„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Steinunn Ólína minnist Stefáns Karls: „Ekki líður sá dagur að ég hugsi ekki til hans“

Steinunn Ólína minnist Stefáns Karls: „Ekki líður sá dagur að ég hugsi ekki til hans“
Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir

„Það eru tæp tvö ár síðan hann dó. Ekki líður sá dagur að ég hugsi ekki til hans, oftar en ekki er það vegna ein­hvers hvers­dags­legs sem ég veit að hann hefði fundið ástæðu til að snúa upp í grenj­andi fyndið grín­at­riði,“ skrifar Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir leik­kona og rit­stjóri í pistli á vef sínum, Kvenna­blað­inu. Þar minn­ist Steinunn eig­in­manns­ins Stefáns Karls Stef­áns­sonar leik­ara, sem hefði orðið 45 ára í dag, væri hann á lífi, en Stefán lést árið 2018, 43 ára að aldri eftir tveggja ára bar­áttu við ill­vígt gall­ganga­krabba­mein.

Segir Steinunn Ólína Stefán Karl hafa haft þann fágæta eig­in­leika að geta vaknað hvern dag eins og honum hefði verið gefið nýtt tæki­færi. „Ekki skyldi dvelja and­ar­tak við hið liðna þótt illa gengi eða að hann hefði hlaupið eitt­hvað á sig. Stundum stapp­aði þessi eig­in­leiki hans nærri ábyrgð­ar­leysi,“ skrifar hún, „en ég veit að nákvæm­lega þessi hæfi­leiki til að hugsa alltaf fram á við og berja sig ekki niður fyrir mis­tök eða fljót­færni var líka hans gæfa. Hann áork­aði svo miklu á stuttum tíma, eilíf­lega áhuga­samur um að skapa eitt­hvað nýtt og spenn­andi með þessar góðu gáfur og ein­stak­lega frum­legu og frjóu hugsun í fartesk­inu.“

„Að elska og vera elsk­aður er það eina sem skiptir máli. Allt annað er drasl.“

Segist henni verða þungt fyrir brjóst­inu þegar hún um bar­áttu Stefáns við gall­ganga­krabbann sem dregur nær alla sem fá þann dóm til dauða, henni hrylli við þeirri lík­am­legu þján­ingu sem hann þurfti að þola í veik­indum sínum. „Þar stendur upp úr með­líðan með honum og hans óupp­fylltu draumum fremur en sjálfs­vor­kunn. Ég hef ekk­ert leyfi til að vor­kenna sjálfri mér, ég fékk að lifa áfram og ég hef fyrir börnum að sjá.

Mín sátt nú, ef það er hægt að kalla það sátt, felst held ég í því að ég veit að ég lagði mig fram í ómögu­legum aðstæðum, ég gerði það sem ég gat til að vera honum góð á erf­iðum stundum, lét allt eftir honum og lagði nán­ast allt annað til hliðar. Það gerði ég ekki bara hans vegna heldur ekki síður mín vegna. Brjóst­vitið sagði mér að ég gæti ekki lifað áfram með sjálfri mér og börn­unum okkar og orðið framar til nokk­urs gagns ef ég gerði ekki veik­indi hans og bar­áttu að algjöru aðal­at­riði.“

Steinunn Ólína kveðst ekki sjá eftir því, engu hafi hún áorkað um dag­anna sem er lær­dóms­rík­ara og gjöf­ulla. „Og ef ein­hver velk­ist í vafa hvers vegna við yfir­leitt fæð­umst þá er svarið: Við erum hér til að vera eins góð og við getum við þá sem þurfa á okkur að halda. Ég hef sagt þetta áður. Að elska og vera elsk­aður er það eina sem skiptir máli. Allt annað er drasl.“

Hvetur hún fólk til að fá sér súkkulaði­köku. Í til­efni af fæð­ing­ar­degi Stefáns ætli fjöl­skyldan að baka „Betty Fucker“ súkkulaði­köku sem hún geti ekki gert eins vel og hann þrátt fyrir að fara eftir skot­heldum leið­bein­ingum á pakk­anum. „Hún verður bökuð og við fáum okkur sneið og drekkum kalda mjólk með.“

Hægt er að lesa pistil­inn í heild sinni á vef Kvenna­blaðs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fræga fólkið

Justin Bieber hellir olíu á eld orðróma um skilnað – Hættur að fylgja Hailey á Instagram
Menning

Justin Bieber hellir olíu á eld orðróma um skilnað – Hættur að fylgja Hailey á Instagram

Áhyggjur hafa auk­ist um hjóna­band Justin og Hailey Bieber, eftir að Justin hætti að fylgja Hailey á Instagram. Hjónin, sem eign­uð­ust sitt fyrsta barn á síð­asta ári, hafa verið í miðju vanga­veltna í marga mán­uði. Notendur sam­fé­lags­miðla hafa und­an­farið haldið því fram að hjóna­band þeirra standi á brauð­fótum, þrátt fyrir að þau hafi nýlega tekið á móti syn­inum Jack Blues...
Taylor Swift lék á ljósmyndara á veitingastað – MYNDBAND
Menning

Taylor Swift lék á ljós­mynd­ara á veit­inga­stað – MYNDBAND

Taylor Swift þarf alltaf að vera skrefi á undan pap­ar­röss­unum en nýtt mynd­band sýnir hana og tvær frægar vin­konur hennar laum­ast út af veit­inga­stað í Los Angeles til að forð­ast mynda­vélar óðra ljós­mynd­ara. Mynd­bandið, sem var tekið í jan­úar, en birt­ist á TikTok á sunnu­dag, sýnir Taylor, Brittany Mahomes og Lyndsay Bell gang­andi í gegnum eld­húsið á Spago Wolfgang Puck-veit­inga­staðnum...
Dánarorsök TikTok-stjörnunnar Taylor Grigg opinberuð: „Skyndilegt og óvænt“
Heimurfræga fólkið

Dán­ar­or­sök TikTok-stjörn­unnar Taylor Grigg opin­beruð: „Skyndi­legt og óvænt“

Dán­ar­or­sök TikTok-stjörn­unnar Taylor Rousseau Grigg hefur verið opin­beruð. Í gær greindi Today.com frá því að hinn 25 ára áhrifa­vald, hafi lát­ist 4. októ­ber af völdum fylgi­kvilla tengdum astma og Addison-sjúk­dóm­inum, að sögn full­trúa fjöl­skyldu hennar. Eig­in­maður hennar, Cameron Grigg, deildi fyrst fréttum af and­láti Taylor 5. októ­ber. Hann birti virð­ing­ar­vott til sam­fé­lags­miðla­stjörn­unnar með löngum, til­finn­inga­þrungnum texta og lýsti and­láti lát­innar...
Systir Kate Moss flutt á sjúkrahús vegna Ozempic: „Það skelfilegasta sem hefur komið fyrir mig“
Menning

Systir Kate Moss flutt á sjúkra­hús vegna Ozempic: „Það skelfi­leg­asta sem hefur komið fyrir mig“

Systir Kate Moss, Lottie Moss varar fólk við að taka Ozempic-syk­ur­sýkis­lyfið sem margir taka í megr­un­ar­skyni. Yngri systir ofur­fyr­ir­sæt­unnar Kate Moss var hrein­skilin um bar­áttu sína við syk­ur­sýkis­lyfið sem margir hafa notað til að missa kíló og kall­aði það „verstu ákvörðun“ sem hún hefði tekið í hlað­varps­þætt­inum Dream On í gær. „Mér leið svo illa einn dag­inn að ég sagði...
Aðdáendur hafa áhyggjur af heilsu Rachael Ray – MYNDBAND
Menning

Aðdá­endur hafa áhyggjur af heilsu Rachael Ray – MYNDBAND

Aðdá­endur sjón­varps­kokks­ins fjör­lega, Rachael Ray hafa áhyggjur af heilsu hennar eftir að hún birti mynd­skeið á Instagram. Þar hljómar hún þvoglu­mælt að margra mati. Sjón­varps­kokk­ur­inn deildi búti úr þætt­inum sínum, „Rachael Ray í Toskana,“ á Instagram á mánu­dag­inn, þar sem hún sagði frá því þegar hún drap næstum því söngv­ar­ann Tony Bennett, heit­inn í einum eft­ir­minni­legum kvöld­verði … en hún...
Fann ástina í faðmi flóttamanns: „Giftingin verður gjörningur“
Menning

Fann ást­ina í faðmi flótta­manns: „Gift­ingin verður gjörn­ingur“

Á dög­unum fagn­aði parið, Páll Óskar og Antonio, árslöngu sam­bands­af­mæli. „Við vilj­um gifta okk­ur og erum að und­ir­búa það ferli allt sam­an núna,“ segir Páll Óskar frá og lýsir flækjum sem fylgja dval­ar­leyfi og hjú­skap­ar­ferl­inu en Antonino unnusti hans er flótta­maður frá Venezúela. „Við ætl­um ekki að halda brúð­kaup strax vegna þess að eft­ir gift­ing­una, sem er í raun­inni svona...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins