„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Kitty minnir á að kynþáttahatur fyrirfinnst líka á Íslandi og segir frá óhugnalegu atviki

Kitty minnir á að kynþáttahatur fyrirfinnst líka á Íslandi og segir frá óhugnalegu atviki
Kitty. Mynd / Aldís Páls­dóttir

Lista­konan Kitty Von-Sometime segir ras­isma og útlend­inga­andúð þríf­ast á Íslandi og hvetur fólk til að gera allt sem í valdi þess stendur til að sporna gegn því.

„Ég vill bara minna fólk á að taka ábyrgð á sjálfu sér og eigin gjörðum,“ segir fjöl­lista­konan Kitty von-Sometime, í sam­tali við Mannlíf, þegar hún er spurð út í færslu sem hún deilir á Facebook þar sem hún segir „fullt af kyn­þátta­hatri á Íslandi. Íslend­ingar eiga erfitt með að horfast í augu við það þar sem þeir eru svo vel menntuð og jafn­rétt­is­sinnuð þjóð.“

Tilefni skrif­anna er dauði hins svarta George Floyd, sem lést eftir að hvítur lög­reglu­maður kraup á hálsi hans og þrengdi að önd­unar­veg­inum, og upp­þotið og óeirð­irnar sem hafa brot­ist út víða í Banda­ríkj­unum vegna máls­ins.

Fjöl­margir Íslend­ingar hafa lýst yfir andúð sínu á ódæð­inu, en í færsl­unni Kitty hvetur lands­menn til að staldra við og líta sér nær. Rasismi lifi góðu lífi á Íslandi. Hún nefnir sem dæmi að vin­kona hennar hafi á dög­unum haft afskipti af konu einni sem var að upp­nefna barn af blönd­uðum upp­runa í Vest­ur­bæj­ar­laug. Laugin hafi verið full af fólki en eng­inn hreyfði við and­mælum fyrr en vin­konan skarst í leik­inni og kveðst Kitty vera afar stolt af henni fyrir vikið.

Sjálf seg­ist Kitty marg­sinnis hafa orðið vitni að kyn­þátta­hatri og útlend­inga­andúð á Ísland. „Ég hef sjálf upp­lifað það og mér hefur meira að segja verið ráð­lagt að breyta raun­veru­legu eft­ir­nafni mínu, sem pólskt, á umsókn­ar­eyðu­blöðum þegar ég hef sótt um vinnu.“

Hún kveðst alls ekki vera að reyna að beina athygl­inni frá alvar­leika atburð­anna í Banda­ríkj­unum með skrif­unum, heldur vilji hún benda á að ótt­inn við aðkomu­mann­inn sé djúp­stæður á Íslandi. Hún hvetur folk því til að líta sér og gera það sem það geti til að láta ekki ras­isma við­gangn­ast. „Við erum sjálf sek um að gera alls konar hluti án þess að taka eftir því. Þess vegna er mik­il­vægt að fólk byrji á sjálfu sér,“ segir hún við Mannlíf.

Hér má lesa færsl­una í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins