„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sífellt fleiri Íslendingar versla á netinu

Sífellt fleiri Íslendingar versla á netinu

Nið­ur­stöður úr neyslukönnun Gallup 2019 leiða í ljós að aldrei hafa fleiri Íslend­ingar verslað á net­inu heldur en í fyrra. Í nið­ur­stöð­unum kemur fram að 76,8% Íslend­inga hafa verslað á net­inu síð­ustu 12 mán­uði.

Nið­ur­stöður úr neyslukönnun Gallup leiða þá í ljós að yngra fólk er lík­legra til að versla á net­inu en þau sem eldri eru og er hlut­fallið hæst í ald­urs­hópnum 25-34 ára, þar sem 95% höfðu verslað á net­inu er fram kemur í tölum Gallup.

Tölu­verður meiri­hluti, eða 60,2% segj­ast versla oftar í erlendum vef­versl­unum en íslenskum. 22% segj­ast versla oftar í íslenskum vef­versl­unum og 17,8% segj­ast versla jafn­oft í erlendum og inn­lendum vef­versl­unum.

Í nið­ur­stöðum neyslukönn­unar Gallup er að finna vís­bend­ingar um hvers konar vörur fólk kaupir á net­inu og hvernig vöru­flokkar eru að þró­ast.

Árið 2007 höfðu 15,1% Íslend­inga keypt föt á net­inu síð­ast­liðna 12 mán­uði, en í ár er hlut­fallið komið upp í 47,7%. Könnun Gallup leiddi í ljós að fólk sem á börn er lík­legra til að kaupa föt á net­inu en barn­laust fólk.

Karlmenn eru í miklum meiri­hluta þegar kemur að því að kaupa raf­tæki og tölvu­vörur á net­inu. Tæplega helm­ingur þeirra hafði keypt slíkar vörur á net­inu síð­ast­liðna 12 mán­uði eru karlar.

Þeir vöru­flokkar sem eru hvað sterk­astir í net­verslun hér­lendis eru gist­ing og miðar á við­burði, en 61,5% lands­manna sögð­ust hafa keypt miða á við­burð í net­verslun síð­ast­liðið ár og 56,8% hafði keypt gist­ingu.

Vinsældir AliExpress að minnka

Nið­ur­stöð­urnar sýna þá að vin­sældir kín­versku net­síð­unnar Ali­Ex­press eru að minnka.

Und­an­farin ár hefur Ali­Ex­press átt tölu­verðum vin­sældum að fagna á Íslandi, ekki síst eftir að frí­versl­un­ar­samn­ingur milli Kína og Íslands tók gildi árið 2014. Það fólk sem sagð­ist hafa keypt vörur þaðan fór fjölg­andi til árs­ins 2017, þegar 31,5% svar­enda sögð­ust hafa keypt af Ali­Ex­press síð­ast­liðið ár. Hlut­fallið stóð nokkurn veg­inn í stað árið 2018, en í ár mæld­ist í fyrsta skipti lækkun og sögð­ust 29,2% þá hafa keypt vörur síð­ustu 12 mán­uð­ina.

Vin­sældir fata­versl­un­ar­innar Asos hafa þá auk­ist svo annað dæmi sé tekið. Versl­unin var fyrst mæld árið 2018 og sögð­ust þá 13,6% lands­manna hafa keypt vörur gegnum versl­un­ina síð­ast­liðið ár. Í ár hafði þetta hlut­fall hækkað upp í 15,5%. Konur eru mun lík­legri til að kaupa af Asos en karlar, en 21% kvenna hafði verslað á Asos á móti 10,3% karla, sam­kvæmt nið­ur­stöðum Gallup. Það er áhuga­vert að sjá hversu vel Asos virð­ist ná til ungs fólks, en í ald­urs­hópnum 18-24 ára sögð­ust 40,9% hafa keypt vörur af Asos síð­asta árið.

Nið­ur­stöður úr neyslukönnun Gallup 2019 má skoða nánar á vef Gallup.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins