„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Neytendur velja umbúðalaust

Neytendur velja umbúðalaust

Þrjár vin­konur sem fyrir nokkrum árum tóku þátt í að koma á umhverf­isátak­inu Plast­laus sept­em­ber tóku sig til og opn­uðu plast­lausa verslun. Nú eru tvö ár síðan Vistvera opn­aði í Grímsbæ og hafa umhverf­is­þenkj­andi neyt­endur tekið versl­un­inni fagn­andi.

Kristín Inga Arn­ar­dóttir er ein þriggja eig­enda og segir hún að í upp­hafi hafi þær ein­blínt á plast­lausar lausnir en fljót­lega farið út í að bjóða upp á ýmiss konar áfyll­ing­ar­vörur, á borð við hrein­lætis- og snyrti­vörur. „Fólk getur komið með hvers kyns ílát og fyllt á alls konar sápur og hreinsi­efni en svo erum við líka með aðrar lausnir eins og til dæmis sápu­hnetur. Það eru hnetur sem vaxa á trjám og eru með sápu­eig­in­leika. Þær má nota til að þvo þvott, búa til sápu­stykki úr þeim og upp­þvotta­lög,“ segir Kristín. Sjampó, hár­nær­ing, tann­krem og spritt er á meðal þess sem selt er eftir vigt í Vistveru.

Lægra verð og minni umbúðir

Það segir sig sjálft að mikið má spara með því að tak­marka umbúðir utan um ýmsar neyslu­vörur auk þess sem neyt­andi ræður nákvæm­lega hve mikið hann fær af vör­unni. Ætla má að verð á vörum gæti lækkað nokkuð með magninn­kaupum stóru versl­an­anna á áfyll­ing­ar­vörum því ekki eru þessar flóknu og marglaga umbúðir ódýrar í fram­leiðslu. Víða erlendis er áfyll­ing­ar­fyr­ir­komu­lagið þekkt og þykir sjálf­sagt að mæta með ílát að heiman í búð­ina. Hér á landi er þetta nýtt en mun ef til vill þykja sjálf­sagt, rétt eins og okkur þykir orðið sjálf­sagt að taka fjöl­nota inn­kaupa­poka með í búð­ina.

„Þetta er eitt­hvað í menn­ing­unni okkar, eitt­hvað sem við þurfum að venja okkur á því þetta er breyt­ing á lífs­stíl. Fólk má alveg taka sér betri tíma í að versla. Það er svo mik­ill hraði í sam­fé­lag­inu og fólk fer í búð­ina og grípur hlut­ina á hlaupum. Það er betra að róa sig aðeins niður og hugsa um umhverfið í leið­inni,“ segir Kristín um við­horf Íslend­inga sem hún telur geta breyst hratt í rétta átt.

Neytendur leggja línurnar

Vistvera hefur sér­stöðu á mark­aðnum hvað áfyll­ingar og umbúða­leysið snertir en Kristín seg­ist viss um að fleiri búðir bjóði við­skipta­vinum upp á þessa mögu­leika á næst­unni. En af hverju ætli stór­mark­aðir hér á landi bjóði ekki upp á áfyll­ing­ar­vörur af ein­hverju tagi? „Það er neyt­and­inn sem kýs og eftir því sem hann sækir meira í svona vörur þá fara kannski fleiri versl­anir að bjóða upp á þennan mögu­leika. Rétt eins og að margar vörur sem við vorum með í upp­hafi og feng­ust ekki neins staðar eru nú farnar að sjást í stærri versl­unum,“ segir hún og nefnir sem dæmi bambust­ann­bursta og hár­sápu­stykki sem fyrir tveimur árum feng­ust hvergi en vegna eft­ir­spurnar neyt­enda eru nú til á fleiri stöðum.

Hjördís Elsa Ásgeirs­dóttir, mark­aðs­stjóri Krón­unnar, stað­festir að mikil eft­ir­spurn sé eftir áfyll­ing­ar­vörum og að nú sé til skoð­unar að bjóða við­skipta­vinum upp á þennan kost.

„Ég von­ast til að sjá stór­mark­aði í fram­tíð­inni selja ýmsar vörur, eins og hveiti og sykur sem áfyll­ing­ar­vörur. Það er auð­vitað mikil vinna að koma þessu af stað og þetta krefst fleira starfs­fólks því það þarf að vigta og gæta vel að hrein­læti þegar um mat­vöru er að ræða. Kannski hindrar það stærri versl­an­irnar í að byrja en það má nú finna lausn á þessum atriðum,“ segir Kristín Inga.

Hingað mæta við­skipta­vinir með eigin ílát og fylla á.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins