„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

BYKO býður starfsfólki sínu út á land

BYKO býður starfsfólki sínu út á land

BYKO hefur ákveðið að gefa öllum starfs­mönnum sínum eða um 450 manns gjafa­bréf á gisti­stöðum um allt land í gegnum styrkju­mis­land.is.

„Okkur fannst þetta frá­bært tæki­færi til þess að gera vel við starfs­fólkið okkar og á sama tíma styrkja inn­viði íslenskrar ferða­þjón­ustu,“ segir Sigurður B. Pálsson, for­stjóri BYKO.

„Álagið und­an­farið hefur verið mikið á starfs­fólk og á sama tíma hefur verið erfitt tíma­bil hjá mörgum. Ferða­þjón­ustu­að­ilar um land allt eru í við­skiptum hjá okkur þannig að við viljum bæði hvetja starfs­fólkið okkar til að ferð­ast inn­an­lands og styðja við bakið á okkar við­skipta­vinum í leið­inni eins og kostur er.“

Styrkju­mis­land.is er góð­gerða­verk­efni frá hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­inu Godo sem miðar af því að styrkja inn­viði ferða­þjón­ustu og veita Íslend­ingum tæki­færi til þess að ferð­ast á góðu verði inn­an­lands á næst­kom­andi miss­erum. Hótel og gisti­staðir um allt land taka þátt í verk­efn­inu með því að bjóða að lág­marki gist­ingu í eina nótt en víða er boðið upp á morg­un­mat eða jafn­vel önnur fríð­indi með gjafa­bréf­inu.

„Það hefur orðið alger tekju­brestur í grein­inni og margar fjöl­skyldur sem hafa staðið vakt­ina og lagt allt sitt í upp­bygg­ingu á gríð­ar­lega flottri ferða­þjón­ustu á Íslandi hafa horft á eftir  lifi­brauði sínu hverfa nán­ast yfir nóttu. Á síð­asta ára­tug hefur verið gríð­ar­leg flott upp­bygg­ing í ferða­þjón­ustu á Íslandi og það er erfitt að sitja aðgerða­laus á meðan þetta tíma­bil gengur yfir. Godo heldur utan um bók­anir flestra gisti­staða og hót­ela á Íslandi og það var strax ljóst þegar far­ald­ur­inn byrj­aði að töl­urnar voru slá­andi. Þess vegna ákváðum við að gefa hluta af vinn­unni okkar til að hjálpa okkar við­skipta­vinum frekar en að sitja aðgerða­laus,“ segir Katrín Magn­ús­dóttir rekstr­ar­stjóri Godo.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins