„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Tortillur – einfaldar og sjúklega góðar

Tortillur – einfaldar og sjúklega góðar
||

Helstu ein­kenni mat­ar­gerð­ar­innar í Mexíkó eru baunir, tómatar, avókadó, chili-aldin og tortillur, sem eru þunnar kökur úr maís­mjöli og svo í seinni tíð líka úr hveiti. Tortill­urnar eru not­aðar á ýmsa vegu og heita rétt­irnir eftir því. Hér eldum við tvo rétti sem kall­ast tacos og þá eru tortill­urnar alltaf hafðar litlar, fylltar með græn­meti og kjöti og hafðar ann­að­hvort mjúkar eða harðar en þá eru búnar til skeljar úr þeim og þær fylltar.

Taco er afar fjöl­breytt enda mögu­leik­arnir óend­an­legir þegar kemur að því að setja hrá­efni ofan á tortill­urnar en taco hefur notið mik­illa vin­sælda víða um heim enda þægi­legur, ein­faldur og góður matur.

Við gefum ykkur líka upp­skrift að tortill­unum en þær eru ein­stak­lega góðar heima­gerðar þó vissu­lega sé líka hægt að kaupa þær til­búnar í versl­unum. Kjöt, græn­meti, krydd og sósur er á tortill­unum hér en til­valið er að gefa hug­mynda­flug­inu lausan taum­inn og prófa eitt­hvað nýtt eða bæta við.

Djúsí kjúklinga-taco

4 tortillur

1 rauð­laukur, saxaður
1 kjúklinga­bringa, elduð
hnefa­fylli kórí­ander, saxað
2 tsk. chili-duft
1 dós maukaðar baunir (refried beans)
200 ml grísk jógúrt
100 g rif­inn ostur
1 dl reykt chipotle-salsa (sjá upp­skrift fyrir neðan)

Hitið ofn­inn í 200°C. Steikið lauk upp úr olíu þangað til hann fer að brúnast bætið þá kjúklingi, kórí­ander, chili-dufti, salti og pipar saman við. Bætið bauna­m­auk­inu saman við ásamt grískri jógúrt, osti og salsasósu. Setjið kjúklinga­blöndu á hverja tortillu og lokið, raðið í eld­fast mót. Bakið í  8 mín. Berið fram með sal­sam­auki og guacamole (sjá með­fylgj­andi upp­skrift).

Guacamole

2-3 avókadó

½ rauð­laukur, smátt saxaður
1 hvít­lauks­geiri, mar­inn
1 msk. ferskt kórí­ander, saxað
safi úr einni límónu
½ tsk. salt
1 lít­ill tómatur, fræ­hreins­aður og saxaður
1 tsk. chili-duft, má sleppa

Stappið avókadó í stórri skál með gaffli. Bætið öllu öðru saman við og hrærið vel.

Heimatilbúnar tortillur

10 kökur um 8 cm í þver­mál

200 g masa har­ina-maís­mjöl, fæst í asískum búðum

300 ml volgt vatn

¼ tsk. salt

hreinn plast­poki

tortilla-pressa eða stór panna

Setjið mjöl, vatn og salt í hræri­vél­ar­skál og blandið í um 3-5 mín. Skiptið deig­inu í 10 jafna hluta. Takið plast­poka og klippið í sundur svo þið fáið 2 hluta. Leggið annan hlut­ann á borð og eina kúlu yfir og leggið hinn hluta plast­pokans þar yfir. Pressið yfir með pönnu eða tortilla-pressu. Ég not­aði pönnu og gekk verkið mjög vel. Hitið pönnu við með­al­hita (notið enga olíu) og steikið kök­urnar á báðum hliðum 1 mín. á hvorri hlið. Góð tortilla er ekki of þykk og ekki of þunn. Það er góðs viti ef kakan lyft­ist á pönn­unni. Hún á að vera tals­vert þykk­ari en pönnu­kaka.

Reykt chipotle-salsa

100 g tómatar, skornir í bita

½ laukur, saxaður

2 tsk. chili-flögur

2 tsk. chipotle-mauk

2 msk. agave-síróp

2 tsk. sjáv­ar­salt

50 ml hrís­grjóna­edik

1 tsk. salt

½ tsk. nýmal­aður pipar

1 tsk. kumm­in­duft

Setjið tómata, lauk og 250 ml vatn í pott. Látið sjóða í 5 mín. hellið vatn­inu frá og setjið til hliðar. Hitið olíu á pönnu og setjið chili-flög­urnar út á og steikið í nokkrar sek­úndur. Blandið síðan tómöt­unum og lauknum saman við og setjið í mat­vinnslu­vél og látið allt annað saman við og blandið vel. Hellið í pott og bætið 100 ml af vatni saman við ef blandan er of þykk. Smakkið til með salti og pipar. Salsað er best fram­reitt kalt.

Umsjón / Bergþóra Jóns­dóttir

Stílisti / Hanna Ingi­björg Arn­ars­dóttir

Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður