„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Formaður Flugfreyjufélags Íslands bjartsýn á góða lendingu

Formaður Flugfreyjufélags Íslands bjartsýn á góða lendingu

Formaður Flug­freyju­fé­lags Íslands seg­ist vera bjar­stýn á að nið­ur­staða náist í kjara­við­ræðum félags­ins og Icelandair. Boðað hefur verið til fundar hjá rík­is­sátta­semj­ara næst­kom­andi föstu­dag.

„Nú eru félags­menn búnir að láta í ljós afstöðu sína og þetta er bara staðan,“ segir Guðlaug Líney Jóhanns­dóttir, for­maður Flug­freyju­fé­lags Íslands, í sam­tali við Mannlíf um þau tíð­indi að meiri­hluti fé­lags­manna FFÍ hafi fyrir skemmstu fellt kjara­samn­ing­inn sem samn­inga­nefnd­ir fé­lags­ins og Icelanda­ir skrif­uðu und­ir þann 25. júní síð­ast­lið­inn.

Spurð hvort það komi á óvart að svona mik­ill meiri­hluti hafi fellt samn­ing­inn segir Guðlaug að stjórn félags­ins hafi staðið fyrir fjölda kynn­ing­ar­funda síðan samn­inga­nefndir félags­ins og Icelandair und­ir­rit­uðu hann 25. júní. Hún hafi því haft góða inn­sýn í skoð­anir félags­manna.

„Í nýja samn­ingnum var mikil krafa um hag­ræð­ingar. Það má segja að félags­menn séu með þessu að segja að þeim hafi fund­ist of langt gengið.“

„Já, við erum búin að vera með mikið af kynn­ing­ar­fundum frá því að samn­ing­ur­inn var und­ir­rit­aður þannig að ég er með putt­ann á púls­inum hvað varðar skoð­anir félags­manna. Þegar und­ir­rit­aður samn­ingur lá fyrir settum við þetta í hendur félags­manna og þeir hafa nú tjáð sig – með frekar afger­andi hætti,“ segir hún, en kjör­sókn var 85,3 pró­sent og greiddu 72,65 pró­sent at­kvæði gegn samn­ingn­um, en 26,46 pró­sent með samn­ingn­um.

Hvað var það sem stóð því helst fyrir þrifum að samn­ing­ur­inn yrði sam­þykktur? „Í nýja samn­ingnum var mikil krafa um hag­ræð­ingar. Það má segja að félags­menn séu með þessu að segja að þeim hafi fund­ist of langt gengið,“ svarar hún, en seg­ist ekki geta tjáð sig frekar um það.

Búið sé að boða til fundar hjá rík­is­sátta­semj­ara næst­kom­andi föstu­dag. „Við munum ganga aftur til fundar hjá rík­is­sátta­semj­ara og leggjum okkur að fram við að ná samn­ingi,“ segir hún.

Ertu bjart­sýn á fram­haldið? „Ég er alltaf bjart­sýn. Það þýðir ekk­ert annað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins