„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Málið hefur haft verulega alvarlegar afleiðingar fyrir mig og fjölskyldu mína“

„Málið hefur haft verulega alvarlegar afleiðingar fyrir mig og fjölskyldu mína“
Ólafur William Hand

„Trú okkar á rétt­ar­kerf­inu hefur eðli­lega auk­ist við þennan dóm. Ég vil þakka öllum vinum okkar sem hafa alla tíð haft trú á okkur. Á tímum sem þessum áttar maður sig á því hverjir eru vinir manns og þá eigum við marga,“ segir Ólafur William Hand, fyrr­ver­andi upp­lýs­inga­full­trúi og for­stöðu­maður mark­aðs­mála á alþjóða­sviði Eimskips, sem í gær var sýkn­aður af kæru um ofbeldi í garð barns­móður sinnar fyrir Lands­rétti.

Ólafur var fund­inn sekur í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í des­em­ber 2018 og dæmdur í tveggja mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi og til 400 þús­und króna bóta­greiðslu til barns­móð­ur­innar. Forsaga máls­ins er ára­löng for­ræð­is­bar­átta Ólafs við barns­móður sína.Dómnum var snúið við í Lands­rétti þar sem dóm­ur­inn taldi að sann­anir fyrir sekt hands væru ekki hafnar fyrir skyn­sam­legan vafa.

„Ég missti starfið hjá Eimskip og hef þrátt fyrir ítar­lega leit ekki hlotið ráðn­ingu á öðrum vett­vangi.“

Eftir að Lands­réttur hafði í gær sýknað Ólaf tjáði hann til­finn­ingar sínar í færslu á Facebook. Hann sagði gær­dag­inn mik­inn ham­ingju­dag enda bar brúð­kaups­af­mæli þeirra hjóna, Ólafs og Kol­brúnar Önnu Jóns­dóttur, upp sama dag. Hún hefur sjálf sent frá sér bók sem fjallar að miklu leyti um mála­ferlin og dómin sem Ólafur hlaut fyrir hér­aðs­dómi. „Kæru vinir, í dag er mik­ill ham­ingju­dagur í lífi okkar Kollu og fjöl­skyldu okkar. Í dag sýkn­aði Lands­réttur mig af ákærum sem bornar voru uppá mig. Það sem gerir þennan dag enn bjart­ari er að við Kolbrún eigum fimm ára brúð­kaups­af­mæli og því er dag­ur­inn full­kom­inn,“ segir Ólafur.

Ólafur segir málið hafa haft gíf­ur­lega alvera­legar afleið­ingar fyrir hann og fjöl­skyldu hans.„Ég missti starfið hjá Eimskip og hef þrátt fyrir ítar­lega leit ekki hlotið ráðn­ingu á öðrum vett­vangi. En nú er það eitt í stöð­unni að horfa bjart­sýnn fram á veg­inn, þar sem ný ævin­týri bíða. Mik­il­væg­ast á næst­unni er þó að rækta fjöl­skyldu mína sem hefur staðið við bakið á mér eins og klettur. Nú taka við nokkrir dagar þar sem við náum áttum og hlúum hvort að öðru. En svo vitið þið að ég er á lausu og get nú farið að sinna því að bretta upp ermar og vinna. Aftur –takk fyrir allt, við elskum ykkur öll.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins