„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Uppfært: 15 ára sonur Guðmundu verður fyrir hrottalegu ofbeldi – „Ég verð að bjarga syni mínum frá þessu“

Uppfært: 15 ára sonur Guðmundu verður fyrir hrottalegu ofbeldi – „Ég verð að bjarga syni mínum frá þessu“

„Þá var hann kall­aður nas­isti, og honum var sagt að hann yrði sendur heim í lík­kistu í sitt ógeðs­lega móð­ur­land,“ segir Guðmunda Þor­steins­dóttir í sam­tali við Mannlíf. Í færslu sem Guðmunda birti á Facebook í dag má sjá skjá­skot sem sonur hennar hefur fengið send og mynd­band af lík­ams­árás gegn honum sem tekið var upp á síð­asta ári. Lík­ams­árásin átti sér stað við kirkj­una í Grinda­vík. (Uppfært kl. 19.40, mynd­bandið í færslu Guðmundu er ekki af syni hennar, heldur dreng sem var í fóstri hjá henni síð­asta haust).

Sonur hennar sem var að klára níunda bekk núna í vor, hefur ítrekað orðið fyrir ein­elti af hálfu bekkj­ar­systk­ina sinna, og jafn­vel ung­linga ann­ars staðar frá, og hefur ein­eltið stig­magn­ast í lík­am­legt ofbeldi. Að sögn Guðmundu byrj­aði ein­eltið strax við flutn­ing þeirra heim.  Guðmunda er fædd og upp­alin í Grinda­vík. Eftir 16 ára búsetu í Þýska­landi flutti hún aftur í heimabæ sinn árið 2016, með börn hennar sem fædd eru í Þýska­landi og eiga þýskan föður.

„Ég verð að bjarga syni mínum frá þessu,“ segir Guðmunda í sam­tali við Mannlíf. Fjöl­skyldan er að flytja úr Grinda­vík, og þó að ein­eltið í garð sonar hennar sé ekki eina ástæða flutn­ing­anna, þá á það stóran þátt í þeim. „Ég er sveita­mann­eskja og hef alltaf búið í sveit, ég var ein af þeim sem missti vinn­una núna í Bláa lón­inu og við ætlum að flytja og búa okkur betra líf.“

„Sonur minn er félags­lyndur og á góða vini í Grinda­vík, sem hafa staðið með honum alla tíð. En það er annar hópur ung­linga sem hefur lagt hann í ein­elti frá því að við fluttum heim.“

Skilaboð sem son­ur­inn hefur fengið send.

Guðmunda segir að í öll skipti hafi hún rætt við for­eldra við­kom­andi barna, talað hafi verið við skóla­stjóra grunn­skól­ans í ein­hverjum til­vikum, barna­vernd bæj­ar­ins og bar­smíðar verið kærðar til lög­reglu.

„Sonur minn fór að koma heim úr skól­anum einn og einn dag með blóð­nasir og gerði lítið úr þessu alltaf. Síðan var hann bar­inn af fjórum drengjum inni í skól­anum, sem byrj­aði á því að það var verið að henda mat í hann og aðra krakka. Kennari og skóla­stjóri voru í mat­salnum, en sögð­ust ekki hafa orðið varir við neitt. Eftir þessar bar­smíðar þá kom hann nef­brot­inn heim með mar­bletti út um allt, fékk heila­hrist­ing og var lengi veikur, og í langan tíma á eftir var hann að fá blóð­nasir bara upp úr þurru,“ segir Guðmunda. Að hennar sögn eru fjórar örygg­is­mynda­vélar í and­dyr­inu, en engin þeirra virk­aði í það skipti eftir því sem skóla­stjór­inn sagði.

„Þá var þetta orðið það alvar­legt að ég segi nú er þetta komið gott,“ segir Guðmunda. „Við kærðum til lög­regl­unnar og það er ekk­ert búið að ger­ast í mál­inu, það er ekki búið að tala við dreng­ina, eða for­eldra þeirra. Þegar ég kanna feril máls­ins hjá lög­regl­unni þá eru alltaf ein­hverjar afsak­anir: „það eru jarð­skjálfar,“ „það er covid,“ og svo fram­vegis. Við erum með lög­fræð­ing í mál­inu líka, sem hefur heldur ekki náð í eða fengið svör frá lög­regl­unni yfir þessum seina­gangi.“

Guðmunda segir að sonur hennar hafi oft gert lítið úr ein­elt­inu og bar­smíð­unum. „Til að ekki yrðu fleiri bar­smíðar. Hann er búinn að blokka þessa drengi á sam­fé­lags­miðlum, en það stoppar þá ekki í að fá síma hjá öðrum og senda honum skila­boð þar, með myndum af sér, hót­unum og „fokk-merkjum“.

Það er þó ekki bara sonur Guðmundu sem hefur orðið fyrir aðkasti af hálfu hóps­ins. „Í eitt skipti kom 20 ung­linga hópur hér í garð­inn hjá okkur, og þar sem að þeir hittu ekki á son minn þá réð­ust þeir bara á þann næsta, vin hans úr Reykja­vík, sem var hér. Bróðir minn varð vitni að árásinni á hann og gekk hér á milli þeirra.“

Í annað skipti var vitni að því að hóp­ur­inn braust inn á heim­ili þeirra, með því að fara í gegnum glugga á heim­il­inu. Gerði hóp­ur­inn sig síðan heima­kom­inn í her­bergi sonar Guðmundu.

„Börnin okkar verða ekk­ert meira í þessu,“ eru svörin sem ég fæ frá for­eldrum ung­ling­anna þegar ég tala við þá,“ segir Guðmunda. „Það breyt­ist samt ekki neitt. Ofbeldið versnar bara ef eitt­hvað er.“

Sjálf segir hún að henni hafi liðið vel í Grinda­vík og verið með góða vinnu. „En börn­unum mínum leið ekki vel þar, en syni mínum finnst erfitt að vera að flytja frá vinum sínum.“

Uppfært kl. 19.40

DV tók frétt Mannlífs upp og birti frétt hjá sér, og fékk síðan ábend­ingu frá íbúa í bænum um að það væri ekki sonur Guðmundu sem er þol­andi í mynd­band­inu. DV bar ábend­ing­una undir Guðmundu sem leið­réttir fyrri frá­sögn sína við blaða­mann Mannlífs og segir að þol­and­inn í mynd­band­inu sé drengur sem hafi verið í fóstri hjá henni síð­asta haust, en ekki sonur hennar. Hún svarar blaða­manni DV með að ofbeldi til­tek­inna ung­linga­hópa í Grinda­vík bein­ist gegn fleirum en syni hennar:

„Lög­reglan er með þetta vídeó og ég var búin að kæra þetta. Það var síðan ráð­ist var á son minn í jan­úar og hann bar­inn af fjórum strákum, kom nef­brot­inn og alblóð­ugur heim, og með heila­hrist­ing,” segir Guðmunda við blaða­mann DV, líkt og hún sagði við blaða­mann Mannlífs fyrr í dag. Sjá frétt DV.

Færslu Guðmundu má sjá hér fyrir neðan, við vörum við mynd­band­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins