„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Jóhann feginn að þurfa ekki að greiða málskostnað Universal og Warner: „Þetta er ákveðinn léttir“

Jóhann feginn að þurfa ekki að greiða málskostnað Universal og Warner: „Þetta er ákveðinn léttir“

Jóhann Helgason seg­ist vera feg­inn því að þurfa ekki að greiða máls­kostnað Uni­ver­sal og Warner, en dóm­ari í Los Angeles hafn­aði kröfu tón­list­arrisanna um að Jóhann greiði 323 þús­und doll­ara eða um 45 millj­ónir í máls­kostnað þeirra í svoköll­uðu „laga­stuld­ar­máli“. Warner og Uni­ver­sal geta ekki áfrýjað nið­ur­stöð­unni.

„Þetta er ákveð­inn léttir og nú getum við ein­beitt okkur að áfrýj­un­inni,“ segir Jóhann í sam­tali við Frétta­blaðið.

Jóhann og Warner og Uni­ver­sal deildu upp­haf­lega fyrir dómi um hvort lagið You Raise Me Up, eftir Rolf Løvland, væri stuldur á lagi Jóhanns Söknuður. Telur Jóhann Løvland hafa heyrt lagið Söknuður í ein­hverjum af hans mörgu heim­sóknum til Íslands á tíunda ára­tugnum og í kjöl­farið samið sína útgáfu. Jóhann höfð­aði mál til greiðslu bóta og fór fram á að allar tekjur sem You Raise Me Up hefur fært Løvland og öðrum yrðu dæmdar honum. Stefnan var lögð fram í Los Angeles í Banda­ríkj­unum 29. nóv­em­ber 2018. Var mál­inu vísað frá í apríl og í kjöl­farið kröfð­ust tón­list­arrisarnir að Jóhann greiddi máls­kostnað þeirra.

Dómarinn í Los Angeles hefur eins og áður segir hafnað þeirri kröfu. Í nið­ur­stöð­unni kemur meðal ann­ars fram að mál­inu hafi upp­haf­lega verið vísað frá þar sem lög­menn Uni­ver­sal og Warner hafi sýnt fram á að bæði Söknuður og You Raise Me Up byggðu á írska þjóð­lag­inu Danny Boy. Tón­list­ar­sér­fræð­ingur Jóhanns hafi hins vegar litið fram­hjá þeim þætti.

Í Frétta­blað­inu kemur fram að Jóhann freisti þess nú fyrir áfrýj­un­ar­dóm­stóli að fá ákvörðun dóm­ar­ans um að vísa mál­inu frá hnekkt. „Nú getum við notað tím­ann til að byggja undir áfrýj­un­ina og koma ein­hverju fyrir augu og eyru dóm­ar­anna sem sann­færir þá um gildi þessa máls. Vonandi verða að minnsta kosti tveir af þremur dóm­urum okkur hlið­hollir,“ segir hann.

Jóhann var í stóru við­tali í Mannlífi fyrir skemmstu þar sem hann ræddi málið, fer­il­inn, fræðgina og kjafta­sög­urnar.

Mynd / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins