„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Kristinn Rúnar gekk 100 km samfleytt í maníu: „Að vera á geðdeild er svolítið eins og að vera góður í póker“

Kristinn Rúnar gekk 100 km samfleytt í maníu: „Að vera á geðdeild er svolítið eins og að vera góður í póker“

Kristinn Rúnar Krist­ins­son, sem er 31 árs að aldri, hefur glímt við geð­hvörf í rúman ára­tug, en hann var greindur með geð­hvörf árið 2009. Í man­íum hefur hann margoft lent í ýmsum upp­á­komum, sem margar eru hálf­lygi­legar að heyra.

Kristinn Rúnar gaf bók­ina Man­íuraunir: Reynslu­saga strípal­ings­ins á Aust­ur­velli út í lok árs­ins 2018, og las hana síðar sjálfur inn sem hljóð­bók á Storytel. Í bók­inni segir hann frá því þegar hann ber­hátt­aði sig á Aust­ur­velli, sem hann varð lands­þekktur fyrir eftir að fréttir birt­ust af atvik­inu, hvernig hann reyndi að tengj­ast Cristiano Ronaldo í gegnum Her­balife og stýrði umferð á sund­skýl­unni einni fata.

Bókin Man­íuraunir

Kristinn Rúnar hefur verið opinn um and­leg veik­indi sín, og vill vekja fólk til umhugs­unar um geð­sjúk­dóma. Núna í júní fór hann í sína fimmtu maníu, og seg­ist hann hafa gengið fram af sjálfum sér í bók­staf­legri merk­ingu.

„Ég gekk 100 kíló­metra sam­fleytt dag­ana 17.-18. júní í 30 klukku­tíma án þess að stoppa neitt,“ segir Kristinn Rúnar í sam­tali við Mannlíf, en hann hóf göng­una heiman frá sér í Furu­grund í Kópavogi.

„Þaðan labb­aði ég í Mosó, og var þar í tvo daga án þess að sofa og labb­aði síðan aftur heim,“ segir Kristinn Rúnar. Í færslu á Facebook seg­ist hann hafa ákveðið eftir mikið labb um Mos­fellsbæ að hann ætl­aði að flytja í eina af blokk­unum þar í fram­tíð­inni. „. Hún er rosa­lega flott, með glæsi­legum stórum gluggum og nokkuð vel falin. Ég var að spá í að ganga vestur í Borg­ar­nes en hætti við það og ákvað að skoða Mosó betur og var þar í rúm­lega tvo daga, svaf ekki neitt. Skoðaði mörg íbúð­ar­hverfin og bygg­ingar gaum­gæfu­lega. Gekk hljóð­lega fram­hjá hestum í kring, skoð­aði nátt­úr­una og vötn. Var orð­inn tölu­vert skítugur og blautur eftir þessar raunir. Fékk mér sjeik, vatn og Coca Cola á Barion Bar og gekk síðan aftur í Kópa­vog­inn.“

Kristinn Rúnar hélt aftur heim, en þó ekki til að hvíla sig. „Ég gat heldur ekki sofið vegna birtunnar og orku. Það var mjög erfitt í marga daga. Þannig að þarna sá eg ekk­ert annað i stöð­unni en að klára sjálfan mig og hvíl­ast síðan i kjöl­farið.“

Að hans sögn var sím­inn hans óvirkur, lík­lega vegna þess að hann sló leyni­núm­erið of oft rangt inn, senni­lega sökum þreytu. Bíllinn hans var einnig bil­aður. „Ég keyrði því ekki neitt í þess­ari maníu og gekk allt sem ég fór.“

Kristinn Rúnar á göng­unni

Atvik með lögreglunni

Kristinn Rúnar hélt áfram göng­unni, heiman frá sér beint í mið­bæ­inn á föstu­dags­kvöld­inu, þar var hann alla nótt­ina að skoða hótel, bygg­ingar og styttur. „Í hádeg­inu á laug­ar­dag ákvað ég síðan að labba í Skeifuna til að hefna mín á lög­regl­unni, eftir atvikið á föstu­dags­kvöld­inu.“

Atvikið sem Kristinn Rúnar vísar til varð að hans sögn þegar hann var mættur í mið­bæ­inn í slæmu ástandi, sem hann segir ekki hafa farið fram­hjá neinum. Hann gaf sig á tal við lög­reglu­menn sem þar voru.

„Ég treysti mér ekki til þess að ganga í Kópa­vog­inn sökum þreytu og einnig var ég far­inn að finna gríð­ar­lega til í hásin­unum sem ég hélt fyrst að væru hæl­særi því ég var að vígja nýju Jordan skóna mína þessa daga í man­í­unni. Þeir litu út eins og tveggja ára eftir á,“ segir Kristinn Rúnar, sem seg­ist hafa beðið lög­regl­una um að skutla sér á geð­deild Land­spít­al­ans við Hring­braut, „því ég ætti nokkuð stóra og langa sögu þar inni, und­an­far­inn rúma ára­tug­inn. Ég var ekki búinn að sofa þarna í þrjá daga og leit ekki vel út, svarið sem ég fékk frá þeim var að geð­deild­irnar væru ekki starf­ræktar lengur og að þeir væru upp­teknir við annað og gætu því ekki hjálpað mér,“ segir Kristinn Rúnar, sem seg­ist í sínu skrítna og maníska ástandi þarna hafa hugsað með sjálfum mér hvort bar­átta hans und­an­farin ár, hefði skilað svo miklum árangri að við þyrftum ekki geð­deildir lengur.

Kristinn Rúnar seg­ist þá hafa ætlað að ganga heim en ekki haft orku til þess og verið sár­kval­inn í hásin­unum. Hann hafi hins vegar getað gengið á lög­reglu­stöð­ina við Hverf­is­götu, þar sem eng­inn var, en hann hringdi í lög­regl­una og lét vita þannig af sér.

„Þrír ungir lög­reglu­þjónar komu og spjöll­uðu við mig, tvær stelpur og einn strákur. Þau voru frekar leið­in­leg og dóna­leg, sér­stak­lega strák­ur­inn. Sögðust ekk­ert kann­ast við mig eða mína sögu og tjáðu mér að þau gætu ekki verið leigu­bíl­stjóri fyrir mig. Ég brjál­að­ist af reiði, sagði þetta ömur­legan leik­þátt hjá þeim og struns­aði öskr­andi í burtu. Ekki alveg það sem ég þurfti á að halda í þessu ástandi, sem var orðið alvar­legt og lög­reglan, af öllum aðilum, að gera það ennþá verra,“ segir Kristinn Rúnar.

„Þau lásu bara rangt í aðstæður, ég var blá­edrú og virk­aði kannski of eðli­legur. En ég var blautur, í mjög skítugum skom og drag­haltur eftir að hafa mis­þyrmt hásin­unum dag­ana a undan,“ segir Kristinn Rúnar í sam­tali við Mannlíf. „Aðrir lög­reglu­þjónar, án hroka og leið­inda hefðu lesið aðstæður betur. Hvernig ég brast við þegar mér var tjáð að þau væru ekki leigu­bíll fyrir mig var atriði út af fyrir sig, ég varð rosa­lega reiður, og þau löbbuðu bara frá því eins og ekk­ert hefði gerst. Ég var mjög greini­lega í and­legu ójafn­vægi.”

Aðspurður segir hann að hans reynsla sýni honum að margs konar for­dómar og stælar þrí­fist innan lög­regl­unnar gagn­vart and­lega veikum ein­stak­lingum. „Þau verða svaka­lega góð með sig þegar í bún­ing­inn er komið. Mér skilst að skrif mín séu skellur fyrir lög­regl­una, og for­dóma lög­reglu­manna gagn­vart and­legum veik­indum fólks. Einnig oft á tíðum slæmt við­mót þeirra gagn­vart vanda­málum borg­ara.“

„Mynd af mér í sjúkra­þjálfun vegna veru­lega bólg­inna og illa togn­aðra hásina. Sjúkra­þjálf­ar­inn minn sagði mér að ef ég væri atvinnu­maður í íþróttum þá væri ég frá æfingum og keppni í þrjár vikur.“

Stjórnaði umferð í Skeifunni í maníuástandi

Kristinn Rúnar segir að þar sem lög­reglan tók hann ekki alvar­lega hafi hann tekið þá ákvörðun að fara í Skeifuna og fikta í umferð­inni. „Það hefur verið mitt „go to move“ síð­ustu ár þegar ég er í þessu ástandi,“ segir Kristinn Rúnar. Aðspurður seg­ist hann alveg hafa vitað hvað hann var að gera.

„Algjör­lega, ég vissi hvað ég þyrfti að gera. Flestir eru ekki með­vit­aðir og ekki með mikið inn­sæi. Muna lítið sem ekk­ert eftir man­í­unum. En ég hef gott inn­sæi, veit alltaf hvernig mér líður og man allt, 320 blað­síðna bók sannar það,” segir hann. „Ég öskr­aði og hót­aði bílum í 20 mín­útur þar til allt fór í panik, og tveir lög­reglu­bílar og lög­reglu­menn komu í losti. Loksins var ég tek­inn alvar­lega og að ég þyrfti aðstoð.“

Í færsl­unni á Facebook lýsir Kristinn Rúnar atburða­rásinni þannig: „Ég bjó til atriði í hausnum á leið­inni í Skeifuna, fann mér svona odd­hvasst tré­spjót sem er oft við umferð­ar­eyjur og öskr­aði á öku­menn og hót­aði þeim. Spurði þá hvort þeir væru sekir eða sak­lausir yfir ein­hverju alvar­legu sem ég bjó til og náði að ,,sæka“ mig upp og öskra stans­laust yfir í 15-20 mín­útur. Tók góðan hring í Skeif­unni og end­aði uppi á brúnni ofan í bílum þar til lög­reglan kom á tveimur bílum í algjöru losti og panikki yfir þessu leik­riti sem ég hafði búið til. Ótrúlegt að ég hafi haft orku í þetta eftir allt það sem hafði gengið á dag­ana á undan. Þetta þurfti til svo að lög­reglan tæki mig alvar­lega. Hún spurði mig samt sem áður, þegar í lög­reglu­bif­reið­ina var komið, hvort ég vildi fara heim til mín eða á geð­deild. Ég sagði: ,,Ég þarf að fara á geð­deild og fá tveggja vikna hvíld.“ Dagarnir þar inni urðu fimmtán tals­ins.“

Í sam­tali við Mannlíf segir hann hafa fundið leið sem skað­aði engan. „Létt panikk samt a fólki og löggu, ekki í fyrsta sinn svo sem.“

Aðspurður um hvort hann hefði ekki fengið pláss á geð­deild hefði hann ein­fald­lega gengið þar inn og beðið um aðstoð, segir hann pláss­leysi valda því að aðeins þeir veik­ustu fái aðstoð. „Það er mjög erfitt að fá inn­lögn á geð­deild og maður þarf helst að hafa gert eitt­hvað af sér og koma i lög­reglu­fylgd til að fá pláss. Ég hefði senni­lega kom­ist inn með herkjum þarna sjálfur fyrir Skeifu-dæmið. Alls ekki víst samt. 50% líkur að ég hefði verið sendur heim með lyf ef ég hefði komið sjálfur. Ég vissi alveg af þeim mögu­leika, þrátt fyrir mína sögu. Þess vegna fór ég líka og tryggði mitt pláss,“ segir hann.

„Það var virki­lega erfitt en nauð­syn­legt að fá rammann utan um sig. Það eru alltaf 2-3 aðilar sem búa á bráða­geð­deild 32 C hverju sinni og eru með gríð­ar­leg læti. Engin önnur úrræði eru fyrir þessa aðila. Öll sú mikla spenna sem er þarna inni fer í lapp­irnar á mér, og voru þær gríð­ar­lega við­kvæmar fyrir að þessu sinni. Fyrstu dag­ana á deild­inni voru þær eins og á líki, skjanna­hvítar og ekk­ert blóð­blæði var til staðar,“ segir Kristinn Rúnar.

En hvernig er að vera á geð­deild?

„Að vera á geð­deild er svo­lítið eins og að vera góður í póker. Þú ert oft á tíðum að sýna að þér líði vel þó svo að þér líði alls ekki vel, ert að sýna að þú sért æðstur eða einn af þeim æðstu þarna inni og að gríð­ar­leg læti, píp­andi varn­ar­tæki og sprett­andi starfs­menn fái ekk­ert á þig og að þú sért ,,Cool as ice“ yfir ástand­inu. Að vera inni á bráða­geð­deild hljómar ekk­ert svo svaka­legt, en að vera þar í 2-3 vikur er algjör sturlun,“ segir Kristinn Rúnar, sem líður vel í dag. „Ég hef það fínt í dag, kom­inn mán­uður frá þessu actioni.”

„Jordan skórnir sem voru glæ­nýir fyrir 100 kíló­metra göng­una.“
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

lögregla

Lögreglan stöðvaði matarsendingar í ólöglega námuvinnslu: „Líkin byrjuðu að hrannast upp“
Heimurlögregla

Lög­reglan stöðv­aði mat­ar­send­ingar í ólög­lega námu­vinnslu: „Líkin byrj­uðu að hrann­ast upp“

Maður sem stund­aði ólög­lega námu­vinnslu í Suður-Afríku lýsir óbæri­legri reynslu eftir að lög­reglan stöðv­aði mat­ar­send­ingar niður í námuna. Tugir manna sátu og lágu saman í litlum hellum, sumir svo grunnir að þeir gátu ekki staðið upp. Loftið var blautt og stíflað og pirr­andi hósti berg­mál­aði í lok­uðu rým­inu. Þannig hefst lýs­ing sex barna föð­urs frá Suður Afríku en þar stund­aði...
Ökumenn sögðust vera óslasaðir
Innlentlögregla

Ökumenn sögð­ust vera óslas­aðir

Lög­reglu­stöð 1 Bifreið stöðvuð en öku­maður grun­aður um akstur undir áhrifum fíkni­efna. Starfs­menn hót­els óska aðstoðar vegna gesta sem voru ósáttir. Tilkynnt um ein­stak­ling sof­andi ölv­un­ar­svefni. Tilkynnt um inn­brot í fyr­ir­tæki. Bifreið stöðvuð við almennt eft­ir­lit. Reyndist öku­maður vera með þrjá umfram far­þega í bif­reið­inni. Tilkynnt um rúðu­brot í fyr­ir­tæki. Tilkynnt um inn­brot í fyr­ir­tæki. Bifreið stöðvuð en öku­maður er...
Ræningjar á ferð í Grindavík um jólin – Gaskútaþjófar náðust á myndband en lögregla áhugalaus
Innlentlögregla

Ræn­ingjar á ferð í Grinda­vík um jólin – Gaskúta­þjófar náð­ust á mynd­band en lög­regla áhuga­laus

Ræn­ingjar hafa farið ráns­hendi um Grinda­vík ef marka má frá­sögn Arons Ágústs­son íbúa í Grinda­vík. Hann segir að gaskútar hafi horfið frá sér og nágrönnum sínum. Þetta upp­götv­aði hann í gær þegar hann lagði leið sína í bæinn yfir­gefna. Vef­mið­ill­inn Vísir greinir frá þessu og ræðir við Aron sem lýsir undrun sinni á því að óprút­tnir aðilar kom­ist inn í...
Aldrei fleiru fólki vísað frá landinu: „Brýnt er að koma þessu í lag. Lög bjóða ekki annað“
Innlentlögregla

Aldrei fleiru fólki vísað frá land­inu: „Brýnt er að koma þessu í lag. Lög bjóða ekki annað“

Aldrei hefur fleiri far­þegum verið vísað frá Íslandi á Kefla­vík­ur­flug­velli við komu þeirra til lands­ins. Lög­reglan á Suð­ur­nesjum sendi fjöl­miðlum í dag frétta­til­kynn­ingu þar sem hún tekur saman ýmsar tölu­legar upp­lýs­ingar um starf­semi lög­reglunna á Suð­ur­nesjum. Fram kemur í bréf­inu að aldrei hafi fleiri far­þegum verið vísað frá land­inu á Kefla­vík­ur­flug­velli við komu þeirra til lands­ins. Flestir þeirra eru þriðja...
Hnoðað í manninn sem lést á börum: „Sáum allt loga í blá­um ljós­um“
Innlentlögregla

Hnoðað í mann­inn sem lést á börum: „Sáum allt loga í blá­um ljós­um“

Íbúi í Voga­byggð sá mann­inn sem lést um helg­ina bor­inn út á börum Nú um helg­ina lést maður á sex­tugs­aldri og var kona á sama aldri úrskurðuð í gæslu­varð­hald stuttu eftir það, sem var svo fram­lengt til 4. októ­ber. Maðurinn lést í húsi í Voga­byggð og sagði íbúi hverf­is­ins frá atvikum sem hann varð vitni að. „Við vor­um bara heima...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins