„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Heppnust í heimi

Heppnust í heimi

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni

Þegar ég var fimmtán ára fékk ég væg­ast sagt erf­iðar fréttir. Fólkið sem ég hafði þekkt alla ævi sem mömmu og pabba sagði mér að þau hefðu ætt­leitt mig þegar ég var nýfædd. Ég varð bál­reið og ákvað að að finna „alvöru­for­eldra“ mína.

Líf mitt hafði verið mjög gott, ég ýki ekki þótt ég segi að mér hafi nán­ast verið vafið inn í bóm­ull þótt vissu­lega ríkti agi á heim­il­inu. Mér fannst það kannski ekki á ung­lings­ár­unum en þegar ég leit til baka full­orðin finnst mér ég hafa átt full­komið líf. Pabbi og mamma reyndu sitt besta til að veita mér allt það besta án þess þó að ofdekra mig.

Daginn eftir fimmt­ánda afmæl­is­dag­inn minn komu þau að máli við mig og sögð­ust vilja segja mér nokkuð sem ég ætti rétt á að vita. Þau hefðu ákveðið fyrir löngu að ég fengi að heyra sann­leik­ann þegar ég yrði fimmtán ára, þá væri ég orðin nógu þroskuð. Þá var ár í að ég yrði sjálf­ráða sem var 16 ára á þessum tíma.

Ég fékk hjart­slátt og fann kvíð­ann læs­ast um mig en samt átti ég ekki von á því að þau segðu mér að ég hefði verið ætt­leidd. Þau bættu því við að ég væri nú samt ekk­ert minna en alvöru­dóttir þeirra, þeim gæti ekki þótt vænna um mig. Ég yrði þó að fá að vita hið sanna.

„Mér leið eins og mér hefði verið hafnað og ég svikin, það særði. Ein­hverjum grunni hafði verið kippt undan fót­unum á mér og mér fannst ég svífa í lausu lofti.“

Ég tók þessu hreint ekki vel, fór að hágráta og garg­aði svo á þau, skip­aði þeim að koma sér út úr her­berg­inu mínu. Ég var í algjöru losti. En þau gerðu það sem ég bað um og voru örugg­lega í upp­námi eins og ég. Þeim fannst þau án efa hafa verið að gera rétt með þessu en áttu lík­lega ekki von á því að ég tæki þessu svona illa. Ég var í raun bara krakki sem hafði engan þroska til að skilja þetta. Mér leið eins og mér hefði verið hafnað og ég svikin, það særði. Ein­hverjum grunni hafði verið kippt undan fót­unum á mér og mér fannst ég svífa í lausu lofti. Ég get eig­in­lega ekki lýst þessu betur en þetta voru skelfi­legar fréttir að fá, fannst mér.

Einbeitt ákvörðun

Næsta dag var ég búin að jafna mig örlítið en ég var fálát og hálf­fúl við for­eldra mína. Það kraum­aði ein­hver reiði í mér þótt ég vissi ekki alveg hvers vegna. Líklega vildi ég að þau hefðu sagt mér þetta fyrr en samt ekki … og ekki þegja yfir því heldur. Æ, ég vissi ekki hvað ég vildi. Þetta voru hræði­legar fréttir að fá fyrir ung­lings­stelpu sem átti nóg með sig og alla horm­ón­ana sem kraum­uðu.

Ég fór til Báru vin­konu, ég varð að segja ein­hverjum frá þessu og henni hef ég getað treyst alla ævi, eða í marga ára­tugi núna.

Báru brá mikið. Fyrst hélt hún að ég væri að grín­ast en eftir smá­stund með­tók hún þetta og var ofboðs­lega hissa. Hún hvatti mig áfram þegar ég sagði henni að ég væri ákveðin í því að finna „alvörupabba og -mömmu“ og kom­ast að því hvers vegna þau höfðu þurft að gefa mig frá sér. Kannski átti ég fleiri systk­ini og það hafði ég alltaf þráð. Stóra systir mín var tólf árum eldri en ég og gat aldrei fyr­ir­gefið mér fyrir að koma í fjöl­skyld­una. Hún var líka ætt­leidd, ég komst að því sama kvöld og ég fékk tíð­indin, og hún fyllt­ist mik­illi afbrýði­semi þegar ég kom til sög­unnar. Ein­hverra hluta vegna sagði hún mér aldrei frá því að ég væri ætt­leidd og það fannst mér skrítið því hún gat verið svo and­styggi­leg. Hún hefur eflaust lofað pabba og mömmu því þegar hún var þrettán ára og fékk tíð­indin af eigin ætt­leið­ingu. Hún tók því ekki vel og þess vegna var ákveðið að bíða aðeins með að segja mér sann­leik­ann, eða þar til ég yrði fimmtán ára.

Við systir mín náðum ekki saman og á þessum tíma var hún nýgift og átti barn. Ekki gat ég leitað til hennar, henni var svo illa við mig og mér við hana. Það breytt­ist þó smám saman næstu árin og nú erum við nánar og góðar systur.

Undarleg heimsókn

Með hjálp pabba og mömmu komst ég að því að líf­fræði­legur faðir minn hefði verið banda­rískur her­maður á Vellinum og líf­fræði­leg móðir mín aldrei vitað fullt nafn hans. Hún hafði kynnst öðrum her­manni skömmu eftir að hún eign­að­ist mig og gaf, og flust með honum til Banda­ríkj­anna. Það var víst engin leið að hafa uppi á henni en hún átti móður á lífi og ég fékk aðstoð við að kom­ast í sam­band við hana. Hún bjó í kjall­ara­í­búð í nokkuð stóru timb­ur­húsi í Vest­ur­bænum í Reykja­vík og var til­búin til að taka á móti mér einn laug­ar­dag­inn eftir hádegi. Ég vildi alls ekki taka pabba og mömmu með mér þótt þau byð­ust til þess að vera mér til halds og trausts, heldur bað ég Báru vin­konu um að koma með mér.

Við Bára tókum strætó, að mig minnir leið 4 sem stopp­aði skammt frá hús­inu. Við gengum niður kjall­ara­tröpp­urnar og ég bank­aði á dyrnar. Eftir smá­stund myndi ég hitta alvöru­ömmu mína og ég var með fiðr­ildi í mag­anum af spenn­ingi og til­hlökkun.

Dyrnar opn­uð­ust örlítið en nóg til að megn fýla bær­ist út og skylli á okkur. Gömul, hrukk­ótt kona horfði á okkur í gegnum rifu á dyr­unum og þegar ég heils­aði og sagði hver ég væri, greip hún í mig og dró mig inn. Síðan lok­aði hún og Bára varð eftir úti. Ég gekk inn og fór á eftir ömmu inn í eld­hús. Mest lang­aði mig til að taka fyrir nefið en stillti mig um það. Lyktin var af sorpi, tóbaks­reyk og fúkka, held ég, en ég hafði aldrei áður farið inn í hús sem lyktaði svona. Allir gluggar voru harð­lok­aðir, dag­blaða­bunkar um allt og rusla­pokar sem átti eftir að fara með út í tunnu. Ég er ekki viss um að hún hafi verið rusla­safn­ari, hún var bara sóði. Ég sá að eldri maður lá hrjót­andi í sófa þegar við gengum fram hjá stof­unni.

„Gömul, hrukk­ótt kona horfði á okkur í gegnum rifu á dyr­unum og þegar ég heils­aði og sagði hver ég væri, greip hún í mig og dró mig inn. Síðan lok­aði hún og Bára varð eftir úti.“

Við sett­umst við eld­hús­borðið í þögn en svo spurði ég hvort gamli mað­ur­inn í sóf­anum inni í stofu væri afi minn. Nei, afi minn væri löngu dauður úr drykkju, sagði hún. Þetta væri nú bara kærast­inn hennar. Svo þagn­aði hún, kveikti sér í sígar­ettu og fór að leggja kapal á eld­hús­borð­inu. Ég horfði í kringum mig og sá fleiri rusla­poka á eld­hús­gólf­inu, þar af nokkra með tómum vín­flöskum. Enn ríkti þögn og mér datt ekk­ert í hug til að segja. Eftir um það bil fimm mín­útur af vand­ræða­legri þögn stóð ég upp. And­rúms­loftið var svo óþægi­legt að ég gat ekki verið þarna lengur. Ég kvaddi ekki, lét mig bara hverfa.

Augun opnast

Bára beið áhyggju­full í kjall­ara­tröpp­unum þegar ég kom út og horfði spurn­ar­augum á mig. Ég kom ekki upp orði. Við gengum þegj­andi niður á Lækj­ar­torg og þaðan náðum við vagni heim. Sem betur fer voru fáir í strætó og eng­inn sat fyrir aftan okkur því ég grét alla leið­ina heim. Bára hélt í hönd­ina á mér og reyndi ekki að tala við mig.

Ég elti Báru heim til hennar og var að mestu leyti búin að jafna mig þegar við komum upp í her­bergið hennar. Ég sagði henni hvernig þetta hefði verið og hún hryllti sig.

Bára var mun þroskaðri og full­orð­ins­legri en ég á þessum árum og alltaf snögg að átta sig á hlut­unum. Hún spurði mig hvort ég væri ekki fegin að hafa sloppið við að alast upp hjá svona óreglu­fólki og ætti heima hjá góðu fólki sem elskaði mig. Ójú, ég var fegin og allt í einu fann ég fyrir sterku og djúpu þakk­læti til pabba og mömmu fyrir að „bjarga mér“ frá slæmu lífi. Ég gat alveg séð fyrir mér hvernig allt hefði orðið ef „alvöru­móðir“ mín hefði alið mig upp, því mér fannst lík­legt að hún væri ekk­ert ósvipuð kon­unni sem ég heim­sótti og var amma mín. Mig lang­aði ekki lengur til að kynn­ast líf­fræði­legri móður minni og heldur ekki vita hver faðir minn væri. Ég átti elsku­lega for­eldra og þurfti ekki meira.

Þegar ég kom heim, nokkrum klukku­tímum seinna en ég hafði ætlað, biðu pabbi og mamma eftir mér. Þau sögð­ust hafa haft miklar áhyggjur en þau skömm­uðu mig ekki fyrir að koma svona seint.

Ég sagði þeim stutt­ara­lega að ég kærði mig ekki lengur um að finna móður mína, það nægði mér að hafa hitt kon­una sem ætti að heita amma mín, og ég vildi ekki þekkja hana. Þeim brá en ég sá að þeim létti líka þó að þau reyndu að leyna því.

Þótt ég segði þeim fátt á þessum tíma fengu þau alla sól­ar­sög­una með tím­anum. Ég hafði lært að meta þau og til­ver­una sem þau gáfu mér, eflaust mun fyrr en flestir ung­lingar. Ég get ekki lýst því hve þakk­lát ég er þeim fyrir að bjarga þeim frá því lífi sem ég ímynda mér að hefði beðið mín ef ég hefði ekki verið ætt­leidd. Alla tíð síðan þetta var hef ég reynt að sýna þeim það með ýmsum hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu