„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fuglinn í fjörunni hann heitir Hrafn

Fuglinn í fjörunni hann heitir Hrafn

Hug­sjóna­mað­ur­inn Hrafn Jök­uls­son stendur í stór­ræðum við að hreinsa fjörur á Ströndum. Tugir sjálf­boða­liða eru til hjálpar.

Hrafn Jök­uls­son, hug­sjóna­maður og skák­fröm­uður, hefur gert það að sínu stærsta bar­áttu­máli að hreinsa fjörur í Árnes­hreppi þar sem plast og annar úrgangur berst jafnan á land. Hreins­un­ar­starfið hófst í vor og mættu tugir sjálf­boða­liða til að leggja mál­efn­inu lið. Mannlíf ræddi við Hrafn þar sem hann stik­aði um fjörur í Árnesi með gogg í hendi og eld­móð í hjarta. Ósjálfrátt kemur upp í hug­ann gömul vísa: Fuglinn í fjör­unni, hann heitir már. En þessi heitir auð­vitað Hrafn.

„Kolgraf­ar­vík hefur á síð­ustu vikum eign­ast marga og góða vini sem ætla að hjálpa mér að taka til í fjörum Tré­kyllis­víkur,“ segir Hrafn Jök­uls­son sem und­an­farið hefur staðið í ströngu við að hreinsa fjörur í Árnes­hreppi.

„Ég ætla að end­ur­gjalda Kolgraf­ar­vík, fóstru minni, fyrir öll ævin­týrin í gegnum árin og taka til.“

Hrafn hefur sett í gang sér­stakt átak í Kolgraf­ar­vík sem er í landi Stóru-Ávíkur þar sem hann var í sveit sem barn og hefur síðan haldið tryggð við. Fjöl­margir hafa lagt Hrafni lið í átak­inu. Hann seg­ist vera þakk­látur fyrir und­ir­tekt­irnar. „Ferða­fé­lag Íslands stendur svo sann­ar­lega undir nafni sem menn­ingar- og fram­fara­fé­lag og sendi til mín vaskan hóp sjálf­boða­liða 17.-20. júní. Það var upp­lifun að kynn­ast því magn­aða fólki sem kom um langan veg með bros á vör til að hreinsa fjörur og frelsa nátt­úr­una úr fjötrum. Okkur bætt­ist svo heldur betur liðs­auki þegar heill göngu­hópur Ferða­fé­lags­ins kom með okkur í fjörur Finn­boga­staða og dró saman ókjör af plasti. Ég er Ferða­fé­lag­inu, jafnt starfs­mönnum sem sjálf­boða­liðum og göngu­fólki, óend­an­lega þakk­látur fyrir lið­veisl­una. Og það var hrein­lega eins og almættið hefði smellt fingrum þegar Tómas Knútsson, stofn­andi Bláa hers­ins, kom askvað­andi með alla þekk­ingu sína og eld­móð. Ekki er minna um vert að Þórarinn Ívarsson, krafta­verka­mað­ur­inn bak við Ver­ald­ar­vini, ætlar að senda hópa sjálf­boða­liða til mín í sumar, og ég hlakka mikið til að kynn­ast því góða fólki,“ segir Hrafn.

Kristín Sig­urð­ar­dóttir, sund­kenn­ari af Sel­tjarn­ar­nesi og sjálf­boða­liði Ferða­fé­lags­ins, tók þátt í fjöru­hreinsun og fjár­sjóðs­leit að hætti Krumma Klaka­sonar.

Hrafn nefnir líka kraft­mik­inn hóp frá Bæ í Tré­kyllis­vík sem hafi lagt til tugi vinnu­stunda í fjörum Finn­boga­staða og Stóru-Ávíkur. Félag Árnes­hrepps­búa og Rjúkandi og Græni her­inn og fleiri sam­tök eru einnig búin að bjóða fram krafta sína.

„Nú eru aðeins 40 dagar síðan ég vann það heit í Kolgraf­ar­vík að hreinsa ævin­týra­heim bernsku minnar og forða honum frá því að verða ösku­haugar minna efri daga. Í sam­ræmi við þetta er ég að end­ur­skipu­leggja til­ver­una svo ég geti helgað mig fjöru­hreinsun og fjár­sjóðs­leit á Ströndum. Svo er ég líka að draga saman efni í nýja bók um Árnes­hrepp og von­ast til að geta verið þar sem mest,“ segir Hrafn.

Hann kom fyrst í Árnes­hrepp átta ára gam­all vinnu­piltur þjóð­há­tíð­ar­árið 1974. Hann segir að eng­inn staður í heim­inum skipti sig meira máli, nema Skáholt í Vesturbæ Reykja­víkur þar sem hann ólst upp.

„Ég ætla að end­ur­gjalda Kolgraf­ar­vík, fóstru minni, fyrir öll ævin­týrin í gegnum árin og taka til. Í þess­ari ægi­fögru og stór­brotnu vík, sem breiðir faðm mót íshaf­inu, hafa safn­ast upp ókjör af plasti og rusli, sem vetr­ar­brimið hrærir saman við drumba og spýtur í þess­ari miklu reka­vík. Áður voru trén frá Síberíu mjög mik­il­væg auð­lind en nú eru fúa­sprek og ónýt tré að kaf­færa fjörur og grundir. Ég ætla að skila af mér Kolgraf­ar­vík eins og hún var þegar ég kom þangað fyrst fyrir 46 árum. Þá var hvert sprek notað, í hverri spýtu bjó smíð­is­gripur, í hverjum drumbi girð­ing­ar­staurar eða bygg­ing­ar­efni. Fjöru­kambar og grundir voru ósnortin af plasti og rusli svo þarna var dásam­legur heimur – sem við ætlum að end­ur­heimta,“ segir Hrafn.

Hann er með ótal hug­myndir um það hvernig megi breyta fjör­urusl­inu í verð­mæti. Hugs­an­legt sé að kurla reka­við­inn niður og nota í göngu­stíga. Eða jafn­vel vinna hann með öðrum hætti. Aðal­at­riðið sé að hreinsa fjör­urnar af aðskota­efn­inu. Og það er ekk­ert sem stöðvar Hrafn, fugl­inn í fjör­unni. Hann stefnir að útrás fyrir Vini Kolgraf­ar­víkur.

„Vinir Kolgraf­ar­víkur láta ekki staðar numið þar – á næstu vikum verður hreinsað til í öllum fjörum Finn­boga­staða og Stóru-Ávíkur, en það eru líka fleiri spenn­andi fjörur fram undan. Ef við getum tekið til í einni vík hljótum við að geta tekið til í öllum víkum Íslands undir kjör­orðum Vina Kolgraf­ar­víkur: Saman erum við sterk­ari,“ segir hann.

Hópur Ferða­fé­lags Íslands kom við í fjör­unni og lagði hreins­un­ar­starf­inu lið. Þetta skilti af banda­rískum tund­ur­spili fann Árný Lind Jóns­dóttir í fjör­unni. For­ing­inn var afar ánægður með það og boð­aði vakta­skipti.

Myndir / Jóhanna Engilráð og Reynir Trausta­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

umhverfisvernd

Elísabet vígir bátinn Hrafn Jökulsson á laugardaginn:„Ég er viss um að andi hans mun fylgja bátnum“
Landið

Elísabet vígir bát­inn Hrafn Jök­uls­son á laug­ar­dag­inn:„Ég er viss um að andi hans mun fylgja bátnum“

Strand­hreinsi­bát­ur­inn Hrafn Jök­uls­son verður vígður á laug­ar­dag­inn. Bubbi Morthens samdi ljóð fyrir Elísa­betu Jök­uls­dóttur af því til­efni. Á laug­ar­dag­inn mun Elísabet Jök­uls­dóttir vígja bát sem skýrður var í höf­uðið á bróður hennar, Hrafni heitnum Jök­uls­syni en athöfnin fer fram á Siglu­firði klukkan 14:00. Af því til­efni hringdi Elísabet í Bubba Morthens og spurði hann hvort hann ætti ekki til fal­leg...
Veltir fyrir sér áformum CARBIX: „Getur það verið umhverfisvænt að flytja drullu álfa á milli?“
Innlentumhverfisvernd

Veltir fyrir sér áformum CARBIX: „Getur það verið umhverf­is­vænt að flytja drullu álfa á milli?“

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir spyr hvað Ísland græði á því að taka á móti „drullu“ frá öðrum þjóðum í til­raun til að temja mengun, frekar en að minnka hana. Í nýrri Facebook-færslu talar Steinunn Ólína, leik­kona og fyrrum for­seta­fram­bjóð­andi, um fyr­ir­tækið CARBFIX, sem mikið er á milli tann­anna á fólki um þessar mundir. „CARBFIX er umræðu­efni dag­anna. Talið er að mann­kynið...
Gunnlaugur segir eldislaxa valda miklum skaða: „Ætlar að reynast lífríkinu dýrkeypt“
Innlentumhverfisvernd

Gunn­laugur segir eld­is­laxa valda miklum skaða: „Ætlar að reyn­ast líf­rík­inu dýr­keypt“

Gunn­laugur Stef­áns­son segir íslenskum stjórn­völdum til synd­anna. Laxeldi í opnum sjó­kvíum við Íslands eru mjög umdeildt og segja margir að þetta muni hafi óaft­ur­kræfar afleið­ingar fyrir íslenskt líf­ríki og gerir Gunn­laugur þetta að umtals­efni í pistli. „Laxeldi í opnum sjó­kvíum í íslenskum fjörðum ætlar að reyn­ast líf­rík­inu dýr­keypt eins og lengi hafði verið varað við. Fiskur sleppur umvörpum, erfða­blöndun við...
Eigandi Arnarlax líkir andstæðingum laxeldis við djöfulinn: „Kynnir glænýja áróðursherferð“
Innlentumhverfisvernd

Eigandi Arnarlax líkir and­stæð­ingum lax­eldis við djöf­ul­inn: „Kynnir glæ­nýja áróð­urs­her­ferð“

Kjartan Ólafsson líkir and­stæð­ingum lax­eldis við djöf­ul­inn. Í frétta­tíma RÚV í gær mætti Jón Kaldal, félagi í Íslenska nátt­úru­vernd­ar­sjóðnum, til að ræða lax­eldi í sjó en stór hluti lands­manna er alfarið á móti slíku lax­eldi. Þar gagn­rýndi Jón starf­semi þeirra fyr­ir­tækja sem standa á bak­við þessi eldi. Kjartan Ólafsson, einn af eig­endum Arnarlax, var væg­ast sagt ósáttur við Jón og...
Guðlaugur Þór reiður Þjóðverja: „Vegið að ósnort­inni nátt­úru“
Innlentumhverfisvernd

Guð­laugur Þór reiður Þjóð­verja: „Vegið að ósnort­inni nátt­úru“

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, umhverf­is­ráð­herra, ósáttur með hegðun Þjóð­verja. Umhverf­is­ráð­herr­ann Guð­laugar Þór Þórð­ar­son er væg­ast sagt ósáttur með hinn þýska Pete Ruppert og hegðun hans á Íslandi. Þjóð­verj­inn fór illa með íslenska nátt­úru á fjórtán tonna þungum bíl og skemmdi frið­lýsta svæði. Sjálfur hafði Pete Ruppert lítið gott að segja um land og þjóð. „Við lít­um þetta mjög al­var­leg­um aug­um og...
Þorsteinn hefur áhyggjur af Miðfjarðará: „Við náum náttúrulega aldrei að hreinsa allt“
Innlentumhverfisvernd

Þor­steinn hefur áhyggjur af Mið­fjarð­ará: „Við náum nátt­úru­lega aldrei að hreinsa allt“

Formaður Veiði­fé­lags Mið­fjarð­arár er ekki bjart­sýnn á ástandið sem mynd­ast hefur í ánni. Mikið hefur verið um að eld­is­laxar séu að sleppa í ár á und­an­förnum mán­uðum og hafa fund­ist slíkir í Mið­fjarð­ará. Artic Fish hefur gefið það út að það muni senda kaf­ara til að fanga stroku­laxa í ánum en Þor­steinn Helgason er ekki bjart­sýnn á árangur þess. „Það...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins