„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Óvíst hvort einn ástsælasti pítsustaður landsins opni aftur

Óvíst hvort einn ástsælasti pítsustaður landsins opni aftur

Óvíst er hvort einn vin­sæl­asti pítsu­staður lands­ins, Eld­smiðjan við Braga­götu, verði opn­aður aftur. Staðnum var lokað þegar COVID-19 skall á í mars og átti lok­unin upp­haf­lega aðeins að vera tíma­bundin en vegna ástands­ins er það nú óljóst. 

„Já, þetta er rétt, því miður,“ segir Jóhannes Ásbjörns­son, tals­maður Gleðip­inna, þegar blaða­maður spyr hvort það sé rétt sem heyrst hefur að Eld­smiðjan við Braga­götu verði hugs­an­lega ekki opnuð aftur, en Eld­smiðjan er búin að vera þar á sama stað í meira en 30 ár og hef­ur verið óhemju vin­sæll veit­inga­staður í gegn­um tíð­ina.

En nú hefur þetta um ára­bil verið einn vin­sæl­asti pít­sa­staður borg­ar­innar – og lands­ins. Eruð þið ekk­ert hrædd um að fastakúnnar verði óánægðir ef staðnum verður alveg lokað? „Jú, það er alveg við­búið að fólk verði ósátt. Skilj­an­lega. Eld­smiðjan við Braga­götu var auð­vitað ákveð­inn frum­herji í pít­su­gerð á Íslandi á sínum tíma, og það eru bæði margir sem eiga góðar minn­ingar frá staðnum og margir sem sjá eftir kjarna­stöðum af þessu tagi. Hins vegar er þetta sá bara veru­leiki sem blasir við mörgum stöðum í dag, því miður,“ segir hann og vísar þar til þeirra áhrifa sem COVID-19 far­ald­ur­inn hefur haft á starf­semi margra veit­inga­staða og ann­arra fyr­ir­tækja sem byggja meðal ann­ars afkomu sína á þjón­ustu við ferð­menn.

„Það væri leitt ef hann myndi ekki opna aftur. En við von­umst auð­vitað til að rekstr­ar­um­hverfið batni hratt.“

„Það er bara mjög mik­ill munur á rekstr­ar­um­hverf­inu niðri í bæ fyrir og eftir COVID-19, til dæmis með hlið­sjón af straumi ferða­manna hingað til lands­ins. Lands­lagið er gjör­breytt eftir þetta og rekst­ur­inn í mið­bænum erf­iður,“ segir Jóhannes, en í lok síð­asta mán­aðar kom fram í fjöl­miðlum að í kringum 30 veit­inga­staðir í miðbæ Reykja­víkur og nágrenni hafi verið lokað vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, ýmist vegna gjald­þrots eða óvissu vegna áhrifa veirunnar.

Jóhannes bendir á að þegar COVID-19 far­ald­ur­inn skall á hafi Gleðip­innar og fleiri rekstr­ar­að­ilar brugðið á það ráð að loka tíma­bundið sumum stöðum sínum og breytt opn­un­ar­tímum ann­arra staða til að bregð­ast við ástand­inu. Veitinga­staðir Gleði­pinna séu Saffran, Ham­borg­ara­fabrikkan, American Sty­le, Aktu Taktu, Eld­smiðjan, Keilu­höllin, Black­box, Shake&Pizza, Pítan og Roa­dhou­se. Þann 24. mars hafi fyr­ir­tækið hafi lokað Kaffi­vagnum, sem var á þeim tíma í eigu Gleðip­inna en ekki lengur, og Roadhouse en haldið öllum Aktu Taktu stöðum, tveimur American Sty­le stöðum, einum Saffran stað og einum Eld­smiðju­stað opnum. Þá var opn­un­ar­tíma Keilu­hall­ar­innar og Shake&Pizza breytt. Átti lok­unin að vera tíma­bundin en nú segir Jóhannes ekki útséð með hvort stað­irnir verði allir opn­aðir aftur.

„Eld­smiðjan við Suð­ur­lands­braut er enn opin en bæði Eld­smiðjan við Braga­götu og Laugaveg hafa verið lokuð frá því í COVID-19 far­aldr­inum, þar sem rekstr­ar­um­hverfið niðri í miðbæ er erfð­ara, og það er ekki búið að taka ákvörðun um hvort stað­irnir verðir opn­aðir aftur,“ segir hann. „Það breytt­ist bara margt í þessu ástandi. Við vorum með þrjá Saffran staði opna. Nú eru þeir tveir. Roadhouse er enn lok­aður. Og það er eins með hann og Eldsmiðj­una við Laugaveg og Braga­götu, það er ekki búið að taka ákvörðun með fram­haldið. Ég er nú bjart­sýn­is­maður, en maður þorir ekk­ert að segja. Þetta er allt enn óljóst.“

Jóhannes játar að það væri auð­vitað algjör synd ef ekki næð­ist að opna þessa staði aftur, ekki síst Eldsmiðj­una við Bragaötu sem sé sögu­frægur staður. „Já, þetta er sann­ar­lega staður með sögu og róm­an­tískur í hugum margra. Það væri leitt ef hann myndi ekki opna aftur. En við von­umst auð­vitað til að rekstr­ar­um­hverfið batni hratt og það verði hægt að opna þessa staði hratt á ný.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

Sanna greind með Covid-19: „Er ekki sú hressasta núna“
InnlentCovid-19

Sanna greind með Covid-19: „Er ekki sú hress­asta núna“

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir er komin með Covid-19. Covid-19 far­ald­ur­inn er orð­inn hluti af líf­inu líkt og spáð hafði verið en smitum hefur fjölgað gríð­ar­lega á Íslandi að und­an­förnu. Lang­flestir sem smit­ast veikj­ast ekki alvar­lega og ná sér að fullu en það á þó ekki um alla, sér í lagi eldra fólk og við­kvæma. Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúia Sós­í­alista sagði frá...
Steinunn Ólína ver vin sinn Kára: „Sjálfsábyrgðin er harður húsbóndi“
InnlentCovid-19

Steinunn Ólína ver vin sinn Kára: „Sjálfs­á­byrgðin er harður hús­bóndi“

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir tekur upp hansk­ann fyrir vin sinn, Kára Stef­áns­son, sem nýverið við­ur­kenndi að mögu­lega hefði verið nóg að gefa eldra fólki og fólki með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma, bólu­efni gegn Covid-19 veirunni. Steinunn Ólína. Játning Kára Stef­áns­sonar, sem var áber­andi þegar heims­far­ald­ur­inn gekk yfir Ísland, hefur vakið mikla athygli á sam­fé­lags­miðlum og eru margir afar reiðir vís­inda­mann­inum, fyrir að mæla...
Læknirinn Guðmundur Karl um Covid-faraldurinn: ,,Blekkingarleikurinn er ekki búinn”
Innlent

Lækn­ir­inn Guð­mundur Karl um Covid-far­ald­ur­inn: ,,Blekk­ing­ar­leik­ur­inn er ekki búinn”

Guð­mundur Karl Snæ­björns­son, sér­fræð­ingur í hem­il­is­lækn­ingum segir hættu­legt að afsala ákvarð­ana­töku í lýð­heilsu til mið­stýrðra afla úti í heimi. Guð­mundur Karl, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar segir að við verðum að gera upp Covid-far­ald­ur­inn heild­stætt til þess að ákveðnir hlutir end­ur­taki sig ekki: „Covid er ekki búið að því marki að blekk­ing­ar­leik­ur­inn er ekki búinn. Við getum...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins