„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Unnar Þór missti vin sinn úr neyslu og biðlar til þingmanna: „Við getum ekki beðið, við erum að deyja“

Unnar Þór missti vin sinn úr neyslu og biðlar til þingmanna: „Við getum ekki beðið, við erum að deyja“

Unnur Þór Sæmunds­son, fyrrum gjald­keri Pírata, minn­ist vinar síns, Alberts Ísleifs­sonar, í færslu sem hann skrifar á Facebook.

Albert lést 9. júlí í fyrra, 27 ára gam­all, vegna ofneyslu vím­efna.

Albert Ísleifs­son

„Það hefði ekki verið of seint til að bjarga honum – og mörgum öðrum,“ segir Unnar Þór.

Tilefni færsl­unnar er fyr­ir­huguð atkvæða­greiðsla á Alþingi á morgun, mánu­dag, sem snýr að afglæpa­væð­ingu neyslu­skammta vímu­efna. Frum­varpið er ein­ungis tvær máls­greinar, en í því lagt til að varsla á neyslu­skömmtum fíkni­efna verði ekki lengur refsi­verð. Einnig verður lög­reglu óheim­ilt að gera upp­tæk efni neyt­enda, enda hefur þeirra hvorki verið aflað á ólög­mætan hátt né þau í ólög­mætri vörslu.

Sjá einnig: Afglæpa­væð­ing neyslu­skammta – mun portú­galska leiðin virka hér?

„Portúgal var fyrsta landið í Evrópu til þess að afglæpa­væða neyslu­skammta árið 2001. Með ótrú­legum árangri hefur sam­fé­lags­legur vandi tengdur fíkn fallið um allt að 50%. Þrátt fyrir að sér­fræð­ingar hafi fyr­ir­fram spáð aukn­ingu í neyslu ákveð­ina efna þá hefur neysla allra efna staðið í stað,“ segir Unnar Þór, sem seg­ist hafa varið megn­inu af deg­inum í dag að hringja í þing­menn.

Meirihluti þingmanna telur frumvarpið ótímabært

Unnar Þór segir þing­menn meiri­hlut­ans hafa sagt ótíma­bært að sam­þykkja frum­varpið.

„Það gerir mig óend­an­lega sorg­mæddan því ég veit frá fyrstu hendi hvernig vímu­efni geta hel­tekið líf og lagt allt í rúst, ég þekki það líka hvernig núver­andi lög­gjöf við­heldur ástand­inu og dregur okkur til baka þegar vel gengur, gerir fíklum þannig erf­ið­ara að skilja við neyslu­heim­inn,“ skrifar Unnar Þór, sem sjálfur glímdi við fíkn og hefur sagt sögu sína í við­tölum, bæði á Mannlíf og í DV.

Sjá einnig: „Mamma og amma gengu í gegnum algjört hel­víti“

Unnar segir núver­andi fyr­ir­komu­lag búi til glæpa­menn úr veiku fólki. Stríð gegn vímu­efnum sé í grunn­inn stríð gegn fólki, veiku fólki að hans mati. „Að vera tek­inn ungur með vímu­efni getur þýtt að lífið eins og fólk þekkir það sé búið. Þú færð ekki vinnu, þú færð ekki lækn­is­hjálp við hæfi, þú ert útskúf­aður og eltur. Þú færð ekki séns. Hvers vegna þykir okkur í lagi að elt­ast við og refsa einum hóp af veiku fólki en ekki öðrum?”

Núverandi fyrirkomulag eykur á vandann

Unnar Þór segir núver­andi fyr­ir­komu­lag ekki hafa fært okkur örugg­ara sam­fé­lag, heldur aukið á vand­ann. Að hans mati er tími kom­inn til að taka aðra stefnu og tæki­færið til þess sé núna.

„Einn fík­ill er miklu meira en bara fík­ill­inn sjálfur. Fík­ill­inn er barn ein­hvers, systkin, fjöl­skylda. Fíklar eru for­eldrar og makar. Fíkill ætti ekki að þurfa að tengja við aðra, til að vera metin sem mann­eskja, hver sem er getur verið fík­ill og það er eng­inn stikk­frí,“ segir Unnar Þór.

„Ég er fík­ill í bata, ég á vini sem eru fíklar bæði í bata og ekki í bata og ég átti vini sem voru fíklar en eru farnir.“

Unnar Þór segir Ísland eiga met í dauða tengdum ofskömmtum á Norð­ur­löndum og afglæpa­væð­ingu geta fært okkur nær engum dauðs­föllum.

„Afglæpa­væð­ing hefur marg­sannað sig í þeim löndum sem hafa haft hjarta og þor til að inn­leiða þessa leið. Stríð gegn vímu­efnum er í grunn­inn stríð gegn fólki, veiku fólki. Með sam­taka­mætti getum við breytt þessu og bjargað lífum því öll töf á mál­inu kemur til með að koma niður á öllu þjóð­fé­lag­inu en lang­verst á fíklum því við erum að deyja. Það er ekki stjórn­mála­fólkið sem stýrir ferð­inni, sem er að deyja eða hags­muna­að­il­arnir sem efast né eru það heil­brigðir ein­stak­lingar sem týna líf­inu í bar­átt­unni við Bakkus.“

Unnar biðlar til þing­manna að leggja póli­tík­ina til hliðar og sam­þykkja frum­varpið í atkvæða­greiðsl­unni á morgun. „Ef það getur ekki hugsað sér að leggja póli­tík­ina til hliðar þá biðla ég til þeirra frá innstu hjartarótum að standa ekki í vegi fyrir lífs­björg og sitja hjá í atkvæða­greiðsl­unni á Alþingi á mánu­dag­inn.“

„Við getum ekki beðið, við erum að deyja.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins