„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Tilgangurinn var ekki að græða peninga

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, segir útlit fyrir að sumt fólk haldi að hann og Íslensk erfða­grein­ing hafi ætlað að græða pen­inga á allri vinn­unni sem vís­inda­menn Íslenskrar erfða­grein­ingar lögðu til í krór­ónu­veiru­far­aldr­unum. Hann segir það vera ósatt og áréttar mis­skiln­ing­inn í færslu sem hann birtir á Facebook í dag.

Kári segir til­gang vinn­unnar alltaf hafa verið að taka þátt í að hemja útbreiðslu far­ald­urs­ins og tekur fram að vegna umræðu í fjöl­miðlum sjái hann sig knú­inn til að tjá sig um málið.

„Það bjó ekk­ert annað að baki þeirri skimun sem ÍE fram­kvæmdi eftir SARS-CoV-2 í íslend­ingum en löngun til þess að taka þátt í að hemja far­ald­ur­inn. Það sama á við um skimun­ina eftir mótefnum gegn veirunni. ÍE og eig­andi hennar Amgen hafa aldrei haft uppi áætl­anir um að búa til úr þess­ari vinnu sölu­vöru til þess hafa af fjárhagslegan ávinn­ing. Þegar ég hafði á sínum tíma sam­band við stjórn­endur Amgen og sagði að ég vildi hefja skimun var svarið sem ég fékk: „Í guð­anna­bænum gerðu það og bjóddu stjórn­völdum alla þá hjálp sem þú getur veitt.“ Það vill svo til að Covid-19 far­ald­ur­inn hefur laðað fram það besta í svo mörgum og meira að segja harðsvíruðum kap­ít­alistum eins og þeim sem stjórna lyfja­iðn­að­inum. Stærstu lyfja­fyr­ir­tæki heims hafa heitið því að gera sitt besta til þess að búa til eins fljótt og hægt er bólu­efni gegn veirunni og lyf til þess að lækna Covid-19 og dreifa þessu um allan heim án þess að græða á því fé. Þetta er ein­stakt og fal­legt og svona á heim­ur­inn að vera,“ skrifar hann í færsl­una.

Hann bætir við að löng­unin til að upp­götva eitt­hvað nýtt hafi svo rekið vís­inda­menn Íslenskrar erfða­grein­ingar áfram. Hann segir þá hafa fljótt farið að „fá eitt­hvað fyrir sinn snúð“.

„Það sem við fengum fyrir snúð­inn var sú gleði sem fylgir því að upp­götva eitt­hvað nýtt um eðli sjúk­dóma og heilsu. Við erum upp­götv­anafíklar og nýr sjúk­dómur sem ekk­ert er vitað um er hval­reki fyrir þá fíkn. Þetta var dópið beint í æð. Sem sagt við skimuðum ekki af góð­mennsku eða fórn­fýsi heldur til þess að hlúa að því sam­fé­lagi sem við búum og þannig að okkur sjálfum og síðan gerðum við það líka til þess að kom­ast í þá vímu sem við lifum fyrir.“

Færslu Kára má sjá hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónaveiran

Kórónuveiran: Önnur bylgjan sækir í sig veðrið
Innlentkórónaveiran

Kór­ónu­veiran: Önnur bylgjan sækir í sig veðrið

19 til­felli kór­ónu­veiru greindust á Íslandi eftir sýna­tökur í gær, sam­kvæmt stað­festum tölum Embættis land­læknis. Þar af voru 12 utan sótt­kvíar. Fleiri til­felli hafa ekki greinst á einum sól­ar­hring síðan í apríl, þegar fyrri bylgja far­ald­urs­ins stóð hvað hæst og stíft sam­komu­bann var í gildi. Önnur bylgja far­ald­urs­ins virð­ist því ekki vera í rénun heldur þvert á móti sækja í...
Einn í einangrun á Austurlandi – smit í öllum landshlutum
Innlentkórónaveiran

Einn í ein­angrun á Aust­ur­landi – smit í öllum lands­hlutum

Fyrsta smitið af Covid-19 í þess­ari nýju bylgju smita hefur verið greint á Aust­ur­landi og er sá aðili í ein­angrun. Nú eru því virk smit í öllum lands­hlutum, flest á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eða sex­tíu og sjö og næst­flest á Vest­ur­landi alls níu smit. Níu inn­an­lands­smit greindust í gær, fólki í sótt­kví fjölg­aði um fjórtán og eru nú 746 manns í sótt­kví...
Reykjavíkurmaraþoninu aflýst
Innlentkórónaveiran

Reykja­vík­ur­mara­þon­inu aflýst

Reykja­vík­ur­mara­þoni Íslands­banka hefur verið aflýst vegna COVID-19. Áður stóð til að halda mara­þonið með beyttu sniði vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins en í nýrri til­kynn­ingu kemur fram að mara­þon­inu hefur verið aflýst. „Því miður sjáum við okkur ekki fært að halda við­burð­inn, sem fara átti fram 22. ágúst n.k. og upp­fylla um leið skil­yrði Almanna­varna, sem tóku gildi 31. júlí síð­ast­lið­inn,“ segir í...
Óvíst að Glastonbury-hátíðin verði haldin á næsta ári
Heimurkórónaveiran

Óvíst að Gla­ston­bury-hátíðin verði haldin á næsta ári

„Ég held enn í von­ina um að hún verði haldin á næsta ári,“ segir Michael Eavis, fram­kvæmda­stjóri Gla­ston­bury tón­list­ar­há­tíð­ar­innar í sam­tali við ITV News. „Ég mun setja allt á annan end­ann til að reyna að tryggja það að hátíðin verði haldin þá, en það þýðir ekki endi­lega að af því verði. Það er í raun­inni bara ósk­hyggja.“ Eavis sagði að...
Fleiri hópsýkingar og ekkert frí
Innlentkórónaveiran

Fleiri hóp­sýk­ingar og ekk­ert frí

„Við eigum eftir að fá aðra hóp­sýk­ingu eftir þessa,” sagði Þórólfur Guðnason, sótt­varn­ar­læknir, í sam­tali við morg­un­út­varp Rásar 2 í morgun þar sem hann ræddi stöðu mála vegna COVID-19 hér á landi. Þórólfur sagði að það væri ljóst að fleiri hóp­sýk­ingar eigi eftir að koma upp á næst­unni, alveg sama þó eft­ir­lit við landa­mærin verði strangt. Hann sagði að und­an­farið...
Átta ný innanlandssmit og 670 manns í sóttkví
Innlentkórónaveiran

Átta ný inn­an­lands­smit og 670 manns í sótt­kví

Átta ný inn­an­lands­smit greindust á veiru­fræð­i­­deild Land­­spít­­al­ans í gær, en þar voru tekin 291 sýni. Tvö smit greindust við landa­mærin, þar sem tekin voru 2.035 sýni, og er beðið mótefna­mæl­ingar úr þeim. Íslensk erfða­grein­ing tók 914 sýni en ekk­ert þeirra reynd­ist jákvætt. Áttatíu manns eru nú í ein­angrun, sam­­kvæmt upp­­lýs­ingum á covid.is, fjölg­aði um átta milli daga. 670 ein­stak­l­ingar eru...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins