„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Ég skelf ekki á beinunum“

„Ég skelf ekki á beinunum“

„Ég við­ur­kenni að það er erfitt að takast á við svona stór öfl. Ég er þó hvergi bang­inn og mun ekki stressa mig út af þessu. Hver sem útkoman verður þá verð ég bara að sætta mig við hana,“ segir Jóhann Helgason, tón­list­ar­maður og laga­höf­undur, sem staðið hefur í löngum mála­ferlum við banda­ríska útgáfurisa.

Fyrsta plata Jóhanns kom út áður en sá sem þetta skrifar kom í heim­inn þannig að vel lukk­aður tón­list­ar­fer­ill­inn spannar langt tíma­bil. Hann var hins vegar grýttur niður af svið­inu á fyrstu tón­leik­unum ungur að árum. Feimni tón­list­ar­manns­ins olli honum mik­illi van­líðan framan af og Jóhann faldi sig bak við loð­feld og sól­gler­augu. Sögur um dóp­neyslu hans og sam­kyn­hneigð fylgdu honum lengi og særðu hann mjög.

Jóhann þakkar tíðum kúreka­leikjum í æsku í drullu­polla­sveit­inni Keflavík fyrir bar­áttu­and­ann sem hefur gagn­ast honum í erf­iðum mála­ferlum við ris­ana í Los Angeles.

Pizzur í stað ýsunnar

Jóhann seg­ist ekk­ert eiga nema góðar minn­ingar úr æsku og segir það hafa verið algjört ævin­týri að alast upp í Keflavík. Hann var lang­yngstur fimm systk­ina og nálægðin við banda­ríska her­inn var sveipuð ævin­týra­ljóma. „Þarna var Keflavík bara dullu­polla­sveit og mikið brallað. Við krakk­arnir veiddum á bryggj­unni, sóttum timbur í slipp­inn til að búa til boga og tálg­uðum mikið út. Ég man eftir öllu umstang­inu í kringum her­inn og það fannst mér alltaf mjög ævin­týra­legt og flott. Þar komst maður líka á veit­inga­stað­ina þar sem feng­ust ham­borg­arar og pizzur, það var breyt­ing frá soðnu ýsunni heima,“ segir Jóhann bros­andi.

Þegar Jóhann komst á kyn­þroska­skeiðið tóku erf­ið­leik­arnir við. Ung­lings­árin voru erf­ið­asti tími sem laga­höf­und­ur­inn upp­lifði. „Mínar erf­ið­ustu minn­ingar eru frá því tíma­bili. Ég var mjög feim­inn og við­kvæmur, ákaf­lega til­finn­inga­ríkur, og það háði mér lengi vel.“

Sögur um samkynhneigð

„Ég byrj­aði eig­in­lega að drekka af því ég var svo feim­inn og þegar voru komnar fullt af stelpum í kringum mig sá ég þetta sem leið til að vinna úr því. Hins vegar varð þessi feimni til þess að ég þorði lítið að tala við stelp­urnar og þorði ekki að gera neitt þegar þær reyndu við mig,“ segir Jóhann sem segir að feimni hans við stelp­urnar hafi lík­lega orðið til þess að sögur um sam­kyn­hneigð hafi farið á kreik. Þær hafi verið erf­iðar sökum þess hvernig sam­fé­lagið var á þessum tíma og sam­kyn­hneigð varla við­ur­kennd.

„Þess vegna fóru af stað þessar sögur um að ég væri sam­kyn­hneigður. Þær voru and­styggi­legri á þessum tíma þegar henni fylgdi enn svo mikil skömm. Ég reyndi hvað ég gat til að taka þetta ekki nærri mér en mér fannst þetta mjög erfitt og leið­in­legt. Það er svo auð­velt að koma svona sögum af stað og þetta loddi lengi við mig. Eftir á held ég þó að margir hafi skamm­ast sín fyrir að bera út þessar sögur,“ segir Jóhann alvar­legur í bragði.

„Að verða frægur með þann galla að vera svona feim­inn var hins vegar mikil áskorun og hér áður fyrr afþakk­aði ég oft verk­efni því mér fannst þetta svo óþæg­in­legt.“

Gleraugun til varnar

Jóhann bendir á að það sé auð­velt að ýta undir sögu­sagnir og að þegar hann hafi verið að koma sér áfram í tón­list­inni hafi margir haldið hann vera algjöran dóphaus. „Ég var á þessum tíma frekar skraut­legur til fara, í þykk­botna skóm og loð­jökkum og var með sól­gler­augu, sem var bara sama­sem­merki um að ég væri bara alltaf útúr­dóp­aður. Gler­augun not­aði ég sem vörn út af við­kvæmn­inni og feimn­inni,“ segir Jóhann.

Til að friða for­eldra sína hóf Jóhann nám í Iðn­skól­anum en það ent­ist aðeins í eitt ár því tón­listin átti ein­fald­lega hug hans allan. Þrátt fyrir feimn­ina hefur hann náð langt og telur það sér til happs að hafa kynnst eig­in­kon­unni ungur að árum. „Ég átti mér fljót­lega þennan draum að fara í tón­list­ina þó að for­eldrar mínir hafi viljað að ég færi í meira nám. Mig lang­aði alveg í nám en það varð aldrei neitt úr því þar sem tón­listin tog­aði svo mikið í. Þegar ég byrj­aði í tón­list­inni var hrein­lega ekki aftur snúið.“

Heltekinn af Bítlunum

Jóhann var 13 ára gam­all þegar Bítla­æðið braust út sem varð til þess að hann sá ekk­ert annað en tón­list­ina. Fram að þeim tíma hafði hann aðeins notað gít­ar­inn til að stríða heim­ilsk­ett­inum.

„Ég kunni ekk­ert á gít­ar­inn en strauk oft streng­ina til að að fram­kvæma hljóð sem kött­ur­inn þoldi ekki. Ég varð síðan alveg hel­tek­inn af Bítlunum og í raun allri bresku bylgj­unni á þessum tíma. Þarna fór ég að læra á gít­ar­inn og í fram­hald­inu bæði að semja og syngja því mig lang­aði til að gera eitt­hvað í lík­ingu við þessa tón­list,“ segir Jóhann.

Fyrstu tvo ára­tug­ina á ferli Jóhanns átti hann stundum erfitt með að koma fram opin­ber­lega vegna feimn­innar. Um alda­mótin síð­ustu tókst honum að yfir­stíga hana. „Hér áður var ekk­ert auð­velt að koma fram. Ég hef hins vegar lært að höndla þetta betur og stýra því. Lífið væri mikið leið­in­legt ef maður þyrfti ekk­ert að tálga til hjá sér. Að verða frægur með þann galla að vera svona feim­inn var hins vegar mikil áskorun og hér áður fyrr afþakk­aði ég oft verk­efni því mér fannst þetta svo óþæg­in­legt. Ég náði hins vegar að taka á þessu og í dag finnst mér þetta bara gaman.“

Grýttir niður á vellinum

Fyrsta skiptið sem Jóhann kom fram með hljóm­sveit var með hljóm­sveit­inni Rofar árið 1964 í Pól­ar­klúbbnum á Kefla­vík­ur­flug­velli sem var stór klúbbur fyrir óbreytta her­menn. Þeir tón­leikar gengu reyndar ekk­ert sér­stak­lega vel, rifjar hann upp. „Að spila á flug­vell­inum var dálítið gaman því Kanarnir voru yfir­leitt þakk­látir fyrir tón­list­ina. Und­an­tekn­ingin voru fyrstu tón­leik­arnir mínir enda her­menn­irnir vanir góður hljóm­sveitum en flutn­ing­ur­inn hjá okkur var dáldið brota­kenndur og text­arnir ekki alveg á hreinu kannski. Við þurftum að forða okkur eftir nokkur lög þegar þeir fóru að grýta bjór­dósum í okkur. Við létum þetta okkur að kenn­ingu verða og æfðum mjög vel í kjöl­farið,“ segir Jóhann.

Jóhann hefur átt langt og far­sælt sam­starf við tón­list­ar­mann­inn Magnús Þór Sig­munds­son. Á unga aldri voru þeir búsettir í Keflavík og Njarðvík en á þeim tíma var erf­ið­ara að kom­ast á milli en er í dag. „Við byrj­uðum á því að semja sitt í hvor­u­lagi og hringdum svo í hvorn annan til að hlusta á lögin. Þannig byrj­aði þetta og okkar sam­starf hefur verið kjöl­festan í ferl­inum. Hjá mér var aldrei aðal­málið að koma sjálfur fram heldur meira að semja og fá lögin í hend­urnar á öðrum.“

Símtalið kom á óvart

Þegar Jóhann var 22 ára gam­all, árið 1972, fékk hann óvænt sím­tal frá stór­tækum tón­list­ar­út­gef­anda sem bauð honum og Magnúsi útgáfu­samn­ing. Hann hafði ekki haft hug­mynd um að þá hafði tón­list þeirra félaga verið í dreif­ingu meðal ungs fólks á íslandi. „Einhvern veg­inn komst blaða­maður yfir kasettu með okkar efni og dreifði henni víða í skólum. Út frá þessu frétti síðan öfl­ugur útgef­andi af þessu og bauð okkur í kjöl­farið útgáfu­samn­ing. Ég vissi í raun aldrei af þess­ari kasettu og því kom sím­talið á óvart. Það var vissu­lega bæði mjög gaman og óvænt því þarna sjáum við að tón­listin okkar ætti erindi til ann­arra,“ segir Jóhann kátur.

Aðspurður um hvað honum þyki vænst um á tón­list­ar­ferl­inum segir hann það vera að hafa auðn­ast að semja lög sem hafa fallið í kramið og lifað lengi. „Ég er fullur þakk­lætis fyrir þetta tæki­færi að starfa við tón­list svona lengi. Það er alveg ómet­an­leg til­finn­ing því þetta er alls ekki sjálf­sagt og ég sé það betur með árunum. Að hafa náð að semja lög sem flytj­ast milli kyn­slóða er mjög gaman og að vita til þess að lögin komi til með að lifa mig er líka mjög gaman.“

„Ég byrj­aði eig­in­lega að drekka af því ég var svo feim­inn og þegar voru komnar fullt af stelpum í kringum mig sá ég þetta sem leið til að vinna úr því,“ segir Jóhann.

Prófaði flest

Jóhann við­ur­kennir að á þessum árum hafi hann prófað flest þau vímu­efni sem á mark­aðnum finn­ast og að það hversu illa hann kunni við áhrifin hafi bjargað honum frá því að ánetj­ast þeim. Áfengið reynd­ist honum erf­ið­ast. „Ég pru­faði jú flest þessi efni sem voru þarna en ég slapp sem betur fer við að láta það leiða mig lengra. Það voru allir í kringum mig með eitt­hvað í álp­appír en ég var oft­ast bara inni í eld­húsi á meðan. Ég bara fíl­aði ekki þessi efni, hefði ég gert það hefði ég samt örugg­lega verið með,“ segir Jóhann og rifjar upp allar sög­urnar sem um hann gengu á sínum tíma varð­andi dóp­neyslu.

„Einhvern tím­ann var Maggi stopp­aður af fíkni­efna­lögg­unni sem dró hann til hliðar og fór að ræða við hann um hvað staðan á mér væri slæm. Ég væri hrein­lega alltaf skakkur með sól­gler­augun. Þá held ég hins vegar að Maggi hafi sjálfur verið nýbú­inn að fá sér eina feita. Ég hef oft­ast náð að höndla áfengi en ég hef líka oft ekk­ert hagað mér sér­stak­lega vel með víni. Ég hef verið leið­in­legur og sýnt á mér agressí­vari hliðar en ég hefði viljað. Ég sé auð­vitað eftir því enda eng­inn sómi af.“

Lítið í ísskápnum

Heimsókn Jóhanns til systra hans í Banda­ríkj­unum árið 1964 var mikið ævin­týri og síðar reyndi hann að ger­ast umboðs­sali fyrir amer­ískt tyggigúmmi á Íslandi. Aðspurður um hvort hægt sé að lifa af tón­list hér á landi segir hann það ekki alltaf hafa verið auð­velt og það hafi ekki hjálpað til að eig­in­konan hafi líka verið í listum. Þó að börn hans og barna­börn hafi sum erft tón­list­ar­genin er Jóhann feg­inn því að þau hafi ekki farið út í brans­ann. „Það er hægt að lifa á tón­list ef þú ert með alla anga úti. Það komið mörg tíma­bil þar sem lítið var til í ískápnum og full­trú­inn í bank­anum hefur skammað okkur hjónin að vera bæði í listum. Sú stað­reynd að við erum bæði lista­fólk hefur hins vegar leyft okkur að kenna hvort öðru um að hafa ekki valið tekju­hærri starfs­vett­vang,“ segir Jóhann og brosir út í annað.

„Já, genin eru þarna. Fjöl­skyldan mín er auð­vitað mesta gæfan. Fyrir utan tón­list­ina er ég ríkur maður í dag. Ég hef hvorki hvatt börnin né latt þau áfram í tón­list­inni en ég vildi ekki ýta þeim út í brans­ann því hann er ekki auð­veldur fyrir neinn. Að lifa á tón­list­inni er þannig að stundum fiskast vel og stundum ekki. Hefði ég sjálfur átt að velja mér eitt­hvað annað hefði ég valið arki­tektúr. Þar er maður líka að búa til ein­hver fal­leg form. Maður verður hins vegar að velja það sem hjartað kallar á og ég sé alls ekk­ert eftir því.“

Ekki mikill rappari

Jóhann hjólar mikið og þá kýs hann að hafa eldri tón­list í eyr­unum frekar en nýrri verk. Engu að síður segir hann það magnað hvað mikið er til af góðri tón­list á Íslandi í dag. „Það er meira gam­alt efni í tæk­inu hjá mér því sú tón­list fer algjör­lega með mig á stað­inn þar sem ég var staddur hverju sinni. Ég fylgist aðeins minna með því sem nýrra er en sonur minn hefur aðeins laumað rapp­inu að mér.

Það eru aug­ljós­lega miklir hæfi­leikar í land­inu en ég get nú ekki sagt að ég sé mik­ill rapp­ari samt. Hins vegar efast ég ekk­ert um að það er örugg­lega gaman að vera rapp­ari,“ segir Jóhann.

Árið 2004 hóf Jóhann höf­unda­rétt­ar­stríð við norska laga­höf­und­inn Rolf Løvland. Hann kallar vinnu­brögð Norð­manns­ins apa­smíðar. „Þetta hefur verið mik­ill skóli fyrir mig og ég sá mig nauð­beygðan til að fara í þetta mál þar sem lagið var metið svo líkt mínu. Textinn er líka end­ur­speglun af text­anum í Söknuði. Líkindin eru ótrú­leg, bæði lag og texti, enda hefur hitt lagið ratað alveg sama veg inn á jarð­ar­farir og stórar minn­ing­ar­há­tíðir.“

„Svona risar svífast einskis og lög­fræð­ingar þeirra af svip­uðum meiði.“

Réðst á risana

Frá árinu 2018 hefur orr­ustan verið við útgáfuris­ana Uni­ver­sal Music og Warner í Banda­ríkj­unum. Málinu var vísað frá nú í apríl og segir Jóhann von­brigðin gíf­ur­leg. „Ég er dálítið brenndur. Nið­ur­staðan er vissu­lega von­brigði og kom mér auð­vitað á óvart. Ég er hins vegar alls ekk­ert hræddur því maður var alltaf með­vit­aður um að hinn aðil­inn gæti haft betur. Ég skelf ekki á bein­unum þótt þessi fyr­ir­tæki heiti Uni­ver­sal og Warner,“ segir Jóhann ákveð­inn. Hann á von á því að málið taki alla­vega 1-2 ár til við­bótar meðan áfrýj­unin verður tekin fyrir.

„Allan tím­ann gerði ég mér grein fyrir því að mót­t­að­il­inn væri sterkur og myndi beita öllum til­tækum brögðum. Svona risar svífast einskis og lög­fræð­ingar þeirra af svip­uðum meiði, þeir fá borgað fyrir að verj­ast með hvað ráðum sem er og mál­stað­ur­inn skiptir engu. Þessum risum er alveg nákvæm­lega sama svo fremi sem að lagið hafi gert það gott fyrir þá.“

Gaman að berjast

Hvernig sem höf­unda­rétt­ar­málið endar seg­ist Jóhann alls ekki sjá eftir því að hafa farið í mál. Til að verja sig per­sónu­lega var málið höfðað af banda­rísku fyr­ir­tæki sem hann stofn­aði en hann telur það samt ekki úti­lokað að útgáfurisarnir sæk­ist eftir pen­ingum hans hér heima fari svo að hann tapi. „Það er auð­vitað ekk­ert gaman að standa í þessum mála­ferlum, þetta er eitt­hvað sem ég bað aldrei um og hefði alveg viljað vera laus við. Mér finnst málið bara þess virði og hefði örugg­lega nagað mig í handa­bökin fyrir að hafa ekki farið af stað og látið aurana stoppa mig,“ segir Jóhann.

„Sem betur fer finnst mér ekk­ert leið­in­legt að berj­ast, í æsku var ég alltaf í ein­hverjum kúreka­leikjum og skylm­ingum. Núna þarf dóm­ar­inn að ákveða hvort ég eigi að borga útgáfu­fyr­ir­tækj­unum þennan pen­ing.“

Sama um frægðina

Þó að málið í Banda­ríkj­unum hafi reynst erfitt er Jóhann afar þakk­látur stuðn­ingnum sem hann hefur fundið fyrir á Íslandi. Sjálfur gerir hann hins vegar lítið úr því að vera popp­stjarna. „Fólk hefur mikið verið að lýsa yfir stuðn­ingi sínum við mig úti á götu eða úti í búð vegna máls­ins. Fólk sem ég þekki ekk­ert og mér hefur þótt mjög jákvætt að finna þann stuðn­ing. Það hefur virki­lega yljað mér um hjarta­rætur,“ segir Jóhann.

„Ég er ekki mikið fyrir athygl­ina og sæk­ist ekki eftir henni. Hún virð­ist samt alltaf elta mann án þess að maður fái við það ráðið. Ætli það sé ekki þannig að ef maður gerir eitt­hvað rétt þá kallar það á athygli. Ég tek það ekk­ert sér­stak­lega alvar­lega að vera frægur, mér finnst það ekk­ert merki­legra en hvað annað.“

Deilan við ris­ana í hnot­skurn:

Árið 1977 kom út lagið Söknuður eftir Jóhann í flutn­ingi Vil­hjálms Vil­hjálms­sonar. Árið 2004 kom út lagið You Raise Me Up eftir Norð­mann­inn Rolf Løvland í flutn­ingi Josh Groban. Bæði lögin hafa náð miklum vin­sældum. Jóhann fór í mál við alþjóð­legu útgáfuris­ana Uni­ver­sal Music og Warner þar sem hann taldi síð­ara lagið vera stolið og líkt­ist lagi hans, Söknuði. Mála­ferlin hafa lengi staðið yfir en varn­ar­að­ilar lögðu áherslu á að í raun væru bæði lögin byggð á eldra lagi, lag­inu Oh Danny Boy sem samið var af Frederic Weatherly árið 1913. Málinu var nýverið vísað frá dómi í Banda­ríkj­unum og lög­menn risanna hafa farið fram á tæpar 50 millj­ónir frá Jóhanni vegna til­hæfu­lausra ásak­ana um laga­stuld. Íslenski laga­höf­und­ur­inn hefur áfrýjað og laga­stuld­ar­deil­unni er því ekki alveg lokið enn.

Lestu nánar um málið í Mannlífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Listir

LungA lifir – Býður upp á nýja námsbraut í gegnum útvarp
Menning

LungA lifir – Býður upp á nýja náms­braut í gegnum útvarp

LungA-skól­inn opnar nýja náms­braut, LungA útvarps­skól­inn, sem fer alfarið fram í útvarpi. Opið er fyrir umsóknir til 15. des­em­ber 2024 fyrir fyrsta skóla­árið, sem stendur frá febr­úar til des­em­ber 2025. LungA útvarps­skól­inn er ekki skóli um útvarp, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá skól­anum en hann er skóli í/á/gegnum útvarp. Þetta er tíma­bundið sam­fé­lag þar sem skóla­starfið spannar 10 mán­uði og sam­anstendur af...
Alda vann til verðlauna á Stockfish annað árið í röð: „Ég er alveg að springa úr gleði“
Menning

Alda vann til verð­launa á Stockfish annað árið í röð: „Ég er alveg að springa úr gleði“

Alda Ægis­dóttir (24) mynd­listar- og kvik­mynda­gerða­kona vann til verð­launa í ár á Stockfish stutt­mynda­keppn­inni, og er það annað árið í röð sem hún vinnur til verð­laun­anna. Hin unga lista­kona er með BA-gráðu í mynd­list frá Lista­há­skóla Íslands en með verkum sínum skapar hún lit­ríka ævin­týra­ver­öld úr efnum eins og textíl, leir, pappamassa, vír og fleiru. „Árið 2022, á fyrsta árinu...
Elísabet hefur í nógu að snúast í sumar: „Þær verða dýrmætar þegar ég verð orðin fræg og sæt“
Innlent

Elísabet hefur í nógu að snú­ast í sumar: „Þær verða dýr­mætar þegar ég verð orðin fræg og sæt“

Elísabet Kristín Jök­uls­dóttir, ljóð­skáld og rit­höf­undur lætur ekki deigan síga í sumar, þrátt fyrir veik­indi sem hafa hrjáð hana und­an­farið. Framundan er mynd­list­ar­sýn­ing og fram­koma á lista­há­tíð á Tálkna­firði. Mannlíf tók Elísa­betu tali í dag og ræddi við hana um það sem er framundan hjá henni á næst­unni. Þú ert að koma fram á lista­há­tíð fyrir vestan ekki satt? „Heyrðu...
Listaháskólinn bíður upp á nýtt meistarnám: „Ég get varla lýst gleði minni“
Innlent

Lista­há­skól­inn bíður upp á nýtt meist­ar­nám: „Ég get varla lýst gleði minni“

Í haust býður Lista­há­skól­inn í fyrsta skipti upp á meist­ara­nám í listum og vel­ferð, þar sem horft er til hvernig list­irnar geta nýst í skipu­legu félags­starfi af öllu tagi. Sér­stak­lega er horft til hópa sem oft eru jað­ar­settir og hvernig þátt­taka og aðgengi að listum getur tengt saman fólk og eflt ein­stak­linga. Námslínan var þróuð í nánau sam­starfi við fimm...
Þetta græddu Bubbi og Hrafnhildur í fyrra
Menning

Þetta græddu Bubbi og Hrafn­hildur í fyrra

Tón­list­ar­mað­ur­inn Bubbi Morthens þykir í seinni tíð vera afar klókur í við­skiptum . Ein mat­ar­hola hans er að selja texta­verk sín sem njóta mik­illa vin­sælda. Um er að ræða inn­ram­mað upp­kast að hinum ýmsu frum­textum sem hann hefur samið í gegnum tíð­ina. Dýrustu verkin kosta 85 þús­und krónur. Heildar sölu­verð­mæti verk­anna er 46 millj­ónir króna. Þetta er þriðja árið sem...
Ósk opnar einkasýningu: „Sem bjargi væri létt af brjósti hennar?“
Menning

Ósk opnar einka­sýn­ingu: „Sem bjargi væri létt af brjósti hennar?“

Mynd­list­ar­konan Ósk Gunn­laugs­dóttir mun opna einka­sýn­ingu á mál­verkum sínum í SÍM Gallerý í Hafn­ar­stræti 16, næst­kom­andi fimmtu­dag, þann 7.apríl. Sýningin ber tit­il­inn „Sem bjargi væri létt af brjósti hennar?“. „Verkin á sýn­ing­unni takast á við þrí­vídd við­fangs­efnis sem gæti verið tekið úr nátt­úr­unni,“ segir í lýs­ingu á sýn­ing­unni. „Form skapað úr flötum, hornum og bogum sem eiga sér sinn stað...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu