„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Segir tíma átaka og ósættis innan SÁÁ vera liðinn

Ein­ar Her­manns­son, stjórn­ar­maður í SÁÁ, sæk­ist eftir for­mennsku SÁÁ. Þór­ar­inn Tyrf­ings­son sæk­ist einnig eftir sæti for­manns. Einar ræddi málið í morg­un­út­varpi Rásar 2 og sagð­ist vilja skapa frið innan sam­tak­anna. Hann segir sam­skipti sín og Þórarins alltaf hafa verið góð og að hann gæti hugsað sér að nýta Þórarinn í verk­efni innan SÁÁ verði hann sjálfur kjör­inn for­maður.

Einar sagði tíma ósættis og átaka innan SÁÁ vera lið­inn. Hann sagði sitt fram­boð snú­ast um að vilja skapa gott sam­starf innan SÁÁ, að það væri nauð­syn­legt til að starfið „gangi smurt.“

Þegar hann var spurður út í mun­inn á honum og Þórarni sagði Einar að hans fram­boð sner­ist um að skapa frið og traust og horfa til fram­tíðar.

Hann bætti við að nú þyrfti að ein­blína á að skapa góða vinnu­stað­ar­menn­ingu sem byggir á góðum sam­skiptum innan SÁÁ í stað þess að vera í átökum í fjöl­miðlum.

Hann tók fram að SÁÁ gæti vel nýtt krafta Þórarins í ein­hverjum verk­efnum þar sem hann hafi mikla reynslu og að þeirra sam­skipti hafi alltaf veri góð. „Hann hefur nátt­úru­lega gert gríð­ar­lega gott starf fyrir SÁÁ í gegnum tíð­ina,” sagði Einar um Þórarinn.

Átökin hafa áhrif út á við

Aðspurður hvort að ósættið sem hefur ríkt innan veggja SÁÁ um nokk­urt skeið hafi breytt skoðun fólks á SÁÁ sagði Einar að það gæti vel verið en kvaðst vona að átökin muni ekki hafa lang­tíma­á­hrif á sýn fólks á sam­tökin. Hann tók þá fram að sam­tökin finna fyrir mik­illi vel­vild í sam­fé­lag­inu. „Það sést til dæmis á álfasöl­unni,“ sagði hann.

Næsta þriðju­dag verður aðal­fundur SÁÁ hald­inn þar sem nýr for­maður sam­tak­anna verður kos­inn.

Þess má geta að Mannlíf fjall­aði um átökin innan SÁÁ fyrr á árinu. Þá sagði Þórarinn í sam­tali við Mannlíf að hann ætti enga sök á ástand­inu sem upp er komið. „Ég er hryggur yfir því hvernig staðan er. Ég á enga sök á því og hef hvergi komið þarna nærri á nokkurn hátt enda ekki með neitt umboð til þess. Fólk verður bara að axla sína ábyrgð í þessu,“ sagði Þórarinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins