„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Simmi vill stytta afgreiðslutíma skemmtistaða: „Ekkert gott gerist eftir þrjú“

Simmi vill stytta afgreiðslutíma skemmtistaða: „Ekkert gott gerist eftir þrjú“

Sig­mar Vil­hjálms­son athafna­maður, sem rek­ur veit­inga­stað­ina Bari­on í Mos­fells­bæ og á Granda og Hl­ölla­báta, auk Minig­arðs­ins í Skútu­vogi, segir í við­tali við Morg­un­blaðið að tími sé kom­inn til að stytta af­greiðslu­tíma veit­inga- og skemmti­staða.

„Það er hægt að böl­sót­ast út í kór­ónu­veiruna út af mörgu. En það sem er já­kvætt við hana er þesssi breyt­ing á skemmt­ana­menn­ing­unni hér á landi, þar sem við erum far­in að fara fyrr út að skemmta okk­ur en áður,“ segir Sigmar. „Ég held að það sé ekki vit­laust fyr­ir okk­ur sem sam­fé­lag að sæta nú fær­is og stytta al­mennt af­greiðslu­tíma skemmti­staða. Þannig gætu leyfi sem gera ráð fyr­ir því að hægt sé að hafa opið til klukk­an fimm um morg­un­inn, færst til klukk­an þrjú, og þau leyfi sem gera ráð fyr­ir að opið sé til klukk­an þrjú, myndu gilda til klukk­an eitt í stað­inn.“

Sam­komu­bann­s­tak­mark­anir sem nú eru í gildi heim­ila veit­inga­stöðum, skemmti­stöðum, krám og spila­söl­um að hafa opið til kl. 23.

Sigmar segir að fátt gáfu­legt ger­ist hjá fólki í skemmt­ana­líf­inu eftir klukkan þrjú á nótt­unni. Flestir geti verið sam­mála um það. Hann telur að styttri afgreiðslu­tími geti sparað sam­fé­lag­inu pen­inga, bæði í lög­gæslu, í bráða­mót­töku og á fleiri sviðum.

„Ég tel að þetta sé hag­kvæmt að því leyti að hag­vöxtur getur auk­ist. Ef fólk skemmtir sér ekki langt fram undir morgun, þá vaknar það fyrr dag­inn eftir skemmt­ana­hald og er virkara í sam­fé­lag­inu þann dag­inn. Þótt ég sé ekki mikið fyrir for­sjár­hyggju tel ég að þetta sé mjög verð­ugt umræðu­efni,” segir Sigma rog bætir við að flestir kollegar hans sem hann hefur rætt við í veit­inga­geir­anum séu honum sam­mála. Hann segir fyr­ir­komu­lagið einnig geta verið gott fyrir veit­inga­menn, minnki álag á starfs­fólk, auki hag­ræð­ingu í rekstri sem gefi færi á verð­lækkun.

„Við vorum neydd út í að hafa styttri afgreiðslu­tíma út af heims­far­aldri og svo reyn­ast allir vera bara sáttir. Ég held að það sé dauða­færi á því núna að opna umræð­una um þetta mál.“

Aðspurður seg­ist hann aldrei myndu reka veit­inga­staði sem hafi opið til klukkan fimm á morgn­ana. „Ég hef ekki áhuga á slíkum rekstri. Við sem bransi verðum núna að þjappa okkur á bak við þessa kúlt­úr­breyt­ingu og reyna að örva hana. Það er miklu betra að láta ballið byrja klukkan tíu en klukkan hálf­tólf.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins