grafið stúlk­una úr flóð­inu, sem slapp án telj­andi meiðsla, og var send með varð­skip­inu Þór til Ísa­fjarðar.

Flóðin tvö sem féllu á Flateyri voru stór. Steinunn Guðný Ein­ars­dóttir, íbúi á Flateyri, sem býr í Ólafs­túni, efst í bænum og rétt við snjó­flóða­varn­ar­garð­ana, segir í sam­tali við frétta­stofu RÚV að kraft­ur­inn í snjó­flóð­unum hafi verið svo mik­ill að drunur hafi heyrst um allan bæinn.  Steinunn fékk sím­tal frá móður sinni um klukkan ell­efu í kvöld um að bruna­boð­inn í bátnum þeirra væri far­inn í gang. Maður Stein­unnar var á leið út til að athuga hvað væri að „þegar hann kemur hlaup­andi niður og seg­ist hafa heyrt svaka drunur og snjó­fjúk koma á eftir,“ segir Steinunn í sam­tal­inu. Hann hafi rokið í gall­ann og út. Steinunn hringdi þá þegar í neyð­ar­lín­una og var í sam­bandi við móður sína til þess að fá frek­ari fréttir. „Við fáum svo fréttir af því að þetta sé búið að þurrka út höfn­ina og bát­ur­inn okkar og aðrir bátar séu bara horfnir,“ segir hún, en annað flóðið sem varn­ar­garður beindi til sjávar steypt­ist niður í höfn­ina og sökkti nán­ast öllum flota bæj­ar­ins. Því er ljóst að tjónið er mikið.

Maður Stein­unnar var enn í útkalli ásamt öðrum björg­un­ar­sveit­ar­mönnum á Flateyri þegar Stein­unni fannst mik­ill hvellur skella á hús­inu. „Ég hringi nátt­úru­lega í móð­ur­sýkiskasti í mann­inn minn og þeir fara þá strax af stað. Þeir voru þá niður frá þar sem hitt flóðið var,“ segir hún.

Mikill við­bún­aður er á svæð­inu vegna flóð­anna og hefur neyð­ar­á­standi verið lýst yfir. Engra er saknað vegna flóð­anna og er stefnt að því að opna fjölda­hjálp­ar­mið­stöð á Flateyri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins