„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Ég sakna barnanna minna mikið“

„Ég sakna barnanna minna mikið“

Íslend­ingar sem eru staddir erlendis eiga sumir hverjir í stök­ustu vand­ræðum með að kom­ast til lands­ins. Rúnar Ásþór Ólafsson, sölu­maður og frum­kvöð­ull, er einn þeirra.

Þrátt fyrir að landa­mæri innan Schengen-svæð­is­ins séu jafnt og þétt að opn­ast getur það engu að síður verið vand­kvæðum bundið að ferð­ast innan þess. Við­mæl­endur Mannlífs, Íslend­ingar sem eru staddir erlendis, ótt­ast sótt­kví, ein­angrun og að flug verði felld niður og kvarta undan því að þurfa að fara jafn­vel langar króka­leiðir til að kom­ast leiðar sinnar. Þeir segja að til að kom­ast til Íslands þurfi oft og tíðum að fara í tvö til þrjú flug og kostn­að­ur­inn sé margtfalt meiri en áður.

„Þetta er ömur­leg staða og börnin mín bíða eftir því að fá pabba sinn heim. Maður getur reynt að koma sér með ein­hverjum króka­leiðum en samt eig­in­lega ekki því lík­urnar á því að flugið verði fellt niður eru miklar,“ segir Rúnar Ásþór Ólafsson, sölu­maður og frum­kvöð­ull, sem hefur verið búsettur á Spáni síð­ast­liðin sex ár og hefur verið fastur þar und­an­farnar vikur.

„Ég sakna barn­anna minna mikið og er alltaf að segja þeim að ég sé að koma en svo gengur það aldrei.“

„Þetta er auð­vitað búið að vera bras. Við ætl­uðum aðeins til Íslands en gáf­umst upp á því að reyna finna flug. Konan er búin að bíða í svo­lít­inn tíma með að kom­ast heim.“

Rúnar Ásþór hefur einnig leitað leiða und­an­farið til að kom­ast til Íslands. Það hefur hins vegar gengið væg­ast sagt illa segir hann. „Sem betur fer slapp sonur minn til lands­ins áður en ósköpin dundu yfir en ég er heldur betur búinn að lenda í helj­ar­innar ves­eni við að koma mér til Íslands. Ég hef bókað þrjú mis­mun­andi flug með sitt­hvoru flug­fé­lag­inu en þeim hefur öllum verið aflýst,“ segir Rúnar Ásþór.

Þegar Rúnar Ásþór hafði þrí­vegis lent í því að flug­inu hans var aflýst ákvað hann að reyna að fá sér­staka vél frá Icelandair til að sækja sig og aðra þá sem voru fastir í land­inu og vildu til Íslands. „Þeir tóku vel í þetta í byrjun en því miður varð ekki úr þessu. Það fannst mér mjög leið­in­legt því það voru margir sem vildu með. Ég sakna barn­anna minna mikið og er alltaf að segja þeim að ég sé að koma en svo gengur það aldrei. Ég hef verið fastur á Spáni og það er sárt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

Sanna greind með Covid-19: „Er ekki sú hressasta núna“
InnlentCovid-19

Sanna greind með Covid-19: „Er ekki sú hress­asta núna“

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir er komin með Covid-19. Covid-19 far­ald­ur­inn er orð­inn hluti af líf­inu líkt og spáð hafði verið en smitum hefur fjölgað gríð­ar­lega á Íslandi að und­an­förnu. Lang­flestir sem smit­ast veikj­ast ekki alvar­lega og ná sér að fullu en það á þó ekki um alla, sér í lagi eldra fólk og við­kvæma. Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúia Sós­í­alista sagði frá...
Steinunn Ólína ver vin sinn Kára: „Sjálfsábyrgðin er harður húsbóndi“
InnlentCovid-19

Steinunn Ólína ver vin sinn Kára: „Sjálfs­á­byrgðin er harður hús­bóndi“

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir tekur upp hansk­ann fyrir vin sinn, Kára Stef­áns­son, sem nýverið við­ur­kenndi að mögu­lega hefði verið nóg að gefa eldra fólki og fólki með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma, bólu­efni gegn Covid-19 veirunni. Steinunn Ólína. Játning Kára Stef­áns­sonar, sem var áber­andi þegar heims­far­ald­ur­inn gekk yfir Ísland, hefur vakið mikla athygli á sam­fé­lags­miðlum og eru margir afar reiðir vís­inda­mann­inum, fyrir að mæla...
Læknirinn Guðmundur Karl um Covid-faraldurinn: ,,Blekkingarleikurinn er ekki búinn”
Innlent

Lækn­ir­inn Guð­mundur Karl um Covid-far­ald­ur­inn: ,,Blekk­ing­ar­leik­ur­inn er ekki búinn”

Guð­mundur Karl Snæ­björns­son, sér­fræð­ingur í hem­il­is­lækn­ingum segir hættu­legt að afsala ákvarð­ana­töku í lýð­heilsu til mið­stýrðra afla úti í heimi. Guð­mundur Karl, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar segir að við verðum að gera upp Covid-far­ald­ur­inn heild­stætt til þess að ákveðnir hlutir end­ur­taki sig ekki: „Covid er ekki búið að því marki að blekk­ing­ar­leik­ur­inn er ekki búinn. Við getum...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins