„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Telja matvælaframleiðendur skorta þekkingu á matarsóun

Starfs­hópur um aðgerðir gegn mat­ar­sóun hefur skilað Guðmundi Inga Guð­brands­syni umhverfis- og auð­linda­ráð­herra til­lögum sínum um hvernig hægt er að ná mark­mið­inu um að draga úr mat­ar­sóun um 50% fyrir árið 2030.

Alls eru til­lögur hóps­ins 24 tals­ins, þeim er skipt í 14 aðgerðir á ábyrgð stjórn­valda og 10 aðgerðir á ábyrgð atvinnu­lífs­ins. Í skýrsl­unni er lögð áhersla á að til að hægt sé að ná árangri í að draga úr mat­ar­sóun þurfi sam­stillt átak þar sem allir leggj­ast á eitt. Hópurinn telur að atvinnu­lífið, almenn­ingur og stjórn­völd þurfi að setja málið í for­grunn.

Hópurinn skil­aði Guðmundi Inga umhverfis- og auð­linda­ráð­herra til­lögum sínum. Mynd / Umhverf­is­ráðu­neytið

Til­lög­urnar eru fjöl­breyttar en hluti þeirra snýr að vit­und­ar­vakn­ingu meðal mat­væla­fram­leið­enda og frum­fram­leið­enda.

Markmið aðgerðar númer 16 í skýrsl­unni snýst til að mynda um að auka þekk­ingu mat­væla­fram­leið­enda á hvað mat­ar­sóun er og hverjar mögu­legar aðgerðir til að sporna við henni eru.

„Það virð­ist skorta þekk­ingu meðal mat­væla­fram­leið­enda á mat­ar­sóun og á mögu­legum aðgerðum sem þeir geta gripið til gegn henni, t.d. á mögu­leikum til auk­innar nýt­ingar hlið­ar­af­urða og verð­mæta­sköp­unar úr þeim. Aðgerðin felst í að greina þær hlið­ar­af­urðir sem falla til í mat­væla­vinnslu og heild­sölu og fara ekki á markað,“ segir meðal ann­ars í um mark­miðið í skýrsl­unni.

„Það skortir þekk­ingu meðal frum­fram­leið­enda á mat­ar­sóun…“

Aðgerð 15 felur þá í sér að vekja frum­fram­leið­endur mat­væla til umhugs­unar með það að mark­miði að auka þekk­ingu fram­leið­enda á til hvaða aðgerða sé hægt að grípa til að sporna gegn mat­ar­sóun og hvernig má auka verð­mæta­sköpun úr því hrá­efni sem til fellur

„Það skortir þekk­ingu meðal frum­fram­leið­enda á mat­ar­sóun og á mögu­legum aðgerðum sem þeir geta gripið til gegn henni, t.d. á mögu­leikum til auk­innar nýt­ingar hlið­ar­af­urða og
verð­mæta­sköp­unar úr þeim. Aðgerðin felst í að greina þær hlið­ar­af­urðir sem falla til í
frum­fram­leiðslu og fara ekki á markað, s.s. vegna útlits eða ann­arra galla.“

Umhverfis- og auð­linda­ráðu­neytið óskar eftir umsögnum um til­lögur starfs­hóps­ins að aðgerðum gegn mat­ar­sóun og skýrsl­una má nálg­ast á Sam­ráðs­gátt. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins