„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hlustaðu á Húsavík með íslenskum texta

Hlustaðu á Húsavík með íslenskum texta

Hið geysvin­sæla lag Húsavík er nú komið í íslenskan bún­ing.

Signý Gunn­ars­dóttir.

„Ég henti nú bara í þetta í algjöru gamni. Veit ekki hvort það er skammar­legt að segja frá því en ég var svona kortér að því,“ segir Signý Gunn­ars­dóttir og hlær, en hún hefur gert sér lítið fyrir og þýtt enskan texta lags­ins Húsavík yfir á íslensku.
Lagið, sem er úr kvik­mynd­inni The Eurovision Song Contest: The Story of Fire Saga, þykir stór­kost­legt að margra mati og hef­ur notið gríð­ar­legra vin­sælda upp á síðkastið, bæði hér­lend­is og er­lend­is.

Í sam­tali við Mannlíf seg­ist Signý hafa gert tölu­vert af því að þýða alls kyns söng­texta yfir á íslensku, aðal­lega fyrir dóttur sína sem er söng­kona og hún hafi einmitt þýtt Húsa­víkur-lagið með hana í huga. „En svo var hún ekki til í að syngja það þannig að þá ákvað ég að senda text­ann á tvo vini mína, Ödda vin minn, sem er tón­list­ar­maður og Evu vin­konu, sem er geggjuð söng­kona. Þau eru í hljóm­sveit­inni Kókós og ég vissi að þau myndu gera þetta með glæsi­brag. Við vorum bara að leika okkur að þessu núna á laug­ar­dag­inn,“ segir hún glað­lega.

Spurð hvernig við­tök­urnar við lag­inu hafi verið segir Signý að almennt hafi fólk mjög gaman af upp­á­tæk­inu. „Fólki finnst þetta skemmti­legt,“ segir hún. „Eru ann­ars ekki allir ánægðir þegar Ísland er hæpað og finnur fyrir þjóð­arstolti í hart­anu? Er það ekki einmitt að ger­ast núna með þess­ari Eurovision-mynd?“

„Ég henti nú bara í þetta í algjöru gamni. Veit ekki hvort það er skammar­legt að segja frá því en ég var svona kortér að því.“

Hvernig finnst þér myndin? „Mér finnst söng­at­riðin flott. Já, ætli ég láti ekki duga að segja það,“ segir hún og ræskir sig.

En hvað með hina smell­ina, Double Trouble, Lion of Love og JaJa Ding Dong, stendur til að þýða þá líka? „Ég veit það ekki alveg. Ég ætl­aði fyrst að þýða JaJa Ding Dong en svo fannst mér aðeins of gróft að fara að tala um þrútna ást og þar fram eftir götum,“ við­ur­kennir hún og hlær, en hér að neðan má sjá flutn­ing Evu Hrannar Guðna­dóttur og Örnólfs Örn­ólfs­sonar á Húsavík, með íslenskum texta Signýjar.

Hér er svo text­inn í heilu lagi:

Húsavík

Ég stend alein
með heim­inn mér að fótum
sem er öðrum ætl­aður.
Hef reynt og aftur reynt
að gefa þér mitt hjarta,
segja satt, ekki lát­ast neitt.

Þurfti aðeins að kom­ast burt
til að skilja að ég vil vera um kjurt.

Þar er fjalla­söngur og máva­g­argið
og hvalir stökkva við sjáv­ar­bjargið
í heimabæ, mínum heimabæ.
Hélt það væri ljóst, hvað þarf ég að gera?
Var alltaf ást sem við létum vera?
Allt sem þarf er ég og þú, að …

vera með þér, með þér
á Húsavík við Skjálf­anda.
Já, heima­bær­inn minn.

Heiminn þráir þú.
Fyr­ir­sagnir, slúður, drama.
Þú vilt frægð og þú vilt frama.
Og ég fylgdi þér
en ég veit nú hvað ég þrái
og finn að þú vilt fylgja mér.

Þar er fjalla­söngur og máva­g­argið
og hvalir stökkva við sjáv­ar­bjargið
í heimabæ, mínum heimabæ.
Þar sem norð­ur­ljós lýsa dimmar nætur
og töfrar ger­ast við heima­rætur.

Eina sem ég þrái er, að vera
með þér, með þér á Húsavík við Skjálf­anda.
Minn heima­bær

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins