„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sólborg sýnir sínar viðkvæmustu hliðar

Sólborg sýnir sínar viðkvæmustu hliðar

Tón­list­ar­konan Sólborg Guð­brands­dóttir, eða SUNCITY, var að senda frá sér nýtt lag, Naked. Lagið er samið af Ölmu Goodman, Klöru Elias, Glashaus bræðrum og Jóhann­esi Ágústi. Albumm náði tali af Sólborgu og fékk að for­vitn­ast um fer­il­inn, tón­list­ina, draumana og nýlega und­ir­rit­aðan samn­ing við banda­rískan tón­list­arrisa.

Blaða­maður Albumm byrjar á að spyrja út í nýja lagið og Sólrun brosir og seg­ist vera búin að að vinna í því í ár, það sé því gott að geta loks­ins komið því frá sér. En hvers konar lag er Naked? „Það fjallar um það hvenær maður er raun­veru­lega nak­inn,“ svarar hún, „ekki bara þegar maður klæðir sig úr föt­unum, heldur þegar maður leyfir fólki að sjá sínar við­kvæm­ustu hliðar. Þegar ég er ber­skjölduð og óör­ugg, lítil í mér og hrædd við heim­inn, það er þá sem ég er raun­veru­lega nakin og það eiga ekk­ert allir skilið að fá að kynn­ast þeirri hlið á mér.“

Þetta er í fyrsta sinn sem þú gefur út efni undir nafn­inu SUNCITY. Hvernig kom sú nafn­gift til? „Mig lang­aði að leikar mér aðeins með nafnið mitt og breyta því og SUNCITY er bara bein­þýð­ing á því.“

„Þegar ég er ber­skjölduð og óör­ugg, lítil í mér og hrædd við heim­inn, það er þá sem ég er raun­veru­lega nakin og það eiga ekk­ert allir skilið að fá að kynn­ast þeirri hlið á mér.“

Óhætt er að segja að Sólborg hafi í nógu að snú­ast því fyrir utan tón­list­ina starfar hún sem fyr­ir­les­ari og heldur úti síð­unni Fávitar á Instagram sem er átak gegn staf­rænu og ann­ars konar kyn­ferð­is­of­beldi. Hún vinnur líka að kyn- og kynja­fræðslu­bók sem kemur fyrir næstu jól og fyrir ekki löngu und­ir­rit­aði hún samn­ing Sony Music. Hvernig kom eig­in­lega til að hún und­ir­rit­aði samn­ing við eitt stærsta útgáfu­fyr­ir­tæki heims? „Sony komst yfir demó af tón­list sem ég var að vinna í,“ svarar hún. „Í kjöl­farið vildu þeir gera samn­ing við mig.“

Er plata í vinnslu? „Ég er alla­vega að vinna í nýrri tón­list ásamt frá­bæru tón­list­ar­fólki og hlakka til að gefa hana út og leyfa fólki að heyra. Hvort þetta endar sem plata eða ekki verður bara að koma í ljós,“ segir hún leynd­ar­dóms­full. „Það er alla­vega nóg af efni á leið­inni.“

Spurð hvort stefnan sé sett á útlönd kinkar hún kolli og segir að svo sé. Það hafi alltaf verið lang­tíma mark­mið. „Mig hefur dreymt um það síðan ég var krakki,“ segir hún. „Mig langar líka að vinna við tón­list á Íslandi. Maður tekur bara eitt skref í einu,“ segir hún og brosir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

albumm

Reykjanesskaginn rís og skelfur og íbúar varaðir við: Almannavarnir boða til fundar í morgunsárið
Menning

Reykja­nesskag­inn rís og skelfur og íbúar varaðir við: Almanna­varnir boða til fundar í morg­unsárið

Hætta er á því að enn eitt eld­gosið sé að hefj­ast á Reykja­nesi. Jörð skelfur á svæð­inu við Fagra­dals­fjall og land hefur risið á Reykja­nesskaga. Þetta þýðir að hætta á eld­gosi er yfir­vof­andi. Á annað þús­und jarð­skjálfta hafa mælst síðan jarð­skjálfta­hrinan hófst í gær. Sá stærsti, 3,7 á Richter varð seint í gær­kvöld. Alls hafa átta skjálftar mælst yfir 3....
Logi Bergmann til Heiðrúnar
Menning

Logi Bergmann til Heiðrúnar

Sjón­varps­mað­ur­inn Logi Bergmann Eiðsson hefur gengið í erf­iða tíma eftir að Vitalía Lazerova sak­aði hann um kyn­ferð­is­brot í sam­vinnu við Arnar Grant á hót­el­her­bergi í Borg­ar­firði. Logi starf­aði á Mogganum og útvarps­stöð­inni K 100 þegar málið var opin­bert. Hann var lát­inn víkja úr starfi fyrir ári síðan. Nú hefur aftur rofað til hjá honum. Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Samtaka í...
Plötuverslanir halda tónlistarveislu til að bregðast við áhrifum COVID-19
Menningalbumm

Plötu­versl­anir halda tón­list­ar­veislu til að bregð­ast við áhrifum COVID-19

Hljóm­plötu­versl­anir í Reykja­vík bjóða upp á tón­list­ar­veislu í sumar undir slag­orð­inu Elskum plötu­búðir. 12 Tónar, Lucky Records, Smekk­leysa, Reykja­vík Record Shop og Geisla­diska­búð Valda(tekur þátt einn dag) standa fyrir tón­list­ar­veislu 15. og 29. ágúst. Hver við­burð­ur­inn rekur annan þannig að fólk getur gengið á milli versl­ana og notið allra tón­list­ar­at­rið­anna, svo­lítið eins og að vera á lít­illi tón­list­ar­há­tíð. Verk­efnið er...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Menning

Menning

Hundurinn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dofinn yfir þessum missi“

Menning

The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tímalausum smellum og anda kántrítónlistar“

Menning

DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugnanlegar líkkistur sendar heim til sín: „RIP Drake“

Menning

Friðrik Dór hugsar um lygar

Menning

Myrkvi gefur út þriðju breiðskífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tímans

Menning

Bubbi og Frikki Dór styðja fórnarlömb þjóðarmorðsins á Gaza