„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Besta leiðin til að afnema refsingar fyrir neysluskammta er að viðhalda refsingunum“

„Besta leiðin til að afnema refsingar fyrir neysluskammta er að viðhalda refsingunum“

Pistill Kolbeins Ótt­ars­son Proppé, sem birt­ist á Vísi í gær, hefur vakið upp hörð við­brögð, en pistl­inum fer þing­maður Vinstri grænna yfir ástæður þess af hverju hann sam­þykkti ekki frum­varp Pírata um afglæp­væð­ingu neyslu­skammta fíkni­efna. Er óhætt að segja að sam­fé­lags­miðlar logi vegna skrifa þing­manns­ins.

„Besta leiðin til að afnema refs­ingar fyrir neyslu­skammta er að við­halda refs­ing­unum,“ skrifar sós­í­alsista­for­ing­inn Gunnar Smári Egilsson á Facebook í morgun og beinir spjótum sínum jafn­framt að Vinstri grænum. „Besta leiðin til að ganga úr NATÓ er að taka þátt í leið­toga­fundum NATÓ. Besta leiðin til að vernda flótta­fólk er að herða útlend­inga­lög­gjöf­ina. Besta leiðin til að halda auð­vald­inu frá völdum er að mynda stjórn með því. Velkomin í VG.“

„Þessi grein er með nokkrum ólík­indum. Ég man eftir ungum og knáum blaða­manni á Frétta­blað­inu, Kolbeini Proppé, sem gjarnan sá um litla „klippt og skorið“ dálk­inn (eða hvað hann hét í FB). Sá hefði nú aldeilis dregið þing­mann­inn sundur og saman í háði,“ skrifar Illugi Jök­uls­son.

Píratinn Sara Ósk­ars­son getur heldur ekki setið á sér. „Greinin er með aumk­un­ar­verð­ustu gjörn­ingum sem ég hef orðið vitni að frá upp­hafi þátt­töku minnar í póli­tík. Bara það að stjórn­ar­liði skuli leyfa sér það að reyna að draga þennan mála­flokk, þetta umræðu­efni niður á þetta ömur­lega plan er til marks um þá lág­kúru sem fær að þríf­ast óáreitt í núver­andi stjórn­mála­menn­ingu Íslands,“ hefur hún meðal ann­ars að segja um pistil Kolbeins í færslu á Facebook.

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, er einn þeirra sem reidd­ist Kolbeini og sagði honum hrein­lega að „fokka sér“ á Facebook. Reyndar sá þing­mað­ur­inn eftir að hafa tekið jafn sterkt til orða og greindi frá því í annarri færslu á Facebook-vegg sínum í gær­kvöldi. En Björn Leví er þó enn ósáttur með afstöðu Kolbeins í mál­inu líkt og margrir aðrir eins og sjá má á með­fylgj­andi ummælum.

Í pistli sínum á Vísi sagði Kolbeinn yfir­borðs­legan fyr­ir­sagna­lestur og þreytt póli­tísk klækja­brögð Pírata ein­kenna umræð­una. Hann seg­ist enn­fremur vilji afglæpa­væð­ingu. „Rík­is­stjórnin hefur unnið að stefnu sinni um afglæpa­væð­ingu, þ.e. að horfa á fíkni­efna­sjúk­linga sem veikt fólk en ekki glæpa­menn. Það er í sam­ræmi við stjórn­ar­sátt­mál­ann. Risa­stórt skref var stigið fyrr á þessu þingi þegar frum­varp var sam­þykkt um neyslu­rými. Heil­brigð­is­ráð­herra vann það í góðu sam­ráði við fjöl­mörg sem að þessum málum koma, það var kynnt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda og fór svo fyrir þingið þar sem það fékk sína hefð­bundnu umfjöllun. Þrátt fyrir allt þetta sam­ráð heyrð­ust þær raddir að meira sam­ráð þyrfti, vinna þyrfti málið betur. Það tel ég til marks um að þessi mál skipta okkur öll miklu máli.“
Þá sagði Kolbeinn að næsta skref væri að vinna að afglæpa­væð­ingu neyslu­skammta. Heil­brigð­isráðherra kæmi til með að leggja fram slíkt mál á næsta þingi. Yrði það unnið í samráði við lyk­il­að­ila í heil­brigð­is­kerf­inu og fleiri sem þurfa að hafa aðkomu að slíkum málum.

Eins og fyrr segir er óhætt að segja að skrif Kolbeins hafi vakið upp reiði, á meðan öðrum blöskrar hversu hörðum orðum hefur verið farið um þing­mann­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins