„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Halldóra Thoroddsen látin: „Elska hennar náði til allra er nærri henni voru“

Halldóra Thoroddsen látin: „Elska hennar náði til allra er nærri henni voru“
|

Halldóra Thorodd­sen, skáld og rit­höf­undur, er látin, 69 ára að aldri.

Halldóra gaf út sína fyrstu bók árið 1990, þegar hún var fer­tug. Eftir hana liggja ljóða­bækur, smá­sögur og tvær skáld­sögur. Bók hennar, Tvöfalt gler, hlaut Fjöru­verð­launin árið 2016, og ári síðar verð­laun Evr­ópu­sam­bands­ins.

Halldóra Thorodd­sen Mynd / Facebook

Páll Bald­vins­son Bald­vins­son rit­höf­undur og frændi Halldóru minn­ist hennar með hlý­hug í færslu á Facebook. Páll og Halldóra voru þre­menn­ingar, en ömmur þeirra voru systur.

„Vil ég minn­ast hennar Dóru. Jörð skalf dag­inn er sú harma­fregn barst okkur frænd­fólki hennar að hún væri fallin frá, bráð­kvödd. Frá því ég man fyrst eftir mér var hún hluti af stórum frænd­garði, ömmur okkar voru systur en við kynnt­umst ekki fyrr en við urðum sam­býl­ingar í stóru timb­ur­húsi við Berg­staða­stræti þar sem þau Kuggur bjuggu um skeið. Þá var engu lík­ara en við hefðum þekkst alla tíð. Hún var lát­laus mann­eskja, ein­stak­lega hlý og mild í lund, með blik í auga eins og Lára ömmu­systir hennar. Kurteis og glað­lynd, fag­ur­keri eins og hún átti ætt til. Seinna sótti hún nám til móður minnar sem mat hana mik­ils fyrir list­fengi hennar og fág­aðan smekk á hand­verk.

Gest­kvæmt var á Berg­staða­strætið á þessum árum. Bjartan sunnu­dags­morgun hafði úti­gangs­maður átt sinn hinsta nátt­stað undir úti­dyra­tröppum og ég heyrði Dóru í morg­un­kyrrð­inni tala til hans blíð­lega og er leið á morg­un­inn litum við til hans aftur en þá var hann ekki vak­inn. Elska hennar náði til allra er nærri henni voru. Við vorum glöð þegar hún fann rödd sinni far­veg í texta­smíð, þangað átti hún erindi með sinni sér­stöku rödd og sýn á mann­heima. Miss­ir­inn er sár. Pilt­arnir hennar, systur, bróðir, frænkur, frænd­garður, vinir, hafa mest misst. Ljóminn af henni Dóru er skýr og skær. Og nú þegar við reynum að ná áttum vil ég minn­ast hennar í löngu liðnum minn­ing­arglampa þar sem hún dans­aði ein, ung, fögur og glöð um sal­inn á Gamla garði í fögn­uði sínum að vera til. Hennar er sárt saknað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins