„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ferðast um landið á rafbíl – hve langt er á milli hleðslustöðva?

Ferðast um landið á rafbíl – hve langt er á milli hleðslustöðva?

Það er ekki svo langt síðan til­hugs­unin um að ferð­ast um landið á raf­bíl var hrein­lega eins og fjar­lægur draumur eða jafn­vel ósk­hyggja. Núna er þessi draumur orð­inn að veru­leika því það eru hleðslu­stöðvar um allt land og því létt verk að kom­ast hring­inn á raf­bíl. Svo allrar sann­girni sé gætt skal þess getið að hægt er að hlaða raf­bíla á Vest­fjörðum, í Vest­manna­eyjum og á Snæ­fells­nesi þó þeir staðir séu ekki á hinni hefð­bundnu leið þegar talað er um að „fara hring­inn“ í dag­legu tali.  

Með því að rýna í kort á vef Félags íslenskra bif­reiða­eig­enda má sjá hvar stöðv­arnar eru og þær eru sann­ar­lega út um allt! Vega­lengdir á milli stöðva eru ekki það miklar að ferða­langar lendi í vand­ræðum en þó er skyn­sam­legt að skoða þessi mál áður en haldið er af stað. Utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins eru sjaldn­ast meira en 70 kíló­metrar á milli stöðva og á það við um allan hring­inn. 

Það eru tveir kaflar þar sem til­tölu­lega langt er á milli hleðslu­stöðva á hring­veg­inum. Annars vegar er það á milli Egils­staða og Mývatns en þar á milli er hleðslu­stöð við Skjöld­ólfs­staði. Þá eru um 110 kíló­metrar að næstu hleðslu­stöð en það ættu nú flestir nýir raf­bílar að ráða við. Hins vegar er það á milli Hafnar í Horna­firði og Djúpa­vogs þar sem 103 kíló­metrar eru á milli.

Vest­firðir gætu kraf­ist útreikn­inga 

Á Vest­fjörðum er tölu­verða aukn­ingu að sjá hvað raf­bíla­eign snertir. Þar er jafn­framt að finna þann veg­ar­kafla sem lengst er á milli hleðslu­stöðva en hann er á milli Pat­reks­fjarðar og Reykhóla. Á milli þessa staða eru 192 kíló­metrar og um margar brattar brekkur að fara þannig að best er að hafa var­ann á og reikna dæmið til enda áður en sú leið er ekin á raf­bíl. Á milli Pat­reks­fjarðar og Ísa­fjarðar eru 177 kíló­metrar og er það næst­lengsti spott­inn á milli hleðslu­stöðva.  

 Mun fleiri raf­bílar en met­an­bílar 

Nokkur fjöldi met­an­bíla til­heyrir íslenska bíla­flot­anum en SORPA bs. hefur fram­leitt metan sem elds­neyti fyrir bíla frá árinu 2000. Metan er fram­leitt úr hauggasi sem mynd­ast við nið­ur­brot á líf­rænu efni á urð­un­ar­stað höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins í Álfsnesi og af því má fram­leiða heilan hell­ing.  

Met­an­bílar eru líka með bens­íntank sem skipt er yfir á þegar metanið klár­ast. Það er eins gott því það eru bara met­an­af­greiðslu­stöðvar í Reykja­vík og á Akureyri. Met­an­bílar eru margir hverjir spar­neytnir og hægt að fara hring­inn á met­ani einu saman en þó mætti alveg fjölga afgreiðslu­stöðum.  

Raf­bíla­flot­inn er mun stærri en floti met­an­bíla og á vef Orku­set­urs má sjá fjöld­ann. Met­an­bílar eru nú 1.581 á Íslandi og raf­bílar eru 4.776 tals­ins. Af þeim 219.485 bílum sem mynda hinn íslenska bíla­flota eru nú 6,8 pró­sent þeirra hrein­orku­bílar (losa ekki gróð­ur­húsa­loft­teg­undir) en fyrir tveimur árum síðan var pró­sentu­hlut­fallið 3,9. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins