„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Gekk erfiðlega að finna þá látnu í húsinu

Jón Viðar Matth­ías­son, slökkvi­liðs­stjóri hjá slökkvi­liði höf­uð­borg­ar­svæðis­ins, segir það hafa tekið nokkuð langan tíma að finna þá sem lét­ust í elds­voð­anum sem kom upp í húsi Bræðra­borg­ar­stígs og Vest­ur­götu. „Já, það gerði það. Það var mik­ill eldur í hús­inu þegar við komum á vett­vang,“ segir Jón Viðar í sam­tali við Mannlíf. Hann segir að strax hafi verið ljóst að um stórt verk­efnið var að ræða.

„Við fórum strax í það að bjarga fólki út úr hús­inu. Við fáum svo að vita að það séu tveir enn þá inni í hús­inu og við sendum inn reykka­f­ara og tölu­vert af þeim. Við náum að leita vel á annarri hæð og erum fljót­lega töltölu­lega örugg um að það sé eng­inn þar,“ útskýrir Jón Viðar.

„Við náum einnig að leita í hluta af ris­inu en á einum tíma­punkti verða reykka­f­arar að hörfa út vegna hita og hættu á að gólfið myndi gefa sig.“

Mynd / Hallur Karlsson

Hann segir að á þeim tíma­punkti hafi verið komin gróf mynd af því hvar þeir látnu voru í hús­inu.

Á sjö­unda tím­anum í gær­kvöldi fór aðgerð af stað það sem slökkvi­liðs­menn voru sendir inn í húsið til að koma þeim látnu út. Þeir not­uð­ust við körfu­bíla til að kom­ast inn um glugga í ris­inu.

Aðspurður hvor að þá hafi verið mikil hætta á að gólfið myndi gefa sig segir Jón Viðar: „Já, það var hætta á því en við festum línu í menn þannig að ef gólfið hrynur undan þeim þá fara þeir ekki langt.

Jón Viðar segir verk­efnið hafa verið afar erfitt þegar ljóst var að ein­hverjir væru inni í hús­inu. „Hugur okkar er hjá fólk­inu sem slapp úr hús­inu og aðstand­endum þeirra sem lét­ust. Núna ein­blínum við á að halda utan um okkar starfs­fólk.“

Jón Viðar segir fag­leg vinnu­brögð við erf­iðar aðstæður hafa einn­kennt vinnu sam­starfs­fólks síns í gær. „Það voru engin læti í fólki. Fólk gekk bara í sín verk­efni eins og það er þjálfað í.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins