„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Vilhjálmur segir atvinnulífið hafa notað lífeyri launafólks eins og botnlausan sparibauk

Vilhjálmur segir atvinnulífið hafa notað lífeyri launafólks eins og botnlausan sparibauk

Formaður Verka­lýðs­fé­lags Akraness gefur lítið fyrir „hneykslan“ margra full­trúa atvinnu­lífs­ins vegna vilja verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar til að „verja samn­ings­rétt hins vinn­andi manns“. Hann segir þá greini­lega hafa gleymt því að líf­eyr­is­sjóð­irnir hafi tapað 500 millj­örðum í banka­hrun­inu vegna botn­lausrar græðgi atvinnu­lífs­ins.

„Nú stendur bunan og hneykslan upp úr full­trúum atvinnu­lífs­ins vegna þess að verka­lýðs­hreyf­ingin vildi verja grun­vallar rétt­indi launa­fólks sem er samn­ings­rétt­ur­inn. Nú koma þessir snill­ingar yfir sig hneyksl­aðir á fram­ferði verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og heimta að Fjár­mála­eft­ir­litið komi og tukti verka­lýðs­hreyf­ing­una til vegna þess að hún vog­aði sér að vilja verja samn­ings­rétt hins vinn­andi manns,“ segir Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akraness, með vísan í kjara­við­ræður Flug­freyju­fé­lags Íslands og Icelandair.

Telur hann að margir full­trúar atvinnu­lífs­ins séu búnir að gleyma hvernig atvinnu­lífið not­aði líf­eyrir launa­fólks eins og botn­lausan spari­bauk fyrir banka­hrunið. „Veifuðu framan í suma af þeim sem stjórn­uðu líf­eyr­is­sjóð­unum fríum boðs­ferðum í dýr­ustu lax­veiðiár lands­ins, eins og fram kemur í rann­sókn­ar­skýrslu Alþingis,“ segir Vil­hjálmur, sem tjáir sig um málið á Facebook.

„Þeir óðu um á skítugum skónum um líf­eyr­is­sjóði launa­fólks og töp­uðu 500 millj­örðum af líf­eyrir vinn­andi fólks, vegna botn­lausrar græðgi atvinnu­lífs­ins á árunum fyrir hrun.“

Vil­hjálmur minnir launa­fólk á að líf­eyr­is­sjóð­irnir hafi tapað 500 millj­örðum í banka­hrun­inu vegna þess að þeir „stigu trylltan útrás­ar­dans með í atvinnu­líf­inu“. Vitnar hann í ræðu hjá Sigurði Ein­ars­syni, sem var banka­stjóri Kaup­þings, eins og hún er birt í rann­sókn­ar­skýrslu Alþingis: „Án þess þó að hafa rann­sakað það nákvæm­lega, þá held ég að það hafi ekk­ert íslenskt fyr­ir­tæki farið í útrás, án þess að líf­eyr­is­sjóðir hafi verið þar meðal helstu fjár­festa,“ sagði Sigurður Ein­ars­son í ræðu um hlut­verk líf­eyr­is­sjóð­anna árið 2008.“

Vil­hjálmur segir að svo stígi full­trúar atvinnu­lífs­ins fram yfir sig hneyksl­aðir og krefj­ist þess að Fjár­mála­eft­ir­litið láti málið til sín taka. „En þeir eru fljótir að gleyma að þeir óðu um á skítugum skónum um líf­eyr­is­sjóði launa­fólks og töp­uðu 500 millj­örðum af líf­eyrir vinn­andi fólks, vegna botn­lausrar græðgi atvinnu­lífs­ins á árunum fyrir hrun,“ segir hann og spyr hvar Fjár­mála­eft­ir­litið hafi verið þá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjarabarátta

Sólveig Anna svarar SVEIT fullum hálsi: „Aumingja mennirnir að vera svona vitlausir“
InnlentKjarabarátta

Sólveig Anna svarar SVEIT fullum hálsi: „Aumingja menn­irnir að vera svona vit­lausir“

Deilur Eflingar við SVEIT, sam­tök fyr­ir­tækja á veit­inga­mark­aði eru farin að harðna enn meira en lög­reglan var kölluð til í Kringl­una í gær en með­limir Eflingar höfðu efnt til mót­mæla fyrir utan veit­inga­stað­inn Finnsson. Sólveig Anna Jóns­dóttir skýtur föstum skotum á fram­kvæmd­ar­stjóra og lög­mann SVEIT í nýrri Facebook-færslu. „Hvort komu Efl­ing­ar­með­limir saman fyrir utan veit­inga­stað­inn Finnsson í gær vegna sjúkrar...
Elvar á Ítalíu svarar Eflingu: „Höfum enga opinbera styrki fengið vegna Covid“
Innlent

Elvar á Ítalíu svarar Eflingu: „Höfum enga opin­bera styrki fengið vegna Covid“

Eigandi veit­inga­stað­ar­ins Ítalíu harmar mót­mæli Eflingar og að and­lit hans hafi verið á spjöldum mót­mæl­enda. Elvar Ingi­mars­son, eig­andi veit­inga­stað­ar­ins Ítalía, sem mikið hefur verið í fréttum und­an­farið en Mannlíf sagði fyrst fjöl­miðla frá erf­ið­leikum starfs­fólks Ítalíu vegna van­gold­inna launa, í maí á þessu ári. Sjá einnig: Eigandi Ítalíu skuldar starfs­fólki laun: „Ég trúi ekki að þetta sé að ger­ast á...
Efling orðin aðili að Bandalagi norræna stéttarfélaga í þjónustugeiranum:„Við erum stolt og ánægð!“
Innlent

Efling orðin aðili að Banda­lagi nor­ræna stétt­ar­fé­laga í þjón­ustu­geir­anum:„Við erum stolt og ánægð!“

Efling hefur nú gengið inn í SUN, Bandalag nor­ræna stétt­er­fé­laga í þjón­ustu­geir­anum. Eft­ir­far­andi texti má lesa í frétta­til­kynn­ingu sem finna má í heild sinni á vef Eflingar: Efling stétt­ar­fé­lag hefur hlotið aðild að banda­lagi nor­rænna stétt­ar­fé­laga í þjón­ustu­geir­anum, SUN, og verður þar full­gilt aðild­ar­fé­lag um næstu mán­að­ar­mót. Aðildin mun nýt­ast félag­inu afar vel við frek­ari upp­bygg­ingu á félags­legu starfi, segir...
Félag eldri borgara lastar ríkisstjórnina: „Berjast af fullri hörku“
Landið

Félag eldri borg­ara lastar rík­is­stjórn­ina: „Berjast af fullri hörku“

EBAK, Félag eldri borg­ara á Akureyri, lastar rík­is­stjórn Íslands harð­lega fyrir að minn­ast ekk­ert á mál­efni eldri borg­ara í þeim „80 millj­arða pakka“ sem hún setti fram á dög­unum til að liðka fyrir kjara­samn­ingum næstu fjögur ár. Akureyri.net segir frá þessu en ályktun frá félag­inu um þetta var sam­þykkt á aðal­fundi í síð­ustu viku. Hljóðar hún eft­ir­far­andi: Fund­ur­inn átelur rík­is­stjórn...
Sólveig Anna fokill út í Viðskiptablaðið: „Aumingja þeir að vera svona fráleitt vitlausir“
InnlentKjarabarátta

Sólveig Anna fok­ill út í Við­skipta­blaðið: „Aumingja þeir að vera svona frá­leitt vit­lausir“

Sólveig Anna Jóns­dóttir er fok­ill út í „vit­lausu menn­ina“ á Við­skipta­blað­inu sem skrif­uðu leið­ara þar sem kröfur Breið­fylk­ing­ar­innar svokölluð í kjara­samn­ing­unum eru sagðar aðför að sjálf­stæði Seðla­bank­ans. Verka­lýðs­for­ing­inn Sólveig Anna Jóns­dóttir fer mik­inn í nýrr Facebook-færslu þar sem hún svarar leið­ara Við­skipta­blaðs­ins fullum fetum. Í leið­ar­anum eru kröfur Breið­fylk­ing­ar­innar um for­sendu­á­kvæði í lang­tíma kjara­samn­ingi hvað varðar vaxta­stig, sagðar frá­leitar og...
Spyr hvort ríkisstjórnin sé líkleg til að hækka framlög til fátækra: „Ballið er byrjað!“
InnlentKjarabarátta

Spyr hvort rík­is­stjórnin sé lík­leg til að hækka fram­lög til fátækra: „Ballið er byrjað!“

Björn Birg­is­son vandar nýjum fjár­mála­ráð­herra ekki kveðj­urnar í nýlegri Facebook-færslu. Sam­fé­lags­rýn­ir­inn frá Grinda­vík, Björn Birg­is­son skrif­aði færslu á Facebook í gær, við frétt Vísis þar sem Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, nýskip­aður fjár­mála­ráð­herra, segir hækkun launa í krónu­tölu ekki vera málið. Segir Björn að nú sé ballið byrjað. „Þá hlýtur lausnin í kom­andi kjara­deilu að fel­ast í stór­hækk­uðum fram­lögum rík­is­sjóðs til...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins