„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Bára í nýju ljósi

Bára í nýju ljósi

Bára Hall­dórs­dóttir stendur fyrir óvenju­legum við­burði í Gallerí Fold í dag.

„Þetta er sýn­ing um hrak­farir, að vissu leyti, ef það er þá á annað borð hægt að kalla þetta sýn­ingu. Kannski mætti segja að þetta sé frekar upp­stand eða saga eða gjörn­ingur eða sam­heng­is­laust tal nú eða jafn­vel bara sýn­ing um það hvernig sýn­ingar verða ekki til,“ segir Bára Hall­dórs­dóttir, fötl­un­ar­aktí­visti, upp­ljóstr­ari og fjöl­lista­kona, um sýn­ing­una – eða ættum við kannski að segja upp­á­kom­una – This is not a Show, sem Bára stendur fyrir í Gallerí Fold í dag klukkan 16.30 og er hluti af jað­ar­lista­há­tíð­inni Reykja­vík Fringe.

Þar ætlar Bára að varpa ljósi á þá stöðu sem margir lang­veikir eru í. „Þarna verður sjónum beint að fólki sem hefur glímt við veik­indi lengi og þá sem eru í áhættu­hópi í far­öldrum eins og COVID-19,“ útskýrir hún. „Fókusinn verður á fólk sem vegna veik­inda sinna nær ekki að klára alls konar hluti. Það er nefni­lega svo oft þannig hjá okkur sem eru lang­veik að hlutir eru hálf kláraðir vegna alls konar hind­r­ana. Við hendum þeim bara. Þessi við­burður er um það.“

„Áhorf­endur urðu mjög snortnir og svo inni­legir eftir á. Það var eig­in­lega alveg ótrú­legt.“

Bára tekur fram að við­brögðin hafi verið ótrú­lega góð þegar við­burð­ur­inn var frum­sýndur í Gallerí Fold á mánu­dag­inn var. Eig­in­lega hafi þau farið fram úr björt­ustu vonum. „Áhorf­endur urðu mjög snortnir og svo inni­legir eftir á. Það var eig­in­lega alveg ótrú­legt,“ segir hún glað­lega.

Bára er ekki ókunnug Reykja­vík Fringe því hún stóð fyrir óvenju­legum gjörn­ingi á hátíð­inni í fyrra. Þá var Bára „til sýnis“ á Lista­stof­unni í Reykja­vík í þeim til­gangi að sýna gestum og gang­andi fólk með fötlun í umhverfi sem flestum er alla jafna hulið. Hún segir að þetta sé hins vegar í fyrsta skipti sem hún „per­formar live“. „Ég hef ekki staðið fyrir svona „live showi áður því síð­ast var ég meira til sýnis. Hver veit, kannski verður þetta upp­hafið að ein­hverju nýju og skemmti­legu“,“ segir hún og bætir við að það væri gaman að geta sýnt við­burð­inn á öðrum vett­vangi að hátíð lok­inni, þ.e. þegar hún hafi náð að safna kröftum.

Hún hvetur þá sem ætla ein­ungis að kíkja á inn­setn­ing­una, en ekki við­burð­inn sjálfan, að lesa litla örvið­talið sem er haft þar til hlið­sjónar. Nánar um við­burð­inn hérna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins