„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Milljarður dýra drepist í eldunum

Myndir af brenndum kóala­björnum og mun­að­ar­lausum kengúru­ungum í kjöl­far gróð­ur­eld­anna í Ástralíu hafa vakið sterk við­brögð um allan heim. Áætlað er að millj­arður dýra hafi drep­ist og ótt­ast um ein­staka teg­undir. Óvíst er hvað verður eftir þegar eld­arnir slokkna.

Milljarður dýra drepist í eldunum
Mynd / EPA|Hamfarir í dýra­rík­inu
Rannveig Magn­ús­dóttir, líf­fræð­ingur og verk­efna­stjóri hjá Land­vernd.

„Þessar tölur koma frá Chris Dickman, sem er aðal­vist­fræð­ing­ur­inn úti, og þetta er var­lega áætluð tala fyrir New South Wales, sem hefur orðið verst úti. Það er næstum alveg öruggt að þetta er meira en millj­arður dýra.“ Þetta segir Rannveig Magn­ús­dóttir, líf­fræð­ingur og verk­efna­stjóri hjá Land­vernd, um fregnir þess efnis að meira en millj­arður dýra hafi drep­ist í gróð­ur­eld­unum sem nú geisa í Ástralíu. Dickman, sem er pró­fessor við Uni­versity of Sidney, áætlar að 800 millj­ónir dýra hafi drep­ist í New South Wales og millj­arður á lands­vísu. Alls 27 mann­eskjur hafa lát­ist og 1.600 heim­ili verið eyðilögð í eld­unum, sem hafa farið yfir svæði sem er stærra en Danmörk og Belgía sam­an­lagt.

Myndir af brenndum kóala­björnum og mun­að­ar­lausum kengúrum hafa verið birtar um allan heim en mun fleiri teg­undir eru undir og margar sem finn­ast aðeins í Ástralíu. Í tölum Dickman eru spen­dýr (fyrir utan leð­ur­blökur), fuglar og eðlur en ekki froskar og skor­dýr. Um 34 teg­undir spen­dýra hafa orðið útdauðar í Ástralíu á síð­ustu 200 árum, fleiri en nokk­urs staðar ann­ars staðar. Áhyggjur eru uppi vegna gljá­andi svarta kakadúans en 300 til 370 voru eftir á Kangaroo Island áður en eldar fóru þar yfir.

Óvíst um líf eftir eldana
„Fólk tengir við kóala og kengúrur en ég hef minnstar áhyggjur af þeim,“ segir Rannveig. Hún ítrekar að um hörm­ungar sé að ræða fyrir ein­staka dýr en „við erum ekki að fara að glata þessum teg­undum.“ Í meiri hættu eru teg­undir á borð við pokamús­ina sem hún rann­sak­aði í Viktoríu-fylki. „Það eru þessi litlu dýr sem eru búin að lifa mikil áföll í gegnum tíð­ina; þegar mað­ur­inn kemur og fer að eyða búsvæðum og kemur með teg­undir á borð við ketti og refi sem hafa veikt stofn­ana. Svo koma þessir miklu gróð­ur­eldar og þeir geta brennt allt til kola,“ segir Rannveig.

„Allir vinir mínir úti eru í áfalli. Það eru tveir mjög heitir mán­uðir eftir en á venju­legu ári væri elda­tíma­bilið að byrja núna.“

Sér­fræð­ingar hafa bent á að jafn­vel þótt dýrin nái að bjarga sér og flýja, eða grafa sig neð­an­jarðar og bíða, sé ekki útséð um að þau lifi af. „Svæðin eru mis­mikið brunnin. Ef svæðið sleppur vel þá nær það sér og verður fljótt aftur grænt. Þá geta dýrin snúið aftur. En ef allt er sviðið til ösku þá er það ekki líf­væn­legt umhverfi fyrir dýrin,“ segir Rannveig. Jafnvel þótt eld­arnir slokkn­uðu á morgun sé skað­inn nú þegar því gríð­ar­legur.
„Allir vinir mínir úti eru í áfalli. Það eru tveir mjög heitir mán­uðir eftir en á venju­legu ári væri elda­tíma­bilið að byrja núna,“ segir Rannveig. Ómögu­legt sé að segja hvaða áhrif ham­far­irnar muni hafa til lengri tíma. „Allar teg­undir sinna sínu hlut­verki í vist­kerf­inu. Ein teg­und heldur annarri í skefjum og þegar teg­und hverfur þá hnigna aðrar eða fjölgar. Það raskar vist­kerf­inu.“ Þá sé ótalið það tjón sem eld­arnir hafa og muni valda mann­fólk­inu.

„Versta martröðin að verða að veru­leika“
„Það er búið að vara við þessu mjög lengi og þess vegna er reiðin mjög mikil,“ segir Rannveig um stemn­ing­una meðal vina sinn í Ástralíu og Ástrala almennt. „Þetta kemur vís­inda­mönnum ekki á óvart; það var búið að spá þessu og allt sem menn voru að segja að myndi ger­ast er að ger­ast. Þetta er klass­ísk birt­ing­ar­mynd lofts­lags­ham­fara; tíðni þeirra mun aukast og þær verða ofsa­fengn­ari. Þetta er versta martröðin að verða að veru­leika.“

Hamfarir í dýra­rík­inu *Til að setja töl­urnar í sam­hengi taldi íslenskur búpen­ingur um 791 þús­und dýr árið 2018 sam­kvæmt tölum Hag­stof­unnar. Inni í töl­unni eru minkar og kan­ínur en ekki hross. *Dýr á borð við kóala­birni, kengúrur og vamba drep­ast þegar þeir brenna eða kafna í reyknum. Áætlað er að næstum þriðj­ungur allra kóala­bjarna í New South Wales hafi drep­ist og að þriðj­ungur heim­kynna þeirra sé eyði­lagður. *Önnur dýr, t.d. lítil spen­dýr og eðlur, geta forðað sér neð­an­jarðar eða undir grjót en verða hung­ur­morða eða rán­dýrum að bráð þegar eld­arnir slokkna og ekk­ert er eftir. *Hver dýra­teg­und á jörð­inni telur að með­al­tali 220 stofna og á því auð­velt með að ná sér ef aðeins nokkrir stofnar deyja út. „Ef þeim fækkar hins vegar einn af öðrum þá verða að lokum sex eftir, þrír, tveir, og jafn­vel bara einn,“ segir Dickman. „Þá þarf bara einn atburð og teg­undin er horfin; eld, þurrka, hvað sem er.“

Rannveig segir áströlsk stjórn­völd hafa sýnt algjört skiln­ings­leysi á þeirri hættu sem hefur blasað við og stjórn­mála­menn­irnir verið upp­teknir við að standa vörð um hags­muni kola­iðn­að­ar­ins. Það verði áhuga­vert að fylgj­ast með póli­tík­inni næstu miss­eri.
„Fólkið mitt er í áfalli,“ segir hún um vini sína sem margir eru líf­fræð­ingar. „Þetta er fólk sem á að vera að rann­saka dýrin þarna úti. Ég held þeir séu næstum því í afneitun. Þetta er bara sorg­ar­ferli, næst verður maður reiður og svo fer maður að sætta sig við þetta og láta til sín taka. En þetta er svo ofboðs­lega sorg­legt, þetta er svo mikið tap.“

Eldarnir muni að sjálf­sögðu slokkna að lokum en þá sé spurn­ing hvað verði eftir.
„Maður veit ekki hvað skað­inn verður mik­ill og hvernig nátt­úran mun jafna sig. En fórn­ar­kostn­að­ur­inn er allt of mik­ill. Þarna úti er árlegt „fire-sea­son“ sem fólk er búið undir en nú erum við bara komin á ein­hvern stað og í eitt­hvert óþekkt ástand. Maður getur samt ekki haldið áfram nema með von í hjart­anu. En þetta er á mæli­kvarða sem við höfum bara ekki séð áður.“

Handíðir til bjargar dýr­unum

„Það þarf að bjarga þessum dýrum sem þó hafa lifað af,“ segir Rannveig um sam­stillt átak þús­unda víðs­vegar um heim­inn sem hafa tekið að sér að sauma, prjóna og hekla ýmsar nauð­synjar fyrir þau dýr sem hafa orðið illa úti í eld­unum.

Út um allan heim hefur fólk á öllum aldri setið við að útbúa vett­linga fyrir kóala­birni, vefjur fyrir leð­ur­blökur og poka fyrir kengúrur og vamba, sem ung­viðið þarf á að halda til að vaxa úr grasi. Áströlsku sam­tökin Animal Rescue Craft Guild eru meðal þeirra sem hafa látið til sín taka en á Facebook-síðu þeirra er að finna bæði snið og upp­lýs­ingar um hvers konar nauð­synja sé þörf. Víða hafa vefn­að­ar­vöru­versl­anir gefið afslátt vegna hand­íð­anna.

Í erlendum miðlum hefur mátt lesa átak­an­legar frá­sagnir um fólk sem hefur farið á milli poka­dýra sem hafa drep­ist til að athuga hvort ung­viði leyn­ist í pok­unum en Rannveig segir þetta nokkuð sem Ástralir þekkja vel. „Þetta er eitt­hvað sem þú gerir þegar þú keyrir á dýr til dæmis. Þú stoppar og hugar að dýr­inu og ef þetta er kven­dýr þá kíkir þú í pok­ann og ef þú finnur lif­andi unga þá tekur þú hann með þér.“ Ungviðið geti lifað þótt mæð­urnar drep­ist og við alla vegi sé að finna leið­bein­ingar um hvað beri að gera.

Nú sé hins vegar svo komið að allir dýra­spít­alar og athvörf séu stút­full. Þeir sem vilja láta gott af sér leiða geti t.d. tekið upp veskið og styrkt dýra­vernd­ar­sam­tök til lyfja­kaupa, nú eða tekið upp prjón­ana. „Það er sterkt í okkur Íslend­ingum að prjóna og manni líður svo illa en þetta er eitt­hvað sem við getum gert. Þá líður manni betur í hjart­anu,“ segir Rannveig.

Tekið verður á móti hjálp­ar­gögnum á Kex Hostel 3. febr­úar en eftir þann tíma má koma þeim til Land­verndar í Guð­rúnar­tún 8.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins