„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Elísabet hefur í nógu að snúast í sumar: „Þær verða dýrmætar þegar ég verð orðin fræg og sæt“

Elísabet hefur í nógu að snúast í sumar: „Þær verða dýrmætar þegar ég verð orðin fræg og sæt“
Elísabet Jök­uls­dóttir Mynd: Facebook

Elísabet Kristín Jök­uls­dóttir, ljóð­skáld og rit­höf­undur lætur ekki deigan síga í sumar, þrátt fyrir veik­indi sem hafa hrjáð hana und­an­farið. Framundan er mynd­list­ar­sýn­ing og fram­koma á lista­há­tíð á Tálkna­firði.

Mannlíf tók Elísa­betu tali í dag og ræddi við hana um það sem er framundan hjá henni á næst­unni.

Þú ert að koma fram á lista­há­tíð fyrir vestan ekki satt?

„Heyrðu það er lista­há­tíð sem heitir Dunhagi og er í gangi yfir sum­arið á Tálkna­firði. Þangað koma rit­höf­undar og tón­list­ar­menn og allt í gangi. Þetta er í tengslum við veit­inga­húsið Dunhaga þannig að maður lifir í vellyst­ingum. Ólafur Sveinn Jóhann­es­son, ungur rit­höf­undur frá Tálkna­firði verður í því hlut­verki að spyrja mig spjör­unum úr um mín verk.“

Er þetta í fyrsta skiptið sem þú kemur fram í Dunhaga?

„Heyrðu ég kom í hitt­ið­fyrra og las upp úr mínum verkum, þá var Hlín Agn­ars­dóttir spyrj­andi og ég las meðal ann­ars ljóð sem Vest­firð­ingar elska og heitir Vest­firð­ingur. Ofboðsl­elga fal­legt þar, gisti eina nótt en nú fæ ég að vera fjórar nætur. Þetta er senni­lega eina ferðin mín í sumar því svo verð ég heima að hvíla mig,“ sagði Elísabet og skellti upp úr og bætti við: „Eins og ég get gert það.“

En svo minn­ist Elísabet snöggvast á heils­una sem hefur oft verið betri.

„Ég er svo skrítin, reyni bara að mæta í flug­vél­ina og er svo leidd áfram á upp­lest­ur­inn. En ég hlakka rosa­lega til, ekki endi­lega að keyra veg­ina, en ég er að fást við nýrað. Þetta er ekki alveg eins og það á að vera, svo ég er enn í rann­sóknum.“

En hvernig leikur lífið við þið Elísabet í augna­blik­inu, svona fyrir utan heilsu­brest­inn?

„Bara vel, ég er mjög ham­ingju­söm, fór í bæinn í gær, heim­sótti ömmu­strák­inn og langömmu­barnið og Lindu Vil­hjálms vin­konu mína og skáld. Og svo fór ég á völl­inn og sá Stjörn­una bursta FH 5-0!“

Já ertu Stjörnu­kona?

„Já sonur minn Jökull er aðala­þjálf­ari meist­ara­flokks svo auð­vitað held ég með Stjörn­unni.“

Elísabet er eins og allir ættu að vita, kona fjöl­breyttra hæfi­leika en eftir fáeina daga heldur hún mynd­lista­sýn­ingu.

„Ég held pöddu­sýn­ing­una í júlí og von­andi koma ein­hver barna­börn í heim­sókn. Hin göf­uga pöddu­sýn­ing opnar 3. júlí klukkan 16:00 á Bókaafni Hvera­gerðis.

Bíddu við, hvað mein­arðu með pöddu­sýn­ingu?

„Ég mál­aði 30 pöddu­myndir því ég upp­lifði mig sem pöddu í lélegu ást­ar­sam­bandi. Þetta er sölu­sýn­ing og ég býð öllum að koma austur fyrir fjall og festa kaup á sinni pöddu. Þær verða dýr­mætar þegar ég verð orðin fræg og sæt.“

Hér eru tvö pöddu­dæmi:

Ein paddan hennar Elísa­betar.
Hall­grímur Helgason ku vera hrifin af þess­ari pöddu. Ljósmynd. Aðsend

Mannlíf óskar Elísa­betu alls hins allra besta í sumar sem og á öðrum árs­tíðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Listir

LungA lifir – Býður upp á nýja námsbraut í gegnum útvarp
Menning

LungA lifir – Býður upp á nýja náms­braut í gegnum útvarp

LungA-skól­inn opnar nýja náms­braut, LungA útvarps­skól­inn, sem fer alfarið fram í útvarpi. Opið er fyrir umsóknir til 15. des­em­ber 2024 fyrir fyrsta skóla­árið, sem stendur frá febr­úar til des­em­ber 2025. LungA útvarps­skól­inn er ekki skóli um útvarp, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá skól­anum en hann er skóli í/á/gegnum útvarp. Þetta er tíma­bundið sam­fé­lag þar sem skóla­starfið spannar 10 mán­uði og sam­anstendur af...
Alda vann til verðlauna á Stockfish annað árið í röð: „Ég er alveg að springa úr gleði“
Menning

Alda vann til verð­launa á Stockfish annað árið í röð: „Ég er alveg að springa úr gleði“

Alda Ægis­dóttir (24) mynd­listar- og kvik­mynda­gerða­kona vann til verð­launa í ár á Stockfish stutt­mynda­keppn­inni, og er það annað árið í röð sem hún vinnur til verð­laun­anna. Hin unga lista­kona er með BA-gráðu í mynd­list frá Lista­há­skóla Íslands en með verkum sínum skapar hún lit­ríka ævin­týra­ver­öld úr efnum eins og textíl, leir, pappamassa, vír og fleiru. „Árið 2022, á fyrsta árinu...
Listaháskólinn bíður upp á nýtt meistarnám: „Ég get varla lýst gleði minni“
Innlent

Lista­há­skól­inn bíður upp á nýtt meist­ar­nám: „Ég get varla lýst gleði minni“

Í haust býður Lista­há­skól­inn í fyrsta skipti upp á meist­ara­nám í listum og vel­ferð, þar sem horft er til hvernig list­irnar geta nýst í skipu­legu félags­starfi af öllu tagi. Sér­stak­lega er horft til hópa sem oft eru jað­ar­settir og hvernig þátt­taka og aðgengi að listum getur tengt saman fólk og eflt ein­stak­linga. Námslínan var þróuð í nánau sam­starfi við fimm...
Þetta græddu Bubbi og Hrafnhildur í fyrra
Menning

Þetta græddu Bubbi og Hrafn­hildur í fyrra

Tón­list­ar­mað­ur­inn Bubbi Morthens þykir í seinni tíð vera afar klókur í við­skiptum . Ein mat­ar­hola hans er að selja texta­verk sín sem njóta mik­illa vin­sælda. Um er að ræða inn­ram­mað upp­kast að hinum ýmsu frum­textum sem hann hefur samið í gegnum tíð­ina. Dýrustu verkin kosta 85 þús­und krónur. Heildar sölu­verð­mæti verk­anna er 46 millj­ónir króna. Þetta er þriðja árið sem...
Ósk opnar einkasýningu: „Sem bjargi væri létt af brjósti hennar?“
Menning

Ósk opnar einka­sýn­ingu: „Sem bjargi væri létt af brjósti hennar?“

Mynd­list­ar­konan Ósk Gunn­laugs­dóttir mun opna einka­sýn­ingu á mál­verkum sínum í SÍM Gallerý í Hafn­ar­stræti 16, næst­kom­andi fimmtu­dag, þann 7.apríl. Sýningin ber tit­il­inn „Sem bjargi væri létt af brjósti hennar?“. „Verkin á sýn­ing­unni takast á við þrí­vídd við­fangs­efnis sem gæti verið tekið úr nátt­úr­unni,“ segir í lýs­ingu á sýn­ing­unni. „Form skapað úr flötum, hornum og bogum sem eiga sér sinn stað...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins