„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Leita að stelpum til að leika frægar vinkonur

Leita að stelpum til að leika frægar vinkonur

Þjóð­leik­húsið leitar nú að tveimur stúlkum á aldr­inum átta til tólf ára til að fara með hlut­verk napól­ísku vin­kvenn­anna Elenu og Lilu í fyr­ir­hug­aðri upp­setn­ingu leik­húss­ins á Fram­úr­skar­andi vin­konu sem byggir á Napólísögum Elenu Ferrante. Bækurnar hafa selst í millj­ónum ein­taka um allan heim, meðal ann­ars í íslenskri þýð­ingu Brynju Cortes Andr­és­dóttur, og sjón­varps­þættir sem gerðir eru eftir sög­unum hafa sömu­leiðis vakið mikla athygli en þeir eru einmitt sýndir á RÚV um þessar mundir.

Unnur Ösp Stef­áns­dóttir og Vigdís Hrefna Páls­dóttir munu fara með hlut­verk vin­kvenn­anna á full­orð­ins­aldri en leitað er að stúlkum til að túlka hlut­verk þeirra á barns­aldri. Áhuga­samar stúlkur á þessum aldri geta sent inn umsókn í gegnum vef Þjóð­leik­húss­ins og í fram­haldi af því verður hluta umsækj­enda boðið í opnar prufur í Þjóð­leik­hús­inu. Skrán­ing­ar­frestur er til og með 15. júní.

Leik­stjóri sýn­ing­ar­innar verður suður-afríski leik­stjór­inn Yael Farber og haft er eftir Magnúsi Geir Þórð­ar­syni, þjóð­leik­hús­stjóra, á vef­síðu Þjóð­leik­húss­ins að í vændum sé mikil leik­hús­veisla.

„Upp­setn­ing Yael Farber á Fram­úr­skar­andi vin­konum verður án vafa mikil leik­hús­veisla“, segir Magnús Geir Þórð­ar­son Þjóð­leik­hús­stjóri og bætir við: „Við erum ákaf­lega spennt að svið­setja þetta verk sem hefur snert streng í hjörtum fólks um alla ver­öld. Það er leitun að bóka­flokki sem hefur náð svo mik­illi útbreiðslu á jafn skömmum tíma. Sagan er hjart­næm, grimm en einnig fal­leg og við getum varla beðið eftir því að hefja vinnu við verkið með leik­stjór­anum Yael Farber en hún er eft­ir­sóttur leik­sjóri um allan heim og við erum ákaf­lega þakk­lát að fá að njóta krafta hennar hér í Þjóð­leik­hús­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins